Spilling í sjónvarpinu: Er þetta streð til einhvers?

Ítölsku sjónvarps­seríurnar 1992 og 1993 eru fyrirmyndar­sjónvarp sem vekur ýmsar spurningar um tengsl sjón­varpsins og kannski afþreyingar­iðnaðarins í heild við stjórnmál og spillingu í samfélaginu.

Ég hef verið að horfa undan­farið á ítölsku sjónvarps­seríurnar 1992 og 1993. Þegar þeirri seinni lýkur þá þarf ég að leita uppi einhverja streymis­veitu sem sendir út þá þriðju sem nefnist – ótrúlegt nokk – 1994. Þarna er nefnilega á ferð fyrirmyndar­sjónvarp og vekur líka ýmsar spurningar um tengsl sjón­varpsins og kannski afþreyingar­iðnaðarins í heild við stjórnmál og spillingu í samfélaginu.

Í örstuttu máli fjalla seríurnar allar um miklar samfélags­byltingar sem urðu (eða virtust verða) á Ítalíu snemma á síðasta áratug 20. aldar. Ítalskt stjórnmálalíf hafði áratugum saman verið í hálf­gerðri upplausn, spilling óð upp og allir vissu að stjórn­mála­flokkarnir – ekki síst þeir stærstu, Kristilegir demó­kratar og Sósíal­istar – voru gegnum­étnir af spillingunni.

„Hreinar hendur“

Hinn öflugi Kommúnista­flokkur Ítalíu var líka í tómu tjóni eftir upplausn Sovét­ríkjanna. Popúlískar og fasískar hreyfingar óðu uppi og lokkuðu til sín stuðnings­menn í ljósi þess að hinir hefð­bundnu stjórn­málaflokkar væru …

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár