„Ég átti nánast ekkert“

„Ef ég hefði ekki getað fengið örorku­bætur þegar ég þurfti þær þá hefði ég ekki getað lifað af,“ segir Haraldur Ingi Þor­leifs­son, sem var næst­hæstur á lista yfir launa­hæstu menn lands­ins. Það sé gott að geta gefið aftur til sam­fé­lags­ins.

„Ég átti nánast ekkert“
Haraldur Ingi Þor­leifs­son Er hér ásamt dóttur sinni. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Það er auð­veld­ara að lifa með hærri tekjur en lægri. En það er samt alltaf erfitt að vera til,“ segir Haraldur Ingi Þor­leifs­son. Hann er í öðru sæti á lista yfir launa­hæstu Íslend­ing­ana, en mán­að­ar­laun hans námu rúmum 102 millj­ónum króna í fyrra sam­kvæmt greiddu útsvari. Tekj­urnar má rekja til sölu á hönn­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Uneo til Twitter í fyrra. 

Gott að geta lagt sitt af mörkum

Haraldur ákvað að greiða skatta hér á landi til þess að leggja sitt af mörkum til sam­fé­lags­ins sem ól hann af sér. „Ég ólst upp í verka­manna­fjöl­skyldu og með lík­am­lega fötlun. Ef það hefði ekki verið ókeypis menntun og heil­brigð­is­kerfi hérna þá hefði lífið mitt verið allt öðru­vísi. Ef ég hefði ekki getað fengið örorku­bætur þegar ég þurfti þær þá hefði ég ekki getað lifað af.“ 

592,4
millj­ónir króna
greiddi Haraldur í skatta á síð­asta ári

Hann segir að það sé því gott að geta lagt sitt af mörkum með því að greiða svo háa skatta. „Við rekum skól­ana okkar, sjúkra­hús, vel­ferð­ar­kerfi og allt annað með sköttum og það er frá­bært að geta lagt sitt af mörkum til að bæta þessar stoðir í sam­fé­lag­inu.“

Er sælla að gefa en þiggja? „Það væri best að við myndum líta á okkur sem eina heild. Við erum ekki að gefa eða þiggja, við erum að passa upp á hvert annað. Við þurfum öll stundum hjálp og við getum öll stundum hjálpað.“

Aðspurður hvort hann hafi ekki áhyggjur af því að klára pen­ing­ana, segir hann: „Ég átti nán­ast ekk­ert í langan tíma. Sú til­finn­ing er ekki góð, að vita ekki hvort maður eigi nóg til að borða út mán­uð­inn eða borga leigu. Þannig að það er alltaf eitt­hvað sem kemur upp í hug­ann, að það gæti gerst aftur. En akkúrat núna er það ekki eitt­hvað sem ég hef miklar áhyggjur af.“

Þarf að hafa minni áhyggjur

Inntur eftir því hvað hafi breyst með auknum tekjum, seg­ist hann hafa verið nokkuð vel stæður fjár­hags­lega í að nálg­ast ára­tug. Ef tek­inn hefði verið saman listi yfir tekju­hæstu Íslend­ing­ana á árum áður hefði hann lík­lega verið á honum í nokkur ár þegar hann var yngri. „Peningar hjálpa við að taka burt ýmsar áhyggjur og opna á nýja mögu­leika.“

Best er áhyggju­leysið sem fylgir því. „Ég þarf að hafa minni áhyggjur af mörgu. Ég þarf ekki að velta því fyrir mér hvort börnin mín geti borðað, hvort við eigum fyrir leig­unni. Og ef ég fæ ein­hverja hug­mynd sem mig langar til að fram­kvæma þá er ekki ólík­legt að ég geti fjár­magnað hana.“

„Það er mik­ill munur á því að borga 40 pró­sent af 100 þús­und­kalli eða 40 pró­sent af milljón“

Hvort færðu meiri ánægju af fjár­hags­legum afrakstri vinn­unnar eða vinn­unni sem slíkri? „Það fer eftir því við hvað ég er að vinna. Sumt sem ég geri er fyrst og fremst gert til að hafa tekjur, það er vinna í sama skiln­ingi og þegar afi minn var dúk­ari og vann til að fæða fjöl­skyld­una sína. Annað sem ég vinn við geri ég tekju­laust og fæ þá ánægju af vinn­unni sem slíkri.“ 

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (15)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Gabriel Bragason skrifaði
    Góð fyrirmynd,
    0
  • Anna Bjarnadóttir skrifaði
    Þú ert til fyrirmyndar Haraldur! Rödd þín er sterk, haltu áfram að nota hana til stuðnings fatlaðs fólks og til að uppræta fátækt á Íslandi. Aðgengi fyrir alla er gott fyrir alla, veitir öllum aðgang að samfélaginu og er meira að segja líka mjög áhrifamikið til uppbyggingar sjálfbærrar ferðaþjónustu til langs tíma.
    0
  • ET
    Emil Thorarensen skrifaði
    Góð fyrirmynd, hann Haraldur Ingi Þorleifsson, sem þakkar réttilega fyrir aðstoð sem samfélagið veitti honum þegar á þurfti að halda í lífsins ólgusjó.
    0
  • Rakel Egilsdóttir skrifaði
    Góður maður.Það meira margir hugsa eins og hann🙏🥰🙏
    0
  • Elmar Sigurdsson skrifaði
    flottur karl þessi maður - en sennilega eina eintakið á íslandi af þessum ríku mönnum sem gerir þetta fyrir samfélagið sitt
    0
  • ÁGS
    Ásgeir Grétar Sigurðsson skrifaði
    Hversu margir í sporum Haraldar Inga hefðu ekki stokkið á græðgisvagninn. Leitun að jafn heilbrigðri samfélagssýn.
    1
  • Jónsson Höskuldur skrifaði
    Það hlustar eingin kanski hlustar þú góði maður .
    Mín hugmynd er að bynda lagmarkslaun í lög og setja í stjórnarskrað og miða þá við hastarréttAR LAUN EÐA AÐ ALDREI VERÐI bORGUÐ LAEGRI LáGMARKSLAUN EMN HELMIGUR AF Hastaréttar launum ,eða helmig af þingafarakaupi með þá öllum aukagreiðslum sem er bara laun .
    .
    0
  • Hafdís Hallgrímsdóttir skrifaði
    Ef allir hugsuðu eins og þessi fallega sal, værum við miklu betri sett sem þjóð. En ég er sjálf öryrki með 5 börn á framfæri og þetta eru einmitt sömu áhyggjurnar sem ég glími við og veldur mér á hverri nótt miklum kvíða og mörgum svefnlausum stundum
    4
  • Hjörleifur Þórlindsson skrifaði
    Aðstæða mín síðustu 3-4 árin gefur manni nægan tíma til að veita athygli gjörðum annara. Fyrir um fjórum árum fékk konan min frammheilalömun,á sama tíma stóð ég frammi fyrir þvi að missa annan fótinn og fara á hjólastól.Aðstæða mín var brot af hennar þætti,og veturinn í vetur var mjög erfiður.I dag er konan áEir og ég á Sunnuhlíð.Ég er að reyna að vinna úr öllusaman eins oghægt er.
    0
  • Magnhildur Erla Halldórsdóttir skrifaði
    Það eru margir sem ættu að taka sér til fyrirmyndar þennann unga mann. Hann er alveg stórkostlega vel hugsandi. 🙏🙏🙏
    3
  • Klara Guðmundsdóttir skrifaði
    Magnaður
    1
  • Gunnar Árnason skrifaði
    Stórkostlegur maður ....
    0
  • Anna Hermína skrifaði
    Margur má taka þennan mann og hans sýn til fyrirmyndar.
    Að lenda í því a núll einni að verða öryrki er eitthvað sem enginn vill lenda í á sinni lifsleið.
    0
  • Árni Guðnýar skrifaði
    Otrúlegur gaur.
    1
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Góður maður.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn 2022

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár