Þessi grein birtist fyrir meira en ári.

Íbúðalánavextir Íslandsbanka hækkaðir og eru komnir í 10,5 prósent

Tveir af þrem­ur stóru bönk­un­um hafa hækk­að óverð­tryggða vexti á íbúðalán­um upp í tveggja stafa tölu. Lán líf­eyr­is­sjóða eru sem stend­ur á mun betri kjör­um. Greiðsla af 45 millj­óna króna láni hef­ur hækk­að um 175 þús­und krón­ur á einu og hálfu ári.

Íbúðalánavextir Íslandsbanka hækkaðir og eru komnir í 10,5 prósent
Hækka Birna Einarsdóttir er bankastjóri Íslandsbanka. Mynd: Nasdaq Iceland

Íslandsbanki hefur ákveðið að hækka breytilega vexti á óverðtryggðum íbúðalánum úr 9,25 í 10,5 prósent. Hækkunin mun taka gildi á föstudag. Hún kemur í kjölfar þess að Seðlabanki Íslands hækkaði stýrivexti sína í þrettánda sinn í röð í síðasta mánuði, nú um 1,25 prósentustig og upp í 8,75 prósent. Á rúmum tveimur árum, síðan í apríl 2021, hafa breytilegir óverðtryggðir vextir hjá Íslandsbanka farið úr því að vera 3,4 prósent í áðurnefnda tölu, 10,5 prósent. Þeir hafa því hækkað um 7,1 prósentustig á tímabilinu. 

Íslandsbanki er annar hinna þriggja kerfislega mikilvægu banka til að hækka vexti á óverðtryggðum íbúðalánum sínum. Landsbankinn reið á vaðið í síðustu viku og hækkaði sína vexti upp í 10,25 prósent. Þar með voru vextir á íbúðalánum komnir í tveggja stafa tölu í fyrsta sinn í yfirstandandi verðbólguástandi, en hún mælist nú 9,5 prósent. Vextir Landsbankans voru 3,3 prósent í apríl 2021. 

Arion banki er eini stóru bankanna þriggja sem hefur enn sem komið er ekki tilkynnt um vaxtahækkun, en fastlega er búist við að hann muni fylgja í fótspor hinna á allra næstu dögum. Þeir eru sem stendur 9,34 prósent og ef vextirnir hækka um 1,25 prósentustig munu þeir fara í 10,59 prósent. Lægstir voru vextirnir hjá Arion í apríl 2021, þegar þeir voru 3,44 prósent. 

Þeir lífeyrissjóðir sem eru stórtækastir í óverðtryggðum útlánum hafa ekki boðað neina vaxtahækkun enn sem komið er og bjóða sem stendur upp á mun skaplegri vexti en bankarnir. 

Lægstir eru þeir sem stendur hjá Brú, eða 7,9 prósent. Lífeyrissjóður verzlunarmanna lánar nú á 8,2 prósent vöxtum og hjá Gildi eru breytilegu óverðtryggðu vextirnir komnir upp í 8,6 prósent.

Greiðslubyrði næstum tvöfaldast

Samkvæmt tölum sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) hefur tekið saman þurfti sá sem var með óverðtryggt lán upp á 45 milljónir króna á breytilegum vöxtum að borga 191.700 krónur af slíku láni í upphafi árs 2022. Þegar allir bankarnir verða búnir að hækka vexti sína eftir síðustu stýrivaxtahækkun verða þeir allir komnir yfir tíu prósent. Útreikningar HMS sýna að greiðslubyrðin af slíku láni verði þá komin í 366.795 krónur á mánuði, og hafi þá aukist um 175.275 krónur á einu og hálfu ári. 

Alls eru lán upp á næstum 600 milljarða króna á föstum óverðtryggðum vöxtum sem losna á næstu þremur árum. Binditími lána upp á 74 milljarða króna renna út á þessu ári, en um er að ræða lán 4.451 heimila.  

Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands brýndi fyrir bönkum og öðrum lánveitendum í morgun að huga tímanlega að þyngri greiðslubyrði lántakenda til þess að fyrirbyggja greiðsluerfiðleika þeirra. Viðbúið sé að þrengri fjármálaskilyrði birtist fyrr eða síðar í auknum vanskilum en að rétt sé að hafa í huga að vanskil geti komið fram með nokkurri tímatöf. „Þar sem þörf krefur ber að skoða að lengja lánstíma, taka upp jafngreiðsluskilmála, setja þak á greidda nafnvexti og líta til ólíkra lánaforma sem bjóða upp á mismunandi greiðslubyrði. Rúm eiginfjárstaða margra lántaka ætti að gefa töluvert svigrúm til að tryggja að greiðslubyrði haldist í takti við viðmið lánþegaskilyrða sem nefndin hefur sett.“ 

Þetta kom fram í yfirlýsingu nefndarinnar, sem leidd er af Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra, sem birt var í morgun og minnisblaði hennar sem birt var samhliða.

Rekstrarafkoma íslensku bankanna hefur verið góð þrátt fyrir erfitt árferði. Þeir högnuðust samtals um 20,3 milljarða króna á fyrstu þremur mánuðum yfirstandandi árs. Allir þrír juku hagnað sinn frá sama tímabili 2022, enda jukust vaxtatekjur þeirra mikið milli ára og eru langstærsti tekjupósturinn í rekstri þeirra. Vaxtamunur þeirra – Munurinn á þeim vöxtum sem bank­arnir borga fyrir að fá pen­inga að láni og þeim vöxtum sem þeir rukka fyrir að lána ein­stak­lingum og fyr­ir­tækjum fjár­muni –hefur aukist hægt og bítandi og var 2,8 til 3,2 prósent á fyrsta ársfjórðungi, minnstur hjá Landsbankanum en mestur hjá Íslandsbanka.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Axel Axelsson skrifaði
    sennilega skárra en 97% vextir í argentínu . . .
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Missir húsið upp í skattaskuld fyrrverandi eiginmanns
2
Fréttir

Miss­ir hús­ið upp í skatta­skuld fyrr­ver­andi eig­in­manns

Fyrr­ver­andi eig­in­kona Sig­urð­ar Gísla Björns­son­ar í Sæ­marki sér fram á að missa fast­eign sína upp í skatta­skuld hans, eft­ir úr­skurð Hæsta­rétt­ar í síð­ustu viku. Hjóna­band­inu lauk fyr­ir rúm­um ára­tug og fjög­ur ár voru lið­in frá skiln­aði þeirra þeg­ar Sæ­marks-mál­ið, sem snýr að um­fangs­mikl­um skattsvik­um Sig­urð­ar, komst upp.
Ekki lengur hægt að gera atlögu að Bjarna fyrir kosningar
4
GreiningStjórnarslit 2024

Ekki leng­ur hægt að gera at­lögu að Bjarna fyr­ir kosn­ing­ar

Síð­an Bjarni Bene­dikts­son tók við for­mennsku í Sjálf­stæð­is­flokkn­um hef­ur því ít­rek­að ver­ið velt upp hvort tími hans sé lið­inn. Enn sem kom­ið er hef­ur sand­ur­inn í hans póli­tíska stund­arglasi ekki runn­ið út. Hann virð­ist ná að snúa því aft­ur og aft­ur rétt áð­ur en síð­ustu sand­korn­in detta. Með því að slíta stjórn­ar­sam­starf­inu styrkti Bjarni stöðu sína og kom í veg fyr­ir inn­an­búð­arat­lögu gegn sér fyr­ir kosn­ing­ar, seg­ir stjórn­mála­fræð­ing­ur.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
1
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­regl­an á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönn­um á veg­um hér­aðssak­sókn­ara tókst á dög­un­um að end­ur­heimta á ann­að þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­son­ar og Jó­hann­es­ar Stef­áns­son­ar, á með­an sá síð­ar­nefndi var við störf í Namib­íu. Skila­boð­in draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðr­ir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Missir húsið upp í skattaskuld fyrrverandi eiginmanns
5
Fréttir

Miss­ir hús­ið upp í skatta­skuld fyrr­ver­andi eig­in­manns

Fyrr­ver­andi eig­in­kona Sig­urð­ar Gísla Björns­son­ar í Sæ­marki sér fram á að missa fast­eign sína upp í skatta­skuld hans, eft­ir úr­skurð Hæsta­rétt­ar í síð­ustu viku. Hjóna­band­inu lauk fyr­ir rúm­um ára­tug og fjög­ur ár voru lið­in frá skiln­aði þeirra þeg­ar Sæ­marks-mál­ið, sem snýr að um­fangs­mikl­um skattsvik­um Sig­urð­ar, komst upp.
Hagkaup hættir með Sodastream vegna mótmælaaðgerða
6
Fréttir

Hag­kaup hætt­ir með Sod­a­stream vegna mót­mæla­að­gerða

Að­gerða­sinn­ar sem hvetja til snið­göngu á vör­um frá Ísra­el hafa sett límmiða á Sod­a­stream-vör­ur í Hag­kaup­um og þannig vald­ið skemmd­um á um­búð­un­um. Sig­urð­ur Reyn­alds­son, fram­kvæmda­stjóri Hag­kaups seg­ir um­boðs­að­ila Sod­a­stream á Ís­landi hafa end­urkall­að vör­urn­ar vegna þessa. „Ég er mað­ur frið­ar,“ seg­ir fram­kvæmda­stjór­inn.

Mest lesið í mánuðinum

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
1
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­regl­an á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönn­um á veg­um hér­aðssak­sókn­ara tókst á dög­un­um að end­ur­heimta á ann­að þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­son­ar og Jó­hann­es­ar Stef­áns­son­ar, á með­an sá síð­ar­nefndi var við störf í Namib­íu. Skila­boð­in draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðr­ir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Fann fyrir sterkri þörf fyrir að vernda dóttur sína eftir að hún kom út
6
ViðtalBörnin okkar

Fann fyr­ir sterkri þörf fyr­ir að vernda dótt­ur sína eft­ir að hún kom út

Guð­rún Karls Helgu­dótt­ir, bisk­up Ís­lands, er tveggja barna móð­ir en dótt­ir henn­ar kom út sem trans 14 ára göm­ul. „Fyrstu til­finn­inga­legu við­brögð­in voru svo­lít­ið eins og það hefði ver­ið spark­að harka­lega í mag­ann á mér því ég fór strax að hugsa um hvað henni hlyti að hafa lið­ið illa und­an­far­ið. En um leið fann ég fyr­ir svo mik­illi ást; svo sterkri þörf fyr­ir að vernda hana,“ seg­ir Guð­rún.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár