Fjármagnstekjur bera uppi íslenska eina prósentið

Íslend­ing­arnir sem höfðu hæstar tekjur á síðasta ári höfðu flestir drjúgar fjármagns­tekjur sem höfðu þannig mest um það að segja hverjir raða sér í flokk tekju­hæsta 1 prósents lands­manna. Aðeins um helmingur 1 prósentsins hafði minna en hálfa milljón í fjármagns­tekjur á síðasta ári og minna en þriðjungur þess hafði engar fjármagns­tekjur.

Fjármagns­tekjur eru ráðandi þáttur í því hverjir raða sér inn á lista yfir tekju­hæsta 1 prósent Íslendinga á síðasta ári. Þetta sýnir greining Stundarinnar á álagninga­skrá Skattsins, sem lögð var fram til skoðunar á starfs­stöðvum Skattsins á miðvikudag, 17. ágúst. Níu af tíu tekju­hæstu einstaklingunum, sem allt eru karlar, eru þar eingöngu vegna fjármagns­tekna. Launa­tekjur þeirra hefðu ekki skilað þeim upp í 1 prósentið. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn 2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár