Mölunarverksmiðjan í Þorlákshöfn yrði allt að 60 metrar á hæð

Sex til tíu síló sem rúma 4.000 tonn hvert yrðu reist við mölunar­verksmiðju Heidelberg í Þorláks­höfn ef af fram­kvæmd­inni verður. Tvær stað­setningar eru reifaðar í nýrri mats­áætlun fram­kvæmd­ar­innar, önnur við höfnina og skammt frá íbúabyggð en hin fjær byggð þar sem byggja þyrfti höfn.

40-60 metra há síló. 5-10 þúsund fermetra setlón. Sements­kvörn sem malar milljón tonn á ári. Þrjár milljónir rúmmetra af vatni á ári. Nýjar raflínur og stækkun hafnar – nú eða alveg ný höfn. 

Þetta er meðal þess sem til þyrfti í mölunar­verksmiðju sem þýski sements­risinn Heidelberg hyggst reisa í Þorláks­höfn. Hráefnið, móberg, kæmi úr námum í Þrengslunum, yrði malað í verksmiðjunni og svo flutt út. 

Í mats­áætlun framkvæmdarinnar, sem nú hefur verið lögð fram til kynningar, eru lagðir fram tveir valkostir hvað varðar stað­setningu verksmiðjunnar. Annar er á lóð við höfnina í svonefndri Skötubót, innan þéttbýlis­marka Þorláks­hafnar, í um 600 metra fjarlægð frá byggðinni og um 250 metra frá áformuðum nýjum miðbæ. Hinn kosturinn, Keflavík, er vestan við þéttbýlið en nálægt áformuðu landeldi. Engin höfn er við Keflavík og eru slíkar framkvæmdir, sem eru mjög umfangs­miklar, forsenda þeirrar stað­setningar.

„Mark­miðið er að lækka …
Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jóhannes Baldvinsson skrifaði
    Takk fyrir þessar upplýsingar. Hér ríkir þögnin ein þrátt fyrir fyrirheit um annað. En það er líka einkenni myrkraverka að þau fara fram í felum. Hér er síst þörf á mengandi stóriðju á meðan svo illa er staðið að útflutningi vikurs að allur bærinn er útataður vikurleðju ef hreyfir vind! Og það er eigandi þeirrar starfsemi sem á líka aðkomu að sementsverkefninu. Ég veit ekki hvernig menn sjá fyrir sér að mengandi stóriðja eigi samleið með t.d. fyrirhuguðu landeldi á fiski hér í bænum. Fiskeldisáformin munu reyna á innviðina s.s. vatn og rafmagn. Og vaxandi umsvif flutninga er að fullnýta hafnarmannvirkin. Nema að hér eigi að beita hinu fræga túrbínutrixi að ráðast í of stórar framkvæmdir og heimta svo endurbætur á innviðum. Ég tel það ekki gáfulegt og þannig gengur þessi móbergsverksmiðja ekki upp. Enda flytja menn ekki út heilu fjöllin fyrir lítinn sem engan ábata nema þar sem menning er svo frumstæð að íbúarnir ráða engu. Ég neita að trúa að svo sé komið fyrir Þorlákshafnarbúum þrátt fyrir að gjafir hafi verið bornar á tiltekna hópa sem ekki fæst uppgefið hverjir voru eða hverjir þáðu.
    0
    • Ingibjörg Þorleifsdóttir skrifaði
      Þau eru mörg myrkraverkin hjá íhaldinu.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðefnaiðnaður í Ölfusi

SkýringJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Velgjörðar­menn Elliða hafa bæði hagsmuni af námum í sjó og á landi

Einar Sigurðsson og Hrólfur Ölvisson námu­fjárfestar hafa fjölþættra hagsmuna að gæta af því að mölunar­verksmiðja Heidelberg rísi í Ölfusi og að fyrir­tækið fái að vinna efni af hafsbotni við Landeyjar. Elliði Vignisson segir tilgátur um hagsmuna­árekstra tengda námu­fjár­festunum lang­sóttar. Harðar deilur eru um verksmiðjuna og efnis­tökuna.

8 mín. lestur

FréttirJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Heidelberg reyndi að beita Hafró þrýstingi fyrir opinn íbúafund í Ölfusi

Lögmanns­stofan Logos sendi tölvupóst fyrir hönd Heidelberg með beiðni um að starfs­maður Hafrann­sókn­ar­stofn­unar tæki ekki þátt í opnum íbúafundi í Ölfusi. Starfs­maðurinn hafði unnið rannsókn um áhrif námu­vinnslu fyrir­tækisins á fiskimið og hrygningar­svæði nytja­stofna úti fyrir strönd Ölfuss. Skylda Hafró að upplýsa almenning segir forstjórinn.
FréttirJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Hafró gagnrýnir „fordæma­lausa framkvæmd“ Heidelberg í Ölfusi

Hafrann­sókn­ar­stofnun hefur skrifað gagnrýna umsögn um fyrir­hugaða efnistöku þýska sements­fyrir­tækisins Heidelberg í Ölfusi. Fyrir­tækið ætlar að taka tæp 12 þúsund tonn af efni á dag, eða sem nemur 358 fullestuðum flutninga­bílum, af hafsbotni. Hafró telur framkvæmdina geta haft slæm áhrif á fiskistofna sem hrygna á svæðinu og að efnis­takan geti breytt strand­lengjunni til frambúðar.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár