Spurningaþraut Illuga 16. júní 2023

Fyrri mynd:

Hvaða ár var þessi fræga ljós­mynd tekin?

Seinni mynd:

Hver er þetta?

1.  Hver var fyrsta konan sem var leik­hús­stjóri á Íslandi?

2.  Hver er stærsta katt­ar­teg­und heims­ins nú um stundir?

3.  Stytta af hvaða skáldi er næst Hljóm­skál­anum í Reykja­vík?

4.  Hvaða fót­boltalið frá Spáni vann Evr­ópu­deild­ina í karla­flokki í úrslita­leik fyrir viku síðan?

5.  Hver skrif­aði skáld­sög­una Gerplu?

6.  Hvaða íslenski banki kom á fót á sínum tíma hinum alræmdu Icesave-reikn­ingum?

7.  Við brúð­kaup í til­teknu þorpi urðu veislu­hald­arar uppi­skroppa með vín. Þar sem Jesús var einn af veislu­gest­unum reynd­ist þó auð­velt að redda því. En hvar var þetta brúð­kaup haldið?

8.  Hver er fimmta reiki­stjarnan frá sól­inni?

9.  Nelson Piquet heitir karl einn sem nú er sjö­tugur en varð á níunda ára­tug síð­ustu aldar þrisvar heims­meist­ari í til­tek­inni grein. Hvaða grein var það? – og svarið þarf að vera hár­ná­kvæmt!

10.  Hvað fann litla gula hænan?

11.  Hver samdi ljóða­bók­ina Enginn dans við Ufsa­klett: Ástin ein tauga­hrúga – og fékk til­nefn­ingu til bók­mennta­verð­launa Norð­ur­landa­ráðs?

12.  Í hvaða Evr­ópu­landi er borgin Poznań?

13.  Sú mynd sem flestir hafa lækað á Instagram (rúm­lega 75 milljón manns) var tekin 18. des­em­ber síð­ast­lið­inn, sem sé 2022. Raunar er um að ræða nokkrar myndir en lang­mest ber á einum ungum karl­manni. Hver ætli það sé?

14.  Við hvaða þétt­býl­is­stað er Robert James Fischer graf­inn?

15.  Jórunn Sig­urð­ar­dóttir lét af störfum hjá RÚV Rás eitt fyrir viku en hún hafði í ára­fjöld ann­ast þar vin­sælan þátt sem nefn­ist Orð um ... hvað?

Svör við mynda­spurn­ingum:

Fyrri myndin var tekin við inn­rás­ina í Normandí 1944. Seinni myndin er af söng­kon­unni Bríeti.

Svör við öðrum spurn­ingum:

1.  Vigdís Finn­boga­dóttir.  –  2.  Tígris­dýrið.  –  3.  Jónas Hall­gríms­son.  –  4.  Sevilla.  –  5.  Halldór Laxness.  –  6.  Lands­bank­inn.  –  7.  Í Kana.  –  8.  Júpíter.  –  9.  Í Formúlu 1.  Kappakstur dugar ekki!  –  10.  Fræ.  –  11.  Elísabet Jök­uls­dóttir.  –  12.  Póllandi.  –  13.  Leo Messi. Myndin er af fagn­að­ar­látum hans og félaga hans í argent­ínska lands­lið­inu í fót­bolta þegar Argent­ínu­menn urðu heims­meist­arar.  –  14.  Selfoss.  –  15.  Bækur.

Kjósa
32
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár