„Við síendurteknar náttúruhamfarir veikist kerfið“

Lofts­lags­ráð­stefna VG var haldin í dag. Veð­ur­fræð­ingur segir kerfið veikj­ast við end­ur­teknar nátt­úru­ham­farir.

„Við síendurteknar náttúruhamfarir veikist kerfið“

Sér­fræð­ingar spá því að veð­ur­far sem nú hefur 30-50 ára end­ur­komu­tíma verði með aðeins 10 ára end­ur­komu­tíma eftir nokkra ára­tugi. Þetta er meðal þess sem kom fram í erindi Elínar Bjarkar Jón­as­dóttur á lofts­lags­ráð­stefnu Vinstri grænna í Grósku í dag. 

Elín Björk Jón­as­dóttir er veð­ur­fræð­ingur og deild­ar­stjóri veð­ur­spáa og nátt­úru­vökt­unar hjá Veð­ur­stofu Íslands. Hún hélt erindi um veð­ur­far í kjöl­far lofts­lags­breyt­inga. 

Endurkomutími styttri

„Ef veður er sér­stak­lega óvenju­legt, mikil úrkoma á stuttum tíma, miklir þurrkar, hita­bylgjur eða kulda­köst er oft rætt um end­ur­komu­tíma slíkra veðra. End­ur­komu­tími getur gefið til kynna hvort veðrið sé svo algengt að sam­fé­lög þurfi víð­tækan und­ir­bún­ing undir slíka atburði, eða hvort áhættan sé það lítil að ólík­legt sé að veðrið end­ur­taki sig,” greinir Elín Björk frá í erindi sínu. 

Aldrei hefur hiti jarðar mælst eins mik­ill og árið 2015. Elín Björk segir vís­inda­menn hafa kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að árið 2040 verði sá hiti nýja með­al­talið. Einnig kom fram að síð­ustu átta ár, 2015-2022, eru þau heit­ustu frá því að mæl­ingar hófust. 

Seigla takmörkuð

„Seigla sam­fé­laga er hins vegar tak­mörkuð, og við síend­ur­teknar nátt­úru­ham­farir veik­ist kerfið. Við getum með sam­þættu átaki dregið úr þeim þrýst­ingi sem lofts­lags­breyt­ingar hafa á hnatt­ræn kerfi, bæði vist­kerfi, lofts­lag og sam­fé­lagið allt,” segir í erind­inu. 

Í skýrslu vís­inda­nefndar frá árinu 2018 kom fram að greina mætti tölu­verðar veð­ur­fars­breyt­ingar á Íslandi síð­ast­liðna ára­tugi. Einnig var brýnt fyrir mik­il­vægi þess að lagt væri upp úr aðlögun gagn­vart lofts­lags­breyt­ingum. 

Úrkomuákefð

Heim­ildin tók nýlega við­tal við Elínu Björk um áhrif lofts­lags­breyt­inga eftir að nýjasta skýrsla milli­ríkja­nefnda Sam­ein­uðu þjóð­anna birt­ist í mars. 

Þá sagði Elín Björk áhrif lofts­lags­breyt­inga hér á landi birt­ast í auk­inni úrkomu­á­kefð vegna þess að hlýrra loft ber með sér meiri raka. „Og auð­vitað meiri hopun jökla og aukin úrkoma hafa áhrif á skriðu­hættu, hún eykst. Við erum líka að horfa á land­ris vegna jökla­hops­ins og síðan hækkun sjáv­ar­máls ann­ars staðar á land­inu. Það er aðeins mis­mikið sem hlýnar á land­inu.“ 

Einnig sagði Elín Björk. „Það er ekk­ert sem heitir veður án áhrifa frá lofts­lags­breyt­ingum. Grunn­hlýn­unin er orðin það mikil að allt veður sem verður í loft­hjúpnum er undir áhrifum af lofts­lags­breyt­ingum.“

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár