Konur eða kvár verði þriðji hver skipverji

Finna á útgerð sem er til­búin að gera út tog­ara þar sem að lág­marki þriðj­ungur skip­verja eru konur eða kvár sam­kvæmt til­lögum Auð­lind­ar­innar okkar. Mikið skortir á þegar kemur að jafn­rétt­is­málum í sjáv­ar­út­vegi.

Konur eða kvár verði þriðji hver skipverji
Verða að taka sig á Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir, fram­kvæmda­stýra SFS, segir að sjáv­ar­út­veg­ur­inn verði að taka sér tak í jafn­rétt­is­málum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Í til­lögum starfs­hópa Auð­lind­ar­innar okkar er lagt til að ýtt verði úr vör verk­efni sem nefnt er „Stolt siglir fleyið mitt“. Það inni­beri að fundið verði áhuga­samt útgerð­ar­fé­lag til sam­starfs um það verk­efni að konur eða kvár verði að minnsta kosti þriðj­ungur skip­verja á tog­ara við­kom­andi útgerð­ar­fé­lags, í fyrsta skipti í sögu íslensks sjáv­ar­út­vegs.

Umrædd til­laga er hluti kafla í til­lögum starfs­hópanna þar sem fjallað er um starfs­um­hverfi í sjáv­ar­út­vegi. Meðal þeirra þátta sem fjallað er um þar er jafn­rétti. Vísað er í skýrsl­una Staða kvenna í sjáv­ar­út­vegi árið 2021, þar sem meðal ann­ars koma fram upp­lýs­ingar um hlut­fall kvenna í til­teknum störfum hjá sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum.

Í rúmum tíu pró­sentum sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja starfar engin kona. Mjög hallar á konur þegar kemur að störfum til sjós og sömu­leiðis þegar um er að ræða stjórn­enda­störf í landi. Þó hefur konum í störfum milli­stjórn­enda fjölgað und­an­farin ár og voru sam­kvæmt rann­sókn­inni konur starf­andi sem slíkir í 47 pró­sent fyr­ir­tækj­anna.

„Þetta á eftir að koma í bakið á ykkur“
Klemens Hjartar
ráð­gjafi og með­eig­andi McKinsey og co. um vöntun á konum í stjórn SFS.

Hjá fjórð­ungi sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja voru konur í stöðu fram­kvæmda­stjóra og í rúmum 16 pró­sentum til­vika voru þær æðstu stjórn­endur fyr­ir­tækj­anna.  

Ekki ein einasta kona í stjórn SFS

Þá er til­greint að veru­lega athygli hafi vakið á síð­asta árs­fundi fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS), 12. maí á síð­asta ári, var engin kona kjörin í stjórn. Allir 19 stjórn­ar­menn voru karlar.

„Það sló mig svo­lítið þegar ég kom hérna í dag og frétti að nú væri komin ný stjórn SFS. Það er 19 manna stjórn og þar eru núll konur í stjórn­inni. Iðn­aður sem ætlar að halla sér fram og breyta heim­in­um, búa til aðgrein­an­leika, getur ekki hagað sér svo­leið­is. Þetta er algjör­lega for­kast­an­legt og það liggur mér á hjarta, af því að nú vinn ég við að ráð­gefa fyr­ir­tækjum út um allan heim, þetta er ekki hægt. Þetta á eftir að koma í bakið á ykk­ur,“ sagði Klemens Hjartar, ráð­gjafi og einn með­eig­anda McKinsey og co. í erindi sem hann hélt á árs­fund­inum.

Klem­ens sagð­ist vona að atvinnu­greinin fari að skilja að þetta gangi virki­lega ekki. „Ef þetta gerð­ist ein­hvers staðar ann­ars staðar í venju­legu fyr­ir­tæki sem er með þennan metnað sem hægt er að hafa hér, þá væri það bara alls ekki ásætt­an­leg­t.“

„Þarna verðum við að taka okkur tak“
Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir
fram­kvæmda­stýra SFS, um jafn­rétti í sjáv­ar­út­vegi.

Á sama fundi sagði Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri SFS, að henni hefði þótt vænt um það að Klem­ens hefði, með þessum orðum sínum, stungið á kýlin þegar kæmi að jafn­rétt­is­málum í sjáv­ar­út­vegi. „Þarna verðum við að taka okkur tak. Það er ekki neinn annar en við sjálf sem eigum að gera betur þar. Það sama á kannski við um þegar talað er um eign­ar­hald og kyn­slóða­skipti. Og það er nú einu sinni þannig að eng­inn kemst hjá kyn­slóða­skipt­um. Þannig er ein­fald­lega tím­ans hjól. Næstu ár eru ár umbreyt­inga í sjáv­ar­út­vegi. Það verða áskor­anir í þessum kyn­slóða­skipt­um. Við þurfum að gera það vel og við þurfum að gera það í góðu sam­tali við sam­fé­lag­ið.“

Í til­lögum starfs­hópanna er í þessu sam­hengi lagt til að gild­is­svið lög­gjafar um kynja­kvóta í stjórnum verði útvíkkað svo skylda um hlut­föll kynja nái til hags­muna- og félaga­sam­taka yfir ákveð­inni stærð. Í lögum um einka­hluta­fé­lög og hluta­fé­lög er nú sú skylda lögð á félög þar sem fleiri en 50 starfs­menn starfa að jafn­aði og fleiri en þrír eru í stjórn, að hlut­fall hvors kyns fyrir sig sé ekki lægra en 40 pró­sent. Þetta vilja starfs­hóp­arnir að verði látið gilda um hags­muna- og félaga­sam­tök einnig, þó með þeirri breyt­ingu að eitt kyn, karl, kona eða kvár, skuli ekki vera hærra hlut­fall stjórnar en 60 pró­sent.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Tillögur Auðlindarinnar okkar

Starfshópar Svandísar leggja til að auðlindaákvæði verði lögfest í stjórnarskrá
ÚttektTillögur Auðlindarinnar okkar

Starfs­hópar Svan­dísar leggja til að auð­linda­á­kvæði verði lög­fest í stjórn­ar­skrá

Hóparnir sem mat­væla­ráð­herra skip­aði til að end­ur­skoða sjáv­ar­út­vegs­kerfið hafa skilað bráða­birgða­nið­ur­stöðum. Þeir ætla að skila end­an­legum nið­ur­stöðum í maí. Á meðal þeirra breyt­inga sem þeir leggja til er að skrá öll við­skipti með kvóta í opinn gagna­grunn, að hækka eða breyta inn­heimtu auð­linda­gjalda og ráð­ast í breyt­ingar á skil­grein­ingum á tengdum aðilum.
Byggðakvóti fari þangað „sem veiðar og vinnsla eiga framtíð fyrir sér“
FréttirTillögur Auðlindarinnar okkar

Byggða­kvóti fari þangað „sem veiðar og vinnsla eiga fram­tíð fyrir sér“

Í til­lögum starfs­hópa Auð­lind­ar­innar okkar er gert ráð fyrir að almennur byggða­kvóti verði aflagður. Honum verði í þess stað bætt við strand­veiðar og sér­tækan byggða­kvóta. Sértækum byggða­kvóta verði ráð­stafað á færri staði en nú og Byggða­stofnun leggi mat á hvaða svæði eigi fram­tíð fyrir sér í veiðum og vinnslu.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár