Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.

Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg

Umfangs­mikil rann­sókn á skatta- og gjald­eyr­is­skilum Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu, sem enn stendur yfir, er ástæða þess að form­leg fram­sals­beiðni þar­lendra yfir­valda vegna þriggja íslenskra starfs­manna útgerð­ar­innar hefur enn ekki verið send. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu namibíska rík­is­sak­sókn­ar­ans fyrir dómi, þar sem hún ítrekar fyr­ir­ætl­anir sínar um að fá Íslend­ing­ana þrjá fram­selda. Rann­sóknin sem beðið er eftir er í höndum gjald­eyr­is­eft­ir­lits namibíska Seðla­bank­ans og er búist við að rann­sókn þess ljúki í sumar. 

Rík­is­sak­sókn­ar­inn namibískiSegir fyr­ir­sjá­an­legt að sak­ar­efnin gegn fyr­ir­tækjum Íslend­inga og þremur íslenskum stjórn­endum þeirra verði fleiri og stærri en áður var talið og er harð­á­kveðin í að sækj­ast eftir fram­sali, jafn­vel þó slíkt sé talið úti­lokað sam­kvæmt íslenskum lögum.

Þetta kom fram í skýrslu Mörthu Imalwa, rík­is­sak­sókn­ara Namibíu, sem hún gaf fyrir um mán­uði til dóm­ara við milli­dóms­stig vegna Sam­herj­a­máls­ins svo­kall­aða. Þar upp­lýsti hún sér­stak­lega um hvernig liði rann­sókn og mögu­legri sak­sókn gagn­vart sak­born­ingum númer 17 til 22 í mál­inu, það er að segja sex fyr­ir­tækjum Samherja og þremur stjórn­endum þeirra, Agli Helga Árnasyni, Ingvari Júl­í­us­syni og Aðal­steini Helga­syni.

Einn þess­ara þriggja, Ingvar, full­yrðir í yfir­lýs­ingu til namibískra dóm­stóla að íslensk stjórn­völd hafi þegar neitað fram­sali og vísar til yfir­lýs­inga vara­rík­is­sak­sókn­ara á Íslandi í fjöl­miðlum. Samherji hafi ákveðið að mót­mæla ekki millj­arða króna skatta­kröfu í Namibíu, þar sem engar eignir væru enn í land­inu, sem hægt væri að taka upp í kröf­una.

Íslendingarnir enn í sigtinu

Strax í nóv­em­ber 2020 lýsti namibíski rík­is­sak­sókn­ar­inn því yfir vilja til að fá þre­menn­ing­ana íslensku fram­selda til Namibíu, þar sem þeirra biði ákæra fyrir fjöl­mörg brot, mútu­greiðslur, fjár­svik og pen­inga­þvætti meðal ann­ars. Hand­töku­skipun var gefin út á hendur þeim innan Namibíu en form­leg fram­sals­beiðni hefur þó aldrei verið sett fram þótt óform­legar þreif­ingar hafi átt sér stað við yfir­völd hér á landi, sem hafa ávallt bent á að íslensk lög leyfi ekki fram­sal íslenskra þegna til landa þar sem ekki er í gildi tví­hliða fram­sals­samn­ingur. Forsenda þess að hægt sé að ákæra þre­menn­ing­ana í Namibíu er að þeir séu dregnir fyrir dóm í land­inu og því hefur það enn ekki gerst.  

Martha Imalwa rík­is­sak­sókn­ari er þó ekki af baki dottin og upp­lýsti um það í skýrslu sinni til dóm­ara í Namibíu á dög­unum að málið á hendur Sam­herj­a­fyr­ir­tækj­unum sex og Íslend­ing­unum þremur, væri enn til rann­sóknar og sak­ar­efnin fleiri en áður var talið. 

Vill Íslendinga fyrir dóm

Í yfir­lýs­ingu rík­is­sak­sókn­ar­ans sem lögð var fram nýverið útskýrir hún ástæður þess að form­leg fram­sals­beiðni hafi enn ekki verið send íslenskum stjórn­völdum. Í fyrsta lagi komi það til vegna þess að undir í rann­sókn Sam­herj­a­máls­ins í Namibíu séu í raun tvær rann­sóknir, sem seinna hafi verið sam­ein­aðar undir eina. Í þeim báðum séu íslensku þre­menn­ing­arnir undir og „sæti kæru“ í báðum mál­anna.

Enn fremur liggi fyrir nýjar upp­lýs­ingar og gögn í mál­inu sem kalli á umfangs­meiri rann­sókn gagn­vart Íslend­ing­unum þremur og fyr­ir­tækj­unum í mútu­mál­inu, auk þess sem umfangs­mikil rann­sókn skatta­yf­ir­valda í Namibíu hafi þegar leitt í ljós sterkan grun um stór­felld skatta­laga­brot í starf­semi Sam­herj­a­fyr­ir­tækj­anna sem þeir stýrðu.

Þetta allt hafi valdið því að fram­sals­beiðn­inni hafi seinkað þar sem allt stefni í að enn bæt­ist við sak­ar­efnin, að sögn rík­is­sak­sókn­ar­ans. Því hafi dreg­ist að leggja fram form­lega fram­sals­beiðni, þar sem end­an­leg sak­ar­efni liggi ekki fyrir.  

Ákæran enn í vinnslu

Hvað rann­sókn og sak­sókn mútu­máls­ins varðar segir í yfir­lýs­ingu Mörthu að í gegnum upp­lýs­inga­skipti við emb­ætti Hér­aðs­sak­sókn­ara á Íslandi, hafi namibískum rann­sak­endum borist gögn sem hún telji kalla á frek­ari rann­sókn, ekki síst með hlið­sjón af því að fá á hreint umfang mögu­legs efna­hags­legs tjóns namibíska rík­is­ins vegna meintra brota Sam­herj­a­mann­anna þriggja og þeirra fyr­ir­tækja sem þeir stýrðu.

„Þetta er vegna þess að end­ur­skoðuð ákæra gegn [sex fyr­ir­tækjum Samherja], stjórn­endum þeirra fyrir þeirra hönd, og eins gegn stjórn­end­unum per­sónu­lega mun fylgja fram­sals­beiðn­inni,“ segir Martha Imalwa, rík­is­sak­sókn­ari Namibíu, í yfir­lýs­ingu sinni fyrir rúmum mán­uði.

Rann­sóknin gegn Íslend­ing­unum og ákærur á hendur þeim munu því fyr­ir­sjá­an­lega breyt­ast og sak­ar­efnum fjölga, vegna nýrra upp­lýs­inga sem eru til rann­sóknar. 

Meðal ann­ars hafi komið fram vitn­is­burður eins sak­born­inga í Namibíu, sem kalli á frek­ari upp­lýs­inga­öflun frá Angóla. Einn angi Sam­herj­a­máls­ins snýst um það hvernig Samherji hagn­að­ist ólög­lega á spilltum kvóta­samn­ingi milli Angóla og Namibíu, sem komið var á árið 2014. Með samn­ingnum var Samherja tryggðar yfir 50 þús­und tonna veiði­heim­ildir á óeðli­lega hag­stæðum kjörum, sem auk þess runnu að stærstum hluta beint inn á leyni­lega reikn­inga í eigu namibísks áhrifa­fólks, sem kom á samn­ingnum.

Gjaldeyriseftirlitið namibíska

Stóra breytan að baki töfum fram­sals­beiðn­innar snýr þó að meintum  skattsvikum Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu auk meintra brota á gjald­eyr­is­lögum, en gjald­eyr­is­höft eru við lýði í Namibíu. 

Gjald­eyr­is­brotin sem eru til rann­sóknar snúa að því hvernig Samherji seldi eigin fyr­ir­tæki í Namibíu togar­ann Heinaste. Samkvæmt gögnum sem lögð hafa verið fyrir dóm í Namibíu, frysti seðla­banki Namibíu reikn­inga eins Sam­herj­a­fé­lag­anna vegna gruns um brot á gjald­eyr­is­lögum á árunum 2017–2018. Meint brot snú­ast um hvort Samherji hafi svik­ist um að skila til Namibíu hund­ruð millj­óna króna sölu­and­virði tog­ar­ans Heinaste, sem hafi þess í stað endað í skúffu­fé­lagi Samherja á Máritíus.

„Stórfelld“ skattalagabrot

Rík­is­sak­sókn­ar­inn namibíski greinir auk þess frá því í skýrslu sinni að í gangi sé umfangs­mikil skatt­rann­sókn á fyr­ir­tækjum Samherja í Namibíu sem hafi staðið í nokkur ár, en muni ljúka í sumar.

Namibíska spill­ing­ar­lög­reglan (ACC) er að sögn rík­is­sak­sókn­ar­ans „að bíða eftir frek­ari sönn­un­ar­gögnum frá namibískum skatta­yf­ir­völdum vegna skatta­laga­brota“ í starf­semi fyr­ir­tækja Samherja í Namibíu. 

Namibíski skatt­ur­inn telji sig þegar hafa sýnt fram á að Samherji hafi rang­lega talið fram útflutn­ing á fiski á átta ára tíma­bili. Heild­ar­virði útflutn­ings­ins hleypur á millj­örðum í krónum talið og uppi sé grunur um brot á lögum um hvort tveggja virð­is­auka- og tekju­skatt.

Annars vegar snýr málið að mögu­legu broti á namibískum lögum um virð­is­auka­skatt­skil, sem rík­is­sak­sókn­ar­inn segir „frum­rann­sókn hafa leitt í ljós“ umtals­verðan mun á útflutn­ings­tölum og því sem gefið var upp í skatt­skilum Sam­herj­a­fé­lag­anna í Namibíu. Enn eigi þó eftir að ljúka rann­sókn og yfir­ferð yfir skatt­skil nokk­urra ára í starf­semi allra fyr­ir­tækj­anna sex. Það muni því fyr­ir­sjá­an­lega leiða til þess að fleiri meint brot komi í ljós.

„Frum­nið­ur­stöður varð­andi virð­is­aukskatts­skilin benda þó til þess að tekju­skatts­skil hafi líka verið fölsuð“, segir í yfir­lýs­ingu rík­is­sak­sókn­ar­ans.

Í yfir­lýs­ingu yfir­manns rann­sókna hjá namibíska skatt­inum, sem lögð var fyrir dóm­inn á sama tíma, segir að „Sam­herj­a­fyr­ir­tækin í sam­ein­ingu, ólög­lega og af ásetn­ingi, með stór­felldum svik­sam­legum hætti, svikið namibíska ríkið“ með því að gefa ekki rétt upp útflutn­ing að and­virði hátt í 12 millj­arða króna. Upphæð sem rann­sak­and­inn segir að geti átt eftir að hækka umtals­vert þar sem rann­sókn­inni sé ekki lokið þar sem enn eigi eftir að klára rann­sókn á skatt­skilum Sam­herj­a­fé­lag­anna. Þeirri rann­sókn muni að óbreyttu ljúka í sumar.

Saman í NamibíuIngvar Júl­í­us­son (lengst til vinstri) og Aðal­steinn Helgason (í hvítri skyrtu fyrir miðri mynd) á fundi á Hilton hót­el­inu í höf­uð­borg Namibíu fyrir nokkrum árum. Namibísk yfir­völd vilja að þeir tveir og Egill Árnason sam­starfs­maður þeirra, mæti og svari fyrir ákærur í Sam­herj­a­mál­inu.

Skildu eftir milljarða skattaskuld

Eins og fram hefur komið í fréttum hér á landi hefur Samherji Holding hf. gert grein fyrir því í árs­reikn­ingum sínum síð­ustu ár að namibísk skatta­yf­ir­völd krefji fyr­ir­tækið um 313 millj­ónir Namib­íu­doll­ara, jafn­virði rúm­lega tveggja og hálfs millj­arðs króna. For­svars­menn fyr­ir­tæk­is­ins segja ágrein­ing um þær. Það sama kemur fram í yfir­lýs­ingu sem einn Samherja-þre­menn­ing­anna lagði fyrir dóm í Namibíu í byrjun vik­unnar.

Ingvar Júl­í­us­son, sem gegndi stöðu fjár­mála­stjóra Samherja á Kýpur og í Namibíu, mót­mælir þar ásök­unum rík­is­sak­sókn­ar­ans og því að enn standi til að óska form­lega eftir því að hann verði fram­seldur til Namibíu til að svara fyrir meint brot sín. Ingvar heldur því fram að íslensk stjórn­völd hafi þegar neitað beiðni þeirra namibísku um fram­sal og vísar til yfir­lýs­inga Helga Magnúsar Gunn­ars­sonar vara­rík­is­sak­sókn­ara í fjöl­miðlum. Helgi Magnús lýsti því þar að íslensk lög heim­il­uðu ekki fram­sal íslenskra rík­is­borg­ara, nema í þeim til­vikum þar sem gilti tví­hliða fram­sals­samn­ingur, sem er ekki á milli Íslands og Namibíu.

Ingvar telur því ástæðu­laust fyrir namibísk yfir­völd að halda áfram rann­sóknum og til­raunum til þess að ákæra hann og kollega hans, Aðal­stein og Egil. Það komi enda aldrei til þess að þeir verði fram­seldir. Ingvar segir sömu­leiðis að skatt­rann­sókn á hendur Samherja hafi staðið frá því í febr­úar 2020 þegar Samherja var til­kynnt að namibísk skatta­yf­ir­völd hefðu til­kynnt að tvö útgerð­ar­fé­lög Samherja í Namibíu, Saga Seafood og Mermaria Seafood, hefðu talið rang­lega fram og skuld­uðu því jafn­virði tveggja og hálfs millj­arðs króna í tekju­skatt, eins og greint var frá í árs­reikn­ingi Samherja Holding hf.

Samherji hefði, að sögn Ingvars, talið sig hafa gefið skýr­ingar á skatta­skuld Saga Seafood, sem var í kringum 170 millj­ónir í krónum talin. Ríflega tveggja millj­arða króna tekju­skatts­kröfu á hendur Mermaria Seafood hafi Samherji hins vegar ákveðið að mót­mæla ekki. Að sögn Ingvars fólst ekki í því sam­þykki á kröf­unni, heldur það mat Samherja að þar sem engar eignir væru eftir í félag­inu í Namibíu, tæki því ekki að taka til varna.

Heim­ildin óskaði eftir við­brögðum Samherja við yfir­lýs­ingu rík­is­sak­sókn­ar­ans í skrif­legri fyr­ir­spurn til fyr­ir­tæk­is­ins. Svar barst ekki.

Kjósa
39
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Emilía Sverrisdóttir skrifaði
    Ríkisstjórn Kötu Jak eru rolur....
    2
  • Kári Jónsson skrifaði
    Ríkisstjórn Katrínar Jak getur flýt rannsókninni hér heima á meintu svindli og fjárglæfrum Samherja í Namibíu og jafnvel víðar, og tryggt framsals-samning við Namibíu, ríkisstjórnin og alþingi hafa haft tæplega 3-ár til þess, en valið að gera EKKI neitt í því máli.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár