Njáls saga Einars Kárasonar – með Flugumýrartvisti

Leik­hús­fræð­ing­ur­inn Jakob S. Jónsson skellti sér í Borg­ar­nes og sá Einar Kárason í Land­náms­setr­inu.

Njáls saga Einars Kárasonar – með Flugumýrartvisti
Leikhús

Náls­brennu­saga og flugu­mýr­ar­t­vist

Höfundur Óþekktur (Sturla Þórðarson?)

Sögugerð og flytjandi: Einar Kárason

Landnámssetur Íslands
Gefðu umsögn

Því verður ekki neitað að Njáls saga er einn helsti menn­ing­ar­arfur okkar Íslend­inga, ásamt auð­vitað öðrum Íslend­inga­sögum. Þar að auki telj­ast Íslend­inga­sögur okkar fram­lag til heims­bók­mennt­anna, ein­stakar í sinni röð. En Njála er í ákveðnum sér­flokki umfram aðrar Íslend­inga­sögur. Hún er þeirra lengst, sögu­þráð­ur­inn flókn­ari og per­sónur fleiri en taldar verða með góðu móti og hafa sumar verið til í raun og veru en aðrar skáld­aðar upp til að þjóna hags­munum sög­unnar.

Njála á það sam­eig­in­legt með öðrum Íslend­inga­sögum að hafa varð­veist í munn­legri geymd fram að því að hún var fest á bók­fell, trú­lega í byrjun 13. aldar. Þá hefur skrá­setj­ari – eða höf­undur hennar, sá sem Halldór Laxness kall­aði X vegna þess að hans gætti ekki sög­unni en væri hlut­laus og hlé­drægur gagn­vart atburðum hennar – púslað sög­unni saman í skáld­lega frá­sögn og séð svo um að hún yrði læsi­leg og skilj­an­leg les­anda. Fyrir ritun sög­unnar hefur sögu­maður aftur á móti þurft að gæta að því að sagan vekti áhuga hlust­anda – en það er hvor sín listin, að setja saman skáld­sögu fyrir les­anda eða segja sömu sögu hlust­anda.

Nú hefur Einar Kárason, sem er bæði rit­höf­undur og sagna­maður, ráð­ist í það þrek­virki að segja Njáls sögu af munni fram í Land­náms­setri og gerir það á nær sléttum tveimur klukku­stundum. Það felur í sér tals­verða stytt­ingu á sög­unni, sam­an­borið við rit­aða útgáfu hennar, því það tekur rúmar sextán klukku­stundir að lesa Njálu upp­hátt frá upp­hafi til enda.

Þrek­virki Einars er því ekki aðeins fólgið í að segja sög­una, heldur einnig að stytta hana svo miðað við rit­uðu útgáf­una, að hún verði skilj­an­leg þeim sem á hlýðir og þá verður að hafa í huga að áheyr­endur nútím­ans taka trú­lega allt öðrum tökum þá list að hlusta miðað við þá sem hlust­uðu á sagna­menn segja sög­una áður en hún var fest á bók­fell.

En hér reynir líka á sögu­mann. Hann getur valið um mis­mun­andi frá­sagn­ar­tækni­leg sjón­ar­horn, sem hafa hvert um sig mis­mun­andi áhrif á áheyr­endur hans og skiln­ing þeirra á sög­unni. Í grófum dráttum getur hann valið að segja sög­una eins og um væri að ræða ein­leik, sem krefst þess að hver per­sóna sög­unnar sé skil­greind og henni ljáð sér­kenni andar, óðs, lás og litar. (Gísli Rúnar heit­inn gerði það þegar hann flutti sem ein­leik í hljóð­varpi sög­una Babbitt eftir Sinclair Lewis – dálítið krafta­verk, sem lifir í minn­ing­unni). Þegar um Njáls sögu er að ræða væri það örugg­lega óvinn­andi vegur – per­sónur hennar nema hund­ruðum og koma flestar aðeins stutt­lega við sögu og örugg­lega ofverk leik­ara að gera þeim skil og trú­lega einnig ofverk áheyr­enda og áhorf­enda að henda reiður á öllum þeim mann­fjölda. Kannski mætti skera sög­una niður, en spurn­ing hvort slík stýf­ing gæti skilað sög­unni á full­nægj­andi hátt. Auk þess er Einar Kárason sagna­maður, ekki leik­ari og skyn­sam­legt af honum að fara ekki út á neina slíka braut.

„Og þegar Einar fer í seinni hluta sög­unnar að bera saman Njáls­brennu og brenn­una á Flugu­mýri, sem um getur í Sturl­ungu, þá kemst frá­sagn­ar­listin á flug og sögu­mað­ur­inn lifnar við.“

Annar kostur sögu­manns í stöð­unni er að gera sög­una að sinni og segja hana eins og hann væri höf­undur hennar. Það eru vel­þekkt vinnu­brögð sagna­manna og einmitt þau list­rænu tök að segja sög­una eins og hún kæmi frá eigin brjósti auð­velda sögu­manni að fanga og halda athygli áheyr­enda, hann gefur sög­unni ákveð­inn karakter en per­sónur hennar fá ekki sér­stök ein­kenni umfram það sem þjónar atburða­rásinni.

Sú leið væri að mínu viti sú leið sem heppi­leg­ast hefði verið að Einar kysi sér, og hann gerir það að vissu marki, en fer ekki alla leið. Það hendir of oft að orka hans fari í að rifja sög­una upp, líkt og hann væri að sýna og sanna að hann muni sög­una, en sé ekki að segja hana. Ég vona að það eigi eftir að rjátla af honum þegar hann verður búinn að flytja sög­una nokkrum sinnum, því þar sem honum tekst að glæða sög­una því lífi að hún ein­kenn­ist af önd, óði, lá og litu Einars sjálfs lifnar hún við og nær góðum og þéttum tökum á áheyr­endum. Og þegar Einar fer í seinni hluta sög­unnar að bera saman Njáls­brennu og brenn­una á Flugu­mýri, sem um getur í Sturl­ungu, þá kemst frá­sagn­ar­listin á flug og sögu­mað­ur­inn lifnar við – enda er hann þá að segja þá sögu sem hann ber sjálfur ábyrgð á. Og henni trúum við alveg í botn og án efa­semda, hvað sem fræð­ingar (aðrir en Einar) hafa um það sagt. Og þá hefur sögu­maður náð til­gangi sínum.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár