Fyrri aukaspurning:
Hér er yfirlitsmynd af frægri sjóorrustu. Floti sem hér er sýndur með rauðu leggur úr höfn í firði einum og hyggst sigla sem leið liggur yfir að landinu hægra megin á myndinni og raunar lengra. En öðrum flota (hér sýndur með svörtu) hefur borist njósn af og mætir rauða flotanum á hafi úti og hófst þá harður slagur. Orrustunni lauk án þess að hvorugum flota tækist að vinna afgerandi sigur á hinum. Hvað kallast orrustan?
***
Aðalspurningar:
1. Jennifer Aniston varð fræg fyrir að leika í ... hvaða sjónvarpsseríu?
2. Hvaða ættarnafn ber breska konungsfjölskyldan?
3. Dramb er ... hvað?
4. Sauerkraut er víðfrægur þýskur réttur. Hvað er uppistaðan í honum?
5. Hvaða viðurkenningu fékk veitingahúsið Dill árið 2017, fyrst íslenskra veitingahúsa?
6. Hvað heitir hringtorgið stóra fyrir framan Hótel Sögu í Reykjavík?
7. Hvernig fugl er langvía?
8. Hvað heitir litla álfastúlkan sem kemur við sögu Péturs Pan — á íslensku?
9. Hvaða svissneska súkkulaði var í áratugi tákn munaðar og framandleika á Íslandi af því eingöngu var hægt að kaupa það í fríhöfninni við komu frá útlöndum?
10. Péturshorn er hæsti tindur á tilteknu fjalli, felli, jökli, gnúpi eða bjargi, 1.355 metra hátt. Hvar er Péturshorn?
***
Seinni aukaspurning:
Önnur sjóorrusta. Floti A (rauður) taldi sig hafa ráð flota B (blár) í hendi sér. Meginfloti A þokaði sér inn í sund þar sem floti B virtist í úlfakreppu. Á sama tíma hélt minnihluti flota A inn í sundið hinum megin frá til að stöðva (væntanlegan) flótta skipanna úr flota B. En allt snerist í höndum flota A. Skipin úr flota B voru mun liðugri og liprari og gjörsigruðu flota A á sundinu. Hvað kallast þessi sjóorrusta?

***
Svör við aðalspurningum:
1. Friends.
2. Windsor.
3. ... falli næst.
4. Hvítkál.
5. Michelin-stjörnu.
6. Hagatorg.
7. Svartfugl.
8. Skellibjalla.
9. Toblerone.
10. Á Langjökli.
***
Svör við aukaspurningum:
Fyrra kortið sýnir orrustuna á Húnaflóa, sem kallast Flóabardagi. Suður snýr upp á þessari mynd.
Á neðra kortinu er yfirlit yfir orrustuna við Salamis 480 f.Kr. þar sem Grikkir gereyddu flota Persa.
Sérðu villu? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.














































Athugasemdir