Okkar maður í vanda Fyr­ir­tæki sem íslenski kjör­ræð­is­mað­ur­inn í Hvíta-Rúss­landi, flutti á nafn dóttur sinnar, fær ekki aflétt fryst­ingu eigna sinna í Úkraínu. Eignir fyr­ir­tæk­is­ins voru kyr­settar og banka­reikn­ingar frystir á grund­velli laga um bann við hvers kyns fjár­hags­að­stoð við land­ráða­til­raunir. Ástæðan er sú Úkra­ínu­menn telja Hvít-Rússa þátt­tak­endur í inn­rás Rússa og telja því að þar­lend fyr­ir­tæki séu beint og óbeint fjár­hags­legur bak­hjarl inn­rás­ar­innar í landið.

Úkraína frysti eignir Moshensky-fjölskyldunnar

Úkraínsk yfir­völd eru sögð hafa kyrr­sett eigur og fryst banka­reikn­inga fyr­ir­tæk­is­ins Santa Kholod í Kænu­garði. Yfirvöld þar telja hví­trúss­nesk fyr­ir­tæki fjár­magna inn­rás Rússa með óbeinum hætti, vegna stuðn­ings ein­ræð­is­stjórnar Lukashenko. Santa Kholod er hluti af fyr­ir­tækja­keðju Aleksand­ers Mos­hen­sky, kjör­ræð­is­manns Íslands, fisk­inn­flytj­anda og ólíg­arka í Hvíta-Rúss­landi. Sagður hafa skráð fyr­ir­tæki á dóttur sína til að verj­ast þving­unum ESB.

Eigur Santa Kholod, eins af fyr­ir­tækjum Mos­hen­sky-fjöl­skyld­unnar í Úkraínu, hafa verið kyrr­settar og banka­reikn­ingar þess frystir. Upp­lýs­ing­arnar um kyrr­setn­ing­una komu fram í dóms­skjölum eftir að reynt var að fá yfir­völd í Úkraínu til að falla frá aðgerð­unum gegn fyr­ir­tæk­inu, án árang­urs. Frá þessu greinir Radio Free Europe í frétt á vef sínum.

Úkraínsk yfir­völd kyrr­settu eignir fyr­ir­tæk­is­ins 3. maí síð­ast­lið­inn en það flytur inn, selur og dreifir sjáv­ar­af­urðum í Úkraínu. Kyrr­setn­ingin var, sam­kvæmt fréttum, fram­kvæmd á grund­velli ákvæðis úkra­ínskra hegn­ing­ar­laga um bann við mis­notkun stjórn­enda einka­fyr­ir­tækis á eignum þess, þá helst með vísan til fjár­mögn­unar aðgerða þar sem beita á valdi til að breyta stjórn­skipan, taka völd í land­inu, breyta landa­mærum. Það er segja: fjár­magna land­ráð.

Í umfjöllun fjöl­miðla er vakin athygli á því að þetta ákvæði hafi verið notað í sams­konar málum gegn öðrum hví­trúss­neskum fyr­ir­tækjum frá því að inn­rás Rússa í Úkraínu hófst, sem meðal ann­ars hefur farið …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ólígarkinn okkar

Pólverjar æfir vegna ólígarkans okkar
FréttirÓlígarkinn okkar

Pól­verjar æfir vegna ólíg­ar­kans okkar

Áhrifa­miklir pólskir stjórn­mála­menn brugð­ust í vik­unni harka­lega við fréttum af því að ólíg­arki frá Belarús, sem ítrekað hefur verið reynt að beita við­skipta­þving­unum, vegna tengsla hans við ein­ræð­is­stjórn­ina í Minsk, hefði komið sér fyrir í Varsjá. Um er að ræða íslenska kjör­ræð­is­mann­inn í Belarús, sem fer allra sinna ferða í skjóli verndar sem sendi­full­trúi Belarús. Óásætt­an­legt er að hann sé full­trúi Íslands, segir sér­fræð­ingur.
Úkraínskt orkufyrirtæki flutt af nafni ólígarka í skúffufélag í Smáíbúðahverfinu
AfhjúpunÓlígarkinn okkar

Úkra­ínskt orku­fyr­ir­tæki flutt af nafni ólíg­arka í skúffu­fé­lag í Smá­í­búða­hverf­inu

Íslenskur banka­maður, Karl Kon­ráðs­son, er sagður hafa keypt helm­ings­hlut í úkra­ínsku orku­fyr­ir­tæki nýverið af Aleksander Mos­hen­sky, kjör­ræð­is­manni Íslands og ólíg­arka í Belarús. Áður hafði Karl eign­ast breskt félag Mos­hen­skys fyrir slikk. Þá og nú átti Mos­hen­sky á hættu að sæta við­skipta­þving­unum, vegna tengsla sinna við stjórn­völd í Belarús.
Tugir milljarða í skattaskjól í gegnum Smáíbúðahverfið
RannsóknÓlígarkinn okkar

Tugir millj­arða í skatta­skjól í gegnum Smá­í­búða­hverfið

Kjör­ræð­is­maður Íslands í Belarús hefur á und­an­förnum árum flutt tugi millj­arða króna til dul­ar­fulls aflands­fé­lags á Seychelles-eyjum með aðstoð félags sem stýrt er úr heima­húsi Reykja­vík. Um er að ræða ávinn­ing af fisk­við­skiptum og sér­kenni­legum lán­veit­ingum til fyr­ir­tækja kjör­ræð­is­manns­ins í Austur-Evrópu, sem allt bendir til að séu gerð til að koma hagn­aði undan sköttum.
Gagnrýndi stjórnvöld fyrir hræsni í málefnum Belarús
FréttirÓlígarkinn okkar

Gagn­rýndi stjórn­völd fyrir hræsni í mál­efnum Belarús

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir þing­kona Pírata sak­aði íslensk stjórn­völd og utan­rík­is­ráð­herra um hræsni, í umræðum um bar­áttu lýð­ræð­is­sinna í Belarús á Evr­ópu­ráðs­þing­inu í gær. Íslensk stjórn­völd gætu ekki látið sér nægja að sitja fyrir á myndum og segj­ast styðja stjórn­and­stöðu lands­ins, á sama tíma og þeir hefðu náinn sam­verka­mann ein­ræð­is­stjórn­ar­innar í emb­ætti kjör­ræð­is­manns.
Ólígarkinn okkar fastagestur í einkaþotum einræðisherrans
AfhjúpunÓlígarkinn okkar

Ólíg­ar­k­inn okkar fasta­gestur í einka­þotum ein­ræð­is­herr­ans

Alex­ander Mos­hen­sky, kjör­ræð­is­maður Íslands í Hvíta-Rúss­landi, hefur flogið hátt í þrjá­tíu sinnum með einka­þotum ein­ræð­is­stjórnar Lukashenko á síð­ast­liðnum ára­tug, sam­kvæmt gögnum sem lekið var nýlega. Eingöngu fjöl­skylda og nán­ustu banda­menn Aleksand­ers Lukashenko nota þot­urnar. Bæði þot­urnar og flestir far­þega hennar hafa verið sett í ferða­bann um Evrópu og Norður-Ameríku.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár