300 milljóna veðmál fjölskyldu dómsmálaráðherra

Einka­hluta­fé­lag sem stofnað var af Jóni Gunn­ars­syni dóms­mála­r­á­herra og eig­in­konu hans í mars keypti ein­býl­is­hús og 3,2 hekt­ara lóð í Garðabæ á 300 millj­ónir mán­uði síðar. Daginn áður komu nýir eig­endur inn í félagið og Jón fór úr eig­enda­hópnum. Konan hans er meðal eig­enda og situr hún í stjórn félags­ins ásamt syni þeirra og tengda­dóttur. Stefnt er að bygg­ingu 30-40 íbúða byggð. Fyrri eig­andi reyndi marg­ít­rekað að fá að ráð­ast í sam­bæri­lega upp­bygg­ingu en var alltaf hafnað af bænum.

300 milljóna veðmál fjölskyldu dómsmálaráðherra
Kominn út Jón segir í sam­tali við Stundina að hann sé ekki lengur í hluta­hafa­hópnum. Það sé þó eig­in­kona hans sem fer áfram með 26 pró­senta hlut. Sonur hans og tengda­dóttir sitja í stjórn fast­eigna­fé­lags­ins.

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra og fjöl­skylda hans eru hjartað í 300 millj­óna fast­eigna­við­skiptum með þriggja hekt­ara land í Garðabæ. Fyrri eig­andi lands­ins hefur ítrekað reynt að fá bæj­ar­yf­ir­völd til að sam­þykkja breytt deiliskipu­lag og leyfa bygg­ingu íbúða á land­inu en án árang­urs. Síðast árið 2020.

Hópurinn í kringum Jón hefur þó þegar leitað til arki­tekta vegna hug­mynda um að byggja tugi íbúð­ar­húsa á land­inu og virð­ist vera búin að veðja 300 millj­ónum á að þau geti sann­fært nýjan meiri­hluta í Garðabæ um að snúa af fyrri leið.

„Þú ert ekki með réttar upp­lýs­ingar,“ eru fyrstu við­brögð Jóns þegar hann var spurður út í við­skipti félags­ins. „Það eru fleiri aðilar sem eru komnir inn í þetta félag og það er ekki búið að ganga frá kaup­samn­ingi um eitt­hvað land.“ Stuttu síðar segir hann þó ekk­ert leynd­ar­mál að félag sem þau hjónin ættu ein­hvern hlut í væri í ferli að kaupa …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (14)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson skrifaði
    Hraunprýði?? Er ekki tilvalið að reisa þarna flóttamannabúðir undir stjórn Johnny Gun og láta ríkið borga ...
    0
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Alltaf sama spillingin!
    0
  • MPH
    Marinó P Hafstein skrifaði
    Peningagræðgi er og mun gera út af við vestræn samfélög. Menn koma sér í stjórnunarstöður til að græða meiri aur. Hugsunarhátturinn og þessi hegðun er orðinn svo algeng að fólk er farið að líta á þetta sem eðlilegan hlut. Mest bitnar þetta á fólki sem á minna milli handanna. Gerðu lista í huga þínum um þetta fólk og fjöldinn mun koma þér á óvart. Fyrsta úrræðið er að stroka þetta fólk út af kjörseðli í kosningum.
    2
  • Thorgerdur Sigurdardottir skrifaði
    Ìsland ì dag...
    0
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Er verktakaræðið í skipulagsmálum enn allsráðandi hjá Sjálfstæðisflokknum í Garðabæ?
    Það kemur í ljós innan tíðar.
    0
  • Hún ríður ekki við einteyming framkoma sjálfstæðismanna, hún er eins á öllum sviðum, og einsog ég held fram þá er þetta skipulögð glæpastarfssemi það skal með öllum ráðum sölsa allt undir sig hvort sem er í einka og eða landsmálum.
    1
  • Hvernig er afhjúpun af þessu tagi deilt?
    0
  • Guðrún Aðalsteinsdóttir skrifaði
    Fjárans svínarí er þetta
    3
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Enn eitt misferlið hjá ráðherrunum.
    3
  • Steinþór Grímsson skrifaði
    Spilling?
    6
    • Siggi Rey skrifaði
      Já og hún verulega rotin!
      3
    • Gauti Bergmann Víðisson skrifaði
      Spilling er misnotkun á valdi eða stöðu þar sem einstakir aðilar eða hópur þeirra nýtir sér aðstöðu sína á óeðlilegan hátt til að hafa áhrif á stöðu mála, oftast til þess að hagnast persónulega.
      2
  • Þór Saari skrifaði
    Það er hægt að segja mörg "ævintýrin" af skipulagsmálum hér í Garðabæ og Álftanesinu gegnum árin. Sögur sem fengju hárin til að rísa á venjulegu fólki, en sem í augum braskara og sveitarstjórnarmanna eru bara "bisness as usual." Þessi saga er bara ein í viðbót. 3,2 hektarar eru 32 stórar einbýlishúsalóðir en um 50 ef lóðirnar eru smærri, um 600 fermetra. Það eru milli 960 og 1.500 milljónir króna.
    10
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Crassiusarnir eru ansi margir á Íslandi, og mættu svosem alveg hafa sama endi og hann. Hversu margir háttsettir ætli séu úr Íslenskri stjórnsýslu og stjórnmálum svona á bólakafi í braski og skuggagerningum? Ég hallast að því að það gæti verið myndarlegur meirihluti. Ég held að Íslenska yfirstéttin sé með svipuð viðhorf og elítan á tímum rómverska lýðveldisins, það er að vinna fyrir sér heiðarlega sé bara fyrir aumingja.
    10
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár