Spurningaþraut Illuga 4. ágúst 2023

Spurningaþraut Illuga 4. ágúst 2023

Fyrri mynd:

Þetta skip er ekki lengur til, það var höggvið í brota­járn 1992. En ára­tug­ina þar á undan kom það oft til Íslands, og sér­stak­lega einu sinni. Hvað hét þetta skip?

Seinni mynd:

Hvað heitir bíó­mynda­per­sónan með hatt­inn sem hér sést hálf­gerð skugga­mynd af?

1.  Skáldsagan Moby Dick snýst um ákafa leit að ... hverju?

2.  Önnur skáld­saga, The Hunt for Red October, snýst líka um leit. En hvað er Red October?

3.  Sonja Ýr Þor­bergs­dóttir er for­maður ... hvaða sam­taka eða félags?

4.  Næst­stærsta borgin í til­teknu Evr­ópu­ríki heitir Durrës. Þar búa um 175.000 manns. Í hvaða landi er Durrës? 

5.  Hvað hét þýski mar­skálk­ur­inn sem gafst upp fyrir Rauða hernum við Stalín­grad árið 1943?

6.  Fyrir nokkrum vikum bár­ust af því fréttir að til­tekin stór­borg væri að sökkva í jörð undan eigin þunga. Hún sekkur vissu­lega ekki hratt en þó 2 milli­metra á ári. Hvaða borg er þetta?

7.  Í minnsta hér­aði Finn­lands búa aðeins rúm­lega 30.000 manns og opin­bert mál þar er sænska. Frá því um 1850 hefur verið bannað að hafa þar her en hér­aðið nýtur sjálf­stjórnar og sinn for­sæt­is­ráð­herra. For­sæt­is­ráð­herra nú er hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn Veronica Thörnroos. Hvað heitir þetta hérað?

8.  Michelle LaVaughn Robinson fædd­ist árið 1964. Hún hefur ýmis­legt afrekað um ævina en er þó óneit­an­lega þekkt­ust fyrir ... hvað?

9.  Í hvaða landi er höf­uð­borgin Lissabon?

10.  „Veit ég það, Sveinki.“ Hver sagði þetta?

11.  Og hvað var það sem við­kom­andi vissi?

12.  Árið 2015 byrj­aði að koma út íslensk útgáfa af útbreiddu erlendu tísku­tíma­riti. Kom það svo út í nokkur ár. Rit­stjóri lengst af var Álfrún Páls­dóttir en hvaða blað var þetta?

13.  Hvað ann­að­ist forn-gríski guð­inn Helíos?

14.  Hvað eru þau nefnd, stríðs­á­tökin sem nágrannar Ísraels hófu gegn þeim árið 1973?

15.  Hvaða hljóm­sveit sendi frá sér plötu sem kölluð er Hvíta albú­mið 1968?

Svör við mynda­spurn­ingum:
Á fyrri mynd­inni er danska eft­ir­lits­skipið Vædderen sem kom í fræga ferð með hand­ritin til Íslands 1971. Á seinni mynd­inni er Indiana Jones forn­leifa­fræð­ingur á flótta undan stórum steini í einni af bíó­myndum sínum.
Svör við almennum spurn­ingum:
1.  Hval.  –  2.  Kafbátur. Skip dugar ekki.  – 3.  BSRB.  –  4.  Albanía.  –  5.  Paulus.  –  6.  New York.  –  7.  Álandseyjar.  –  8.  Að vera gift Barack Obama Banda­ríkja­for­seta.  –  9.  Portúgal.  –  10.  Jón Arason biskup.  –  11.  Að líf væri að loknu þessu.  –  12.  Glamour.  –  13.  Sólina.  –  14.  Yom Kippur.  –  15.  Bítl­arnir.

Kjósa
32
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár