Spurningaþraut Illuga 14. júlí 2023

Spurningaþraut Illuga 14. júlí 2023

Fyrri mynd:

Þessi lág­mynd var höggvin út af lista­mönnum til­tek­innar her­skárrar menn­ing­ar­þjóðar. Fleiri þjóðir í nágrenn­inu tóku svo upp sama stíl, einkum þó ein, sem átti gríð­ar­legt veldi um tíma. Nefnið aðra hvora af þessum þjóðum.

Seinni mynd:

Hvaða hópur er þetta?

1.  Hver skrif­aði skáld­sagna­bálk­inn Dalalíf?

2.  Mjög róm­aður leið­togi hjá stórri þjóð stun­aði það á fyrri hluta 20. aldar að láta naktar korn­ungar stúlkur sofa við hlið­ina á sér. Mein­ingin var sú að hann þroskað­ist sífellt með því stand­ast þá freist­ingu að grípa til stúlkn­anna. Hvað nefn­ist þessi maður?

3.  Hvað hét glæpa­sagan sem þau Ragnar Jónasson og Katrín Jak­obs­dóttir gáfu út um síð­ustu jól við ágætar mót­tökur?

4.  Hversu löng (svona nokkurn veg­inn) er sigl­inga­leiðin milli Reykja­víkur og Kaup­manna­hafnar, ef siglt er stystu leið? Eru það sirka 2.300 kíló­metrar — 4.300 kíló­metrar — eða 6.300 kíló­metrar?

5.  Hverjir voru höf­undar lags­ins Waterloo árið 1974?

6.  Hver var for­sæt­is­ráð­herra Indlands 1966-1977 og aftur frá 1980-1984?

7.  Við hvaða verk­færi er Vilhelm Anton Jónsson gjarnan kenndur?

8.  Hvaða á í ver­öld­inni rennur um flestar höf­uð­borgir?

9.  Hversu margar ætli þær höf­uð­borgir séu? Ekki er nauð­syn­legt að nefna þær.

10.  Obsidian er enska nafnið á afbrigði nátt­úru­legs glers, sem mynd­ast í eld­gosum þegar til­tekið hraun kólnar og storknar mjög hratt, en krist­all­ast ekki. Hvað köllum við þetta magn­aða gler?

11.  Hvaða ár kom fyrsti iPhone-inn á markað? Hér má skeika einu ári til eða frá?

12.  Hvað hét fyrsti for­seti Íslands?

13.  Hver er þekkt­asti ein­stak­ling­ur­inn í heim­inum sem ber nafnið Robinette, þótt það sé reyndar lítt eða ekki notað milli­nafn í til­felli við­kom­andi?

14.  Í hvaða landi er borgin Cork?

15.  Róm­verski keis­ar­inn Claudius er gjarnan sagður hafa dáið eftir að neytt til­tek­innar fæðu sem hann var afar sólg­inn í. Því miður hafði konan hans blandað eitri í fæð­una. Hvaða fæða var þetta?

Svör við mynda­spurn­ingum:
Á fyrri mynd­inni er lág­mynd sem Assyr­íu­menn hjuggu út. Persar við­héldu svo þessum stíl. Engin svör duga nema Assyr­íu­menn og Persar! Á seinni mynd­inni má sjá Fóst­bræður.
Svör við öðrum spurn­ingum:
1.  Guðrún frá Lundi.  —  2.  Mahatma Gandhi.  —  3.  Reykja­vík.  —  4.  Sigl­inga­leiðin er um 2.300 kíló­metrar.  —  5.  Björn Ulvaeus og Benny And­ers­son for­sprakkar ABBA.  —  6.  Indira Gandhi.  —  7.  Naglbít.  —  8.  Dóná.  —  9.  Höf­uð­borg­irnar eru fjórar, Vín, Brat­islava, Budapest og Belgrad.  —  10.  Hrafn­tinnu.  —  11.  Árið var 2007 svo rétt er 2006-2008.  —  12.  Sveinn Björns­son.  —  13.  Joseph Robinette Biden Banda­ríkja­for­seti.  —  14.  Írlandi.  —  15.  Sveppir.
Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár