Leggja til að ríkið greiði fyrir söfnun á týndum veiðarfærum

Um 94% af öllu rusli á sjáv­ar­botni við strendur Íslands eru veið­ar­færi. Þrátt fyrir þetta mikla magn hafa íslenskar útgerðir nán­ast aldrei til­kynnt týnd veið­ar­færi eins og þeim ber að gera sam­kvæmt lögum.

Leggja til að ríkið greiði fyrir söfnun á týndum veiðarfærum

Starfs­hópar á vegum mat­væla­ráðu­neyt­is­ins telja að það sé letj­andi fyrir sjáv­ar­út­veg­inn að til­kynna týnd veið­ar­færi í sjó þar sem þeir þurfi að greiða fyrir að sækja þau sé það til­kynnt. Frá því að lög um nytja­stofna sjávar frá 1996 voru sett hafa útgerðir aldrei til­kynnt týnd veið­ar­færi í land­helgi Íslands. Um 94% af öllu rusli á hafs­botni við strendur lands­ins eru veið­ar­færi. Um er að ræða bráða­birgða­til­lögur frá starfs­hóp­unum.

Telja núverandi kerfi letjandi

Í hug­myndum hóps­ins kemur fram að núver­andi lög hafi letj­andi áhrif á að fiski­skip til­kynni týnd veið­ar­færi, þar sem þau þurfi að greiða allan kostnað við að þau séu aftur sótt. Í kynn­ing­unni kemur fram dæmi frá Noregi þar sem fiski­skip til­kynni, í gegnum snjall­símafor­rit, týnd veið­ar­færi og að norska ríkið sæki þau svo þeim að kostn­að­ar­lausu. 

„Dæmi frá Noregi þar sem til­kynnt er um töpuð veið­ar­færi með appi og svo fara yfir­völd og safna þeim saman í stórum leið­angri. Kostn­að­ur­inn lendir á rík­inu,“ segir í kynn­ingu starfs­hópanna. 

Mælir því starfs­hóp­ur­inn að norska leiðin verði tekin upp hér á landi. Þetta stað­festir Gréta María Grét­ars­dóttir, for­maður starfs­hóps um umgengni.

Íslenskur sjávarútvegur nánast aldrei týnt veiðarfærum

Samkvæmt reglu­gerðum sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra ber fiski­skipum að til­kynna til Land­helg­is­gæsl­unnar ef þau týna veið­ar­færum í sjó­inn. Svo virð­ist sem íslenskur sjáv­ar­út­vegur standi sig betur en flestar aðrar þjóðir, því engar til­kynn­ingar um týnd veið­ar­færi hafa borist Land­helg­is­gæsl­unni frá því að reglu­gerðir sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra voru sam­þykktar. Frá árinu 2016 hafa ein­göngu tvö til­felli verið skráð hjá Fiski­stofu, en þær til­kynn­ingar komu ekki frá útgerð­unum sjálfum, heldur frá eft­ir­lits­mönnum Fiski­stofu sem voru um borð í skip­unum þegar veið­ar­færin týnd­ust.

Týni fiski­skip veið­ar­færum, og sækja þau ekki sjálf, skulu þau vera sótt á kostnað útgerð­ar­innar sem gerir út skipið. Veið­ar­færi finn­ast víða um strendur lands­ins og hefur meðal ann­ars Tómas Knútsson, stofn­andi Bláa hers­ins, hefur fundið gíf­ur­legt magn af veið­ar­færum í sínu hreins­un­ar­starfi um strandir lands­ins. Erfitt er að vita hvaðan lang stærstur hluti þeirra koma, hvort um sé að ræða veið­ar­færi af íslenskum skipum eða erlendum, þar sem stærstur hluti veið­ar­fær­anna sem hann finnur er ekki merktur neinni útgerð eða að merk­ingar hafi dottið af eða afmáðst. Engar reglur eru um gæði merk­inga á veið­ar­færum. Finnist hins vegar veið­ar­færi sem eru merkt ber eig­anda veið­ar­fær­anna að greiða fyrir söfnun á þeim. Ný reglu­gerð var sam­þykkt af sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra árið 2020, sem gerir útgerðum skylt að merkja veið­ar­færi sín á þremur stöðum í stað eins staðar sem gamlar reglu­gerðir sögðu til um. Er talið að með þeirri breyt­ingu megi rekja veið­ar­færi á auð­veld­ari máta sem finn­ast á ströndum lands­ins og fjar­lægja þau á kostnað þeirrar útgerðar sem er merkt veið­ar­fær­unum. Enn hefur þó ekki verið sett í reglu­gerð hvernig skal reikna út kostnað við að fjar­lægja veið­ar­færi, sem eru merkt útgerðum, af ströndum lands­ins. Mikill kostn­aður getur verið að því að flytja þung veið­ar­færi af ströndum sem ekki eru nálægt vegum eða byggð og oft þarf sér­hæfðan búnað í þau verk­efni. Starfs­hópar ráðu­neyt­is­ins vilja leggja enn frek­ari áherslur á merk­ingar. 

Sjávarútvegurinn borgar ekki Úrvinnslugjald 

Árið 2005 gerðu LÍÚ, nú SFS, og Úrvinnslu­sjóður sín á milli samn­ing þess efnis að ekk­ert úrvinnslu­gjald sé lagt á veið­ar­færi. Úrvinnslu­gjald er lagt á marga vöru­flokka, svo sem umbúðir, dekk og bif­reiðar. Er þetta úrvinnslu­gjald svo notað til þess að greiða fyrir úrvinnslu á úrgang­inum sem end­ur­vinnslu­fyr­ir­tækja safna og senda áfram í end­ur­vinnslu eða end­ur­nýt­ingu. Í stað þess að greiða úrvinnslu­gjaldið á SFS að sjá um söfnun og úrvinnslu á öllum veið­ar­færum úr gervi­efnum á land­inu. Markmið var sett í samn­ing­inn um að minnsta kosti 60% af öllum veið­ar­færum skulu vera safnað saman og komið í end­ur­vinnslu. Samkvæmt tölum frá Umhverf­is­stofnum hefur þetta mark­mið ekki nást öll árin.

Mikið af veið­ar­færum urðuðMörg þús­und tonn af veið­ar­færum hafa verið urðuð hjá Sorpu á Álfsnesi undnaf­arin ár. Mikið af þessum veið­ar­færum eru keyrð langar vega­lengdir til þess eins að urða þau. Ekkert í samn­ingi SFS við Úrvinnslu­sjóð bannar urðun veið­ar­færa.

Nýr samningur hjá ráðherra í meira en ár.

Árið 2021 sam­þykkti stjórn Úrvinnslu­sjóðs nýjan samn­ing við SFS. Litlar breyt­ingar voru á þeim samn­ingi og frá árinu 2005. Umhverf­is­stofnun gerði tvær umsagnir um þennan nýja samn­ing og var nið­ur­staða stofn­un­inar að hann stæð­ist ekki lög. Þrátt fyrir þessar umsagnir hefur hann ekki verið end­ur­skoð­aður. Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar ætlar Guð­laugur Þór Þórðason, umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra, að sam­þykja samn­ing­inn án nokk­urra breyt­inga með til­liti til umsagna Umhverf­is­stofn­unar. 

Þá tóku gildi um ára­mótin ný lög um fram­leið­enda­á­byrgð, sem skil­yrða fyr­ir­tæki að standa undir þeim kostn­aði sem verður vegna úrvinnslu á vörum sem þeir fram­leiða, þar hefur sjáv­ar­út­veg­ur­inn einnig fengið að sleppa út af sínum sér­samn­ingi við ríkið, sem er óupp­segj­an­legur nema að brot eigi sér stað. Samn­ing­ur­inn hefur margoft verið brot­inn af SFS, þrátt fyrir það hefur samn­ingnum aldrei verið sagt upp af Úrvinnslu­sjóði, en SFS er með stjórn­ar­með­lim í stjórn sjóðs­ins þrátt fyrir að greiða nán­ast ekk­ert Úrvinnslu­gjald til sjóðs­ins.

Um 94% af öllu rusli á hafsbotni eru veiðarfæri

Frá árinu 2004 hefur Haf­rann­sókna­stofnun kort­lagt hafs­botn­inn við strendur Íslands. Við þessa kort­lagn­ingu hafa mynda­vélar stofn­un­ar­innar þá á sama tíma gripið myndir af gríð­ar­legu miklu magni af rusli á hafs­botni við strendur lands­ins. Allt að 94% af öllu rusli sem stofn­unin fann voru veið­ar­færi frá sjáv­ar­út­veg­inum. Lang­mesta ruslið frá sjáv­ar­út­veg­inum mátti finna við Reykja­nesskaga. Langstærstur hluti veið­ar­færa er úr plasti og getur það tekið mörg hund­ruð ár fyrir þau að brotna niður. Þegar þau loks byrja að brotna niður mynd­ast örplast sem fiskar og önnur sjáv­ar­dýr borða, sem endar svo á diskum lands­manna. Nýjustu rann­sóknir sýna að mikið magn af plasti má finna í nán­ast öllum teg­undum sjáv­ar­dýra við stendur Íslands.

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kári Jónsson skrifaði
    Þessi lög einsog mörg önnur eru án viðurlaga, það er eðlilegt og sjálfsagt að ríkistyrkta-einokunar-útgerðin verði svipt veiðileyfi ef lög eru brotin, það væri jákvæð hvatning til að ganga vel um auðlindina. Hinsvegar er fáránlegt að skattgreiðendur séu rukkaðir fyrir úrvinnslu/förgunargjald veiðarfæra ríkistyrktu-einokunar-útgerðanna, þegar stjórnmála-fólkið telur við hæfi á sama tíma að rukka þessa útgerð um smánar-gjald fyrir veiðiréttinn á Íslandsmiðum, eiga viðskipti með aflaheimildir almennings, sem og að fá að hafa óslitna-virðiskeðju.
    1
  • Gudmundur Einarsson skrifaði
    Fyrir 40 árum setti Hampiðjan í samvinnu við þýska og hollenska aðila upp endurvinnslu á notuðum veiðarfærum. Þar voru net endurunnin í stórum stíl og afurðin var nylon og blý, það má ekki gleyma öllum þeim tonnum af blýi sem liggja á sjávarbotninum og dreifast um lífríkið ásamt örplasti. Hvað varð um þetta framtak?
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Endurvinnsla á Íslandi

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár