Mölunarverksmiðjan í Þorlákshöfn yrði allt að 60 metrar á hæð

Sex til tíu síló sem rúma 4.000 tonn hvert yrðu reist við möl­un­ar­verk­smiðju Heidel­berg í Þor­láks­höfn ef af fram­kvæmd­inni verður. Tvær stað­setn­ingar eru reif­aðar í nýrri mats­á­ætlun fram­kvæmd­ar­innar, önnur við höfn­ina og skammt frá íbúa­byggð en hin fjær byggð þar sem byggja þyrfti höfn.

40-60 metra há síló. 5-10 þús­und fer­metra setlón. Sem­entskvörn sem malar milljón tonn á ári. Þrjár millj­ónir rúmmetra af vatni á ári. Nýjar raf­línur og stækkun hafnar – nú eða alveg ný höfn. 

Þetta er meðal þess sem til þyrfti í möl­un­ar­verk­smiðju sem þýski sem­ents­ris­inn Heidel­berg hyggst reisa í Þor­láks­höfn. Hráefnið, móberg, kæmi úr námum í Þrengsl­unum, yrði malað í verk­smiðj­unni og svo flutt út. 

Í mats­á­ætlun fram­kvæmd­ar­innar, sem nú hefur verið lögð fram til kynn­ingar, eru lagðir fram tveir val­kostir hvað varðar stað­setn­ingu verk­smiðj­unnar. Annar er á lóð við höfn­ina í svo­nefndri Skötubót, innan þétt­býl­is­marka Þor­láks­hafnar, í um 600 metra fjar­lægð frá byggð­inni og um 250 metra frá áform­uðum nýjum miðbæ. Hinn kost­ur­inn, Keflavík, er vestan við þétt­býlið en nálægt áform­uðu land­eldi. Engin höfn er við Keflavík og eru slíkar fram­kvæmdir, sem eru mjög umfangs­miklar, for­senda þeirrar stað­setn­ingar.

„Mark­miðið er að lækka …
Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jóhannes Baldvinsson skrifaði
    Takk fyrir þessar upplýsingar. Hér ríkir þögnin ein þrátt fyrir fyrirheit um annað. En það er líka einkenni myrkraverka að þau fara fram í felum. Hér er síst þörf á mengandi stóriðju á meðan svo illa er staðið að útflutningi vikurs að allur bærinn er útataður vikurleðju ef hreyfir vind! Og það er eigandi þeirrar starfsemi sem á líka aðkomu að sementsverkefninu. Ég veit ekki hvernig menn sjá fyrir sér að mengandi stóriðja eigi samleið með t.d. fyrirhuguðu landeldi á fiski hér í bænum. Fiskeldisáformin munu reyna á innviðina s.s. vatn og rafmagn. Og vaxandi umsvif flutninga er að fullnýta hafnarmannvirkin. Nema að hér eigi að beita hinu fræga túrbínutrixi að ráðast í of stórar framkvæmdir og heimta svo endurbætur á innviðum. Ég tel það ekki gáfulegt og þannig gengur þessi móbergsverksmiðja ekki upp. Enda flytja menn ekki út heilu fjöllin fyrir lítinn sem engan ábata nema þar sem menning er svo frumstæð að íbúarnir ráða engu. Ég neita að trúa að svo sé komið fyrir Þorlákshafnarbúum þrátt fyrir að gjafir hafi verið bornar á tiltekna hópa sem ekki fæst uppgefið hverjir voru eða hverjir þáðu.
    0
    • Ingibjörg Þorleifsdóttir skrifaði
      Þau eru mörg myrkraverkin hjá íhaldinu.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðefnaiðnaður í Ölfusi

ÚttektJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Útivist og iðn­aður: Ferða­svæði höf­uð­borg­ar­búa í hættu

Þrátt fyrir mik­il­vægi úti­vistar fyrir lík­ama og sál hefur verið gengið á ýmsa staði sem íbúar höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins sækja. Heim­ildin skoð­aði úti­vist­ar­svæði í nágrenni höf­uð­stað­ar­ins sem hafa þurft að lúta í lægra haldi fyrir námu­vinnslu, bor­holupöllum og fyr­ir­hug­uðum vind­orku­görðum.

16 mín. lestur

SkýringJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Vel­gjörð­ar­menn Elliða hafa bæði hags­muni af námum í sjó og á landi

Einar Sig­urðs­son og Hrólfur Ölvisson námu­fjár­festar hafa fjöl­þættra hags­muna að gæta af því að möl­un­ar­verk­smiðja Heidel­berg rísi í Ölfusi og að fyr­ir­tækið fái að vinna efni af hafs­botni við Land­eyjar. Elliði Vign­is­son segir til­gátur um hags­muna­á­rekstra tengda námu­fjár­fest­unum langsóttar. Harðar deilur eru um verk­smiðj­una og efn­is­tök­una.

8 mín. lestur

SkýringJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Stóriðja og land­eldi takast á í eitr­uðu andrums­lofti í Ölfusi

Miklar deilur eru komnar upp í við­skipta- og stjórn­mála­líf­inu í sveit­ar­fé­lag­inu Ölfusi um möl­un­ar­verk­smiðju þýska fyr­ir­tæk­is­ins Heidel­berg. Íbúa­kosn­ingu um möl­un­ar­verk­smiðj­una hefur verið frestað vegna gagn­rýni frá land­eld­is­fyr­ir­tæk­inu First Water sem telur verk­smiðj­una skað­lega fyrir starf­semi þess.

10 mín. lestur

FréttirJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Heidel­berg reyndi að beita Hafró þrýst­ingi fyrir opinn íbúa­fund í Ölfusi

Lög­manns­stofan Logos sendi tölvu­póst fyrir hönd Heidel­berg með beiðni um að starfs­maður Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar tæki ekki þátt í opnum íbúa­fundi í Ölfusi. Starfs­mað­ur­inn hafði unnið rann­sókn um áhrif námu­vinnslu fyr­ir­tæk­is­ins á fiski­mið og hrygn­ing­ar­svæði nytja­stofna úti fyrir strönd Ölfuss. Skylda Hafró að upp­lýsa almenn­ing segir for­stjór­inn.
FréttirJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Hafró gagn­rýnir „for­dæma­lausa fram­kvæmd“ Heidel­berg í Ölfusi

Haf­rann­sókn­ar­stofnun hefur skrifað gagn­rýna umsögn um fyr­ir­hug­aða efn­is­töku þýska sem­ents­fyr­ir­tæk­is­ins Heidel­berg í Ölfusi. Fyr­ir­tækið ætlar að taka tæp 12 þús­und tonn af efni á dag, eða sem nemur 358 ful­lest­uðum flutn­inga­bílum, af hafs­botni. Hafró telur fram­kvæmd­ina geta haft slæm áhrif á fiski­stofna sem hrygna á svæð­inu og að efn­istakan geti breytt strand­lengj­unni til fram­búðar.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár