Hvað skýrir minnkandi fæðingartíðni?

Áhrif stefnu­mót­unar og for­eldra­menn­ingar á barn­eignir á Íslandi er meðal þess sem nýdokt­or­arnir Sunna Sím­on­ar­dóttir og Ari Klængur Jónsson hafa rann­sakað. Þau ræða mögu­legar ástæður fyrir minnk­andi fæð­ing­ar­tíðni í hlað­varp­inu Samtal við sam­fé­lagið.

Hvað skýrir minnkandi fæðingartíðni?
Hríð­lækk­andi fæð­ing­ar­tíðni Fæð­ing­ar­tíðni lhefur öngum verið há á Íslandi í en hefur þó farið hríð­lækk­andi síð­ast­lið­inn ára­tug. Gestir hlað­varps­ins Samtals við sam­fé­lagið reyna að svara hvað veldur. Mynd: Pexels

„Við vildum skoða þetta, ekki bara hvað er að ger­ast, heldur líka að varpa ein­hverju ljósi á ástæð­urnar, af hverju er þetta að ger­ast á Íslandi út frá breiðu sjón­ar­horni,“ segir Sunna Sím­on­ar­dóttir, nýdoktor í félags­fræði, um minnk­andi fæð­ing­ar­tíðni á Íslandi. 

Sunna og Ari Klængur Jónsson, sem er einnig nýdoktor í félags­fræði, eru gestir Sigrúnar Ólafs­dóttur, pró­fess­ors í félags­fræði, í nýjasta hlað­varps­þætti Samtals við sam­fé­lagið, sem finna má í hlað­varpi Heim­ild­ar­innar. Í þætt­inum ræða þau um minnk­andi fæð­ing­ar­tíðni á Íslandi og áhrif stefnu­mót­unar og for­eldra­menn­ingar á barn­eignir á Íslandi. 

Áhrif stefnu­mót­un­ar og for­eldra­menn­ing­ar á barn­eign­ir á Ís­landiSunna Sím­on­ar­dóttir, aðjúnkt og nýdoktor í félags­fræði og Ari Klængur Jónsson, nýdoktor í félags­fræði, eru gestir Sigrúnar Ólafs­dóttur í hlað­varp­inu Samtali við sam­fé­lagið, fyrsta þætti eftir langt hlé. Sunna og Ari stýra stóru rann­sókn­ar­verk­efni sem skoðar áhrif stefnu­mót­unar og for­eldra­menn­ingar á barn­eignir á Íslandi.

Fæð­ing­ar­tíðni hefur löngum verið há á Íslandi í sam­an­burði við önnur Evr­ópu­lönd. Und­an­geng­inn ára­tug hefur fæð­ing­ar­tíðni þó farið hríð­lækk­andi á Íslandi. Samkvæmt nýjum tölum frá Hag­stof­unni hefur frjó­semi aldrei mælst minni en árið 2022. 4.391 barn fædd­ist á Íslandi á síð­asta ári sem er mikil fækkun frá 2021 þegar 4.879 börn fædd­ust. Þetta er mesta fækkun á lif­andi fæddum börnum sem hefur átt sér stað milli ára frá 1838 eða fækkun upp á 488 börn. 

Sunna og Ari eru meðal stjórn­enda umfangs­mik­ils verk­efnis á vegum þver­fræði­legs hóps fræða­fólks við Háskóla Íslands. Verk­efnið nefn­ist „Áhrif stefnu­mót­unar og for­eldra­menn­ingar á barn­eignir á Íslandi“ og í því er lögð áhersla á að rann­saka þær breyt­ingar sem hafa orðið á fæð­ing­ar­tíðni á síð­ast­liðnum árum og öðl­ast skiln­ing á ástæðum þeirra. 

Áhrif foreldramenningar á ákvarðanir um barneignir

Í verk­efn­inu er leit­ast eftir því að svara hvort fjöl­skyldu­stefna á Íslandi styðji nægi­lega við barna­fjöl­skyldur og fangi síauk­inn fjöl­breyti­leika og breyttar þarfir fjöl­skyldna, ásamt því að greina hvernig for­eldra­menn­ing mótar ákvarð­anir um barn­eignir. 

Ísland veitir ein­stakt tæki­færi til að rann­saka fæð­ing­ar­tíðni og barn­eignir. Hér á landi er mikil áhersla á jafn­rétti kynj­anna, fjöl­skyldur eru fjöl­breyttar og fjöl­skyldu­stefna styður við atvinnu­þátt­töku beggja for­eldra og jafna fjöl­skyldu­á­byrgð. Nið­ur­stöður úr verk­efn­inu byggja á fjöl­breyttri aðferða­fræði­legri nálgun og munu nýt­ast við að öðl­ast skiln­ing á barn­eignum á Íslandi, ásamt því að vera mik­il­vægt inn­legg í alþjóð­legt fræða­sam­fé­lag

„Stóra pæl­ingin okkar er í raun og veru að skoða þessa þróun sem hefur átt sér stað á Íslandi und­an­farin tíu ár þegar við erum að sjá þessa lækkun í fæð­ing­ar­tíðni og þetta er lækkun á fæð­ing­ar­tíðni sem hafði lengi vel verið hærri en í lönd­unum í kringum okkar, líka Norð­ur­lönd­unum, en svo byrjar þessi þróun fyrir um það bil tíu árum síðan,“ segir Sunna meðal ann­ars í þætt­inum. 

„Við vitum svo lítið um barn­eignir á Íslandi þegar kemur að frjó­semi, hvort að til dæmis tekjur spili inn í, upp­runi og allar þessar pæl­ingar, við þekkjum þetta ekki á Íslandi, við vitum þetta á Norð­ur­löndum, til dæmis hvort tekjur hafi áhrif á hvort fólk eign­ist eitt eða þrjú börn,“ segir Ari. 

Sunna segir for­eldra­menn­ingu geta verið eina af lyk­il­þáttum sem mik­il­vægt er að skilja ef skilja á breytta fæð­ing­ar­tíðni. „Ekki bara á Íslandi heldur alþjóð­lega. Ég hef verið að skoða for­eldra­menn­ingu alveg síðan ég byrj­aði í dokt­ors­nám­inu, ég hef áhuga á hvernig hug­myndir okkar um for­eldra­hlut­verkið breyt­ast, hvernig þró­unin er, hvernig hugsum við um hlut­verk okkar og skyldur sem for­eldra, hvernig hugsum við um hvað þarf að vera til staðar í okkar lífi áður en við erum til­búin til að eign­ast börn. Og við vitum að þetta eru ekki fastir hlutir, heldur mót­ast þeir af menn­ingu og tíð­ar­anda hverju sinni,“ segir Sunna. 

Heimsfaraldur skýrir aukna fæðingartíðni 2021 að hluta 

Áhrif kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins eru einnig tekin með í jöfn­una við vinnu verk­efn­is­ins með því að ræða við for­eldra sem eign­uð­ust börn í heims­far­aldr­inum ásamt því að styðj­ast við töl­fræði­leg gögn. 

„Varðandi töl­urnar þá held ég að ég geti sagt – með ákveðnu kæru­leysi – að hluti af þess­ari aukn­ingu sem varð 2021 sé komin út af COVID, við sjáum þetta á hinum Norð­ur­lönd­unum líka, þar jókst fæð­ing­ar­tíðni líka. Og það er þá afleið­ing, þessi lága fæð­ing­ar­tíðni í fyrra er þá afleið­ing af 2021, því að fólk var kannski að flýta barn­eignum þannig að þess vegna fáum við svona, hún fer aðeins upp 2021 og hún fer aftur niður 2022,“ segir Ari. 

Samtal við sam­fé­lagið er að finna í Hlað­varpi Heim­ild­ar­innar. Hér er hægt að nálg­ast þátt­inn í heild sinni. 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
6
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár