Fyrri mynd:
Þetta skip er ekki lengur til, það var höggvið í brotajárn 1992. En áratugina þar á undan kom það oft til Íslands, og sérstaklega einu sinni. Hvað hét þetta skip?
Seinni mynd:
Hvað heitir bíómyndapersónan með hattinn sem hér sést hálfgerð skuggamynd af?
1. Skáldsagan Moby Dick snýst um ákafa leit að ... hverju?
2. Önnur skáldsaga, The Hunt for Red October, snýst líka um leit. En hvað er Red October?
3. Sonja Ýr Þorbergsdóttir er formaður ... hvaða samtaka eða félags?
4. Næststærsta borgin í tilteknu Evrópuríki heitir Durrës. Þar búa um 175.000 manns. Í hvaða landi er Durrës?
5. Hvað hét þýski marskálkurinn sem gafst upp fyrir Rauða hernum við Stalíngrad árið 1943?
6. Fyrir nokkrum vikum bárust af því fréttir að tiltekin stórborg væri að sökkva í jörð undan eigin þunga. Hún sekkur vissulega ekki hratt en þó 2 millimetra á ári. Hvaða borg er þetta?
7. Í minnsta héraði Finnlands búa aðeins rúmlega 30.000 manns og opinbert mál þar er sænska. Frá því um 1850 hefur verið bannað að hafa þar her en héraðið nýtur sjálfstjórnar og sinn forsætisráðherra. Forsætisráðherra nú er hjúkrunarfræðingurinn Veronica Thörnroos. Hvað heitir þetta hérað?
8. Michelle LaVaughn Robinson fæddist árið 1964. Hún hefur ýmislegt afrekað um ævina en er þó óneitanlega þekktust fyrir ... hvað?
9. Í hvaða landi er höfuðborgin Lissabon?
10. „Veit ég það, Sveinki.“ Hver sagði þetta?
11. Og hvað var það sem viðkomandi vissi?
12. Árið 2015 byrjaði að koma út íslensk útgáfa af útbreiddu erlendu tískutímariti. Kom það svo út í nokkur ár. Ritstjóri lengst af var Álfrún Pálsdóttir en hvaða blað var þetta?
13. Hvað annaðist forn-gríski guðinn Helíos?
14. Hvað eru þau nefnd, stríðsátökin sem nágrannar Ísraels hófu gegn þeim árið 1973?
15. Hvaða hljómsveit sendi frá sér plötu sem kölluð er Hvíta albúmið 1968?
Takk, Illugi.