Hrauntunguveðmál ráðherra og félaga í uppnámi

300 millj­óna króna lóða­kaup félags sem tengt er dóms­mála­ráð­herra og félögum stendur og fellur með ákvörðun bæj­ar­stjórnar í Garðabæ. Fyrri eig­endum hafði verið bannað að byggja á lóð­inni. Tillaga að umfangs­miklum hús­bygg­ingum forn­eskju­leg og furðu­leg, að mati bæj­ar­full­trúa.

Hrauntunguveðmál ráðherra og félaga í uppnámi
Dóms­mála­ráð­herra Jón Gunn­ars­son stofn­aði félagið Hraun­prýði bygg­ingar ehf ásamt fjöl­skyldu sinni og við­skipta­fé­lögum. Hann er ekki lengur skráður fyrir félag­inu en eig­in­kona hans og sonur eiga sæti í stjórn og vara­stjórn. Aðrir stjórn­ar­menn eru Jóhann Berg Guð­munds­son, lands­liðs­maður í knatt­spyrnu, og Tómas Már Sig­urðs­son, for­stjóri HS Orku.

Félagið Hraun­prýði bygg­ingar ehf., sem Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra stofn­aði í mars í fyrra, keypti lóð­ina Hraun­tungu við Álfta­nes­veg skömmu síðar. Frétt Heim­ild­ar­innar um lóða­við­skiptin vakti tals­verða athygli síð­ast­liðið vor, af ýmsum ástæðum.

Fyrri eig­andi Hraun­tungu, Ólafur Björns­son, eig­andi heild­söl­unnar Innnes ehf., hafði um nokk­urra ára skeið reynt án árang­urs að fá leyfi til upp­bygg­ingar íbúð­ar­hús­næðis á lóð­inni en bæj­ar­yf­ir­völd neitað. Ástæðan er sú að upp­haf­legir eig­endur lóð­ar­innar tóku það lof­orð af bænum að ekki yrði byggt á lóð­inni heldur yrði ára­tuga skóg­rækt þeirra á lóð­inni varð­veitt sem grænt svæði. Til­raunir Ólafs í Innnesi til að fá úrskurð­ar­nefnd umhverfis- og auð­linda­mála til að hnekkja ákvörðun bæj­ar­ins gengu heldur ekki eftir þegar það var reynt fyrir nokkrum árum.

Það að nýstofnað félag hefði ákveðið að kaupa lóð­ina á 300 millj­ónir króna fyrir ári, þótti því …

Kjósa
37
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigurður Einarsson skrifaði
    Einbýlishúsalóðir við hliðina hafa verið seldar á um 70 milljónir, svo eftir töluverðu er að slægjast.
    0
  • Þorsteinn V. Sigurðsson skrifaði
    Sukk
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár