Egypskur þriller, ósýnilegir draugar fortíðar og ljóðelsk fyllibytta

Ertu að leita að ein­hverju til að lesa eða glápa? Svarið gæti leynst hér.

Egypskur þriller, ósýnilegir draugar fortíðar og ljóðelsk fyllibytta

Van­þakk­láti flótta­mað­ur­inn

Áttu nokkuð frænda sem segir aðeins of oft „Helvítis útlend­ingar“ og úthúðar hæl­is­leit­endum? Ef þú telur samt að honum sé við­bjarg­andi, lestu þá með honum bók­ina Van­þakk­láti flótta­mað­ur­inn eftir Dinu Nayeri og sjáðu hvort hann læri ekki eitt­hvað. Bónusinn er svo að bókin er frá­bær­lega skrifuð og oft ótrú­lega fyndin, þótt umfjöll­un­ar­efn­inu fylgi auð­vitað reglu­lega harmur.

Boy From Heaven

 „Hvað ef ég skrifa krimma – en læt hann ger­ast í munka­klaustri á þrett­ándu öld og fylli text­ann af bók­mennta­vís­unum?“ Eitthvað þessu líkt hugs­aði Umberto Eco áður en hann skrif­aði Nafn rós­ar­innar.

Löngu seinna hugs­aði svo sænsk-egypski leik­stjór­inn Tarik Saleh: „Hvað ef ég end­ur­geri Nafn rós­ar­innar óform­lega – en læt sög­una ger­ast í einum virtasta skóla heims fyrir íslömsk fræði?“ Nið­ur­staðan varð þessi fíni egypski þriller sem nú er sýndur í Bíó Paradís.

Aftersun

Pedro Pascal og ung stúlka, ein í heim­inum að flýja vafa­samar skepnur. Mér skilst að það sé plottið í The Last of Us, sem er auð­vitað á gláplist­anum, en það er líka plottið í Aftersun, en þar eru vafasömu skepn­urnar ekki zombíar heldur ósýni­legir draugar for­tíðar og þau eru stödd í hand­an­heimi tyrk­nesks strand­bæjar. Og þótt Pascal sé prýði­legur er það hin korn­unga Frankie Corio sem stelur sen­unni með einum besta leik barna­leik­ara í áraraðir.

Tár

Veistu ekk­ert hvernig þú átt að takast á við slauf­un­ar­menn­ingu sam­tím­ans? Sjáðu þá Tár og hugs­aðu málið í kjöl­farið – og þá átt­arðu þig á að þetta er enn flókn­ara en þig grun­aði, og þú ert alveg jafn týnd/ur – en veist samt að þessi mynd gæti verið að hefja eitt­hvert mik­il­vægt sam­tal sem við þurfum að halda áfram með.

Oscar & Lucinda

Svo er auð­vitað Cate Blanchett nán­ast alltaf frá­bær – og sjaldan betri en í Tár. En mögu­lega þó jafn­góð, ald­ar­fjórð­ung yngri, í þessu litla og alltof gleymda meist­ara­stykki, þar sem hún leikur Lucindu og Ralph Fiennes leikur Oscar, í þess­ari und­ur­fal­legu mynd um ást­ina og sökkvandi kirkjur. Já, bók­staf­lega sökkvandi kirkjur.

Klefi nr. 6

Nú þegar Rússland nútím­ans riðar til falls er rétt að rifja upp ann­að­hvort fyrstu ár Rúss­lands eftir Sov­ét­tím­ann, eða síð­ustu ár hinna deyj­andi Sov­ét­ríkja.

Klefi nr. 6 gerir bæði – bókin ger­ist á níunda ára­tugnum og myndin á þeim tíunda, en bæði verk eru meist­ara­lega ofinn þráður um stærsta land í heimi og tvær mann­eskjur sem flétt­ast inn í þau örlög í langri og hæg­fara lest.

Arne Anka

En ertu kannski bara búinn að fá nóg af þessu og langar á bar­inn, en samt eig­in­lega ekki, út af því það eru bara hálf­vitar þar líka?

Þá er best að grípa í eina góða Arne Anka bók, en Arne þessi er Andrés Önd Sví­þjóðar – nema að hann er ljóð­elsk fylli­bytta af bestu gerð, þarf að glíma við heims­harm­inn á barnum fyrir okkur öll. Já, stundum er mikið lagt á eina önd.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár