Elísabet drottning er VÍST úr Víðidalnum!

Elísabet drottning er VÍST úr Víðidalnum!
Elísabet frænka með íslensku fálka­orð­una

Vart hefur farið fram­hjá neinum að und­an­farna daga hefur verið haldið upp á það í Bret­landi — og jafn­vel víðar — að 70 ár eru síðan Elísabet 2. sett­ist í hásæti sem drottn­ing Bret­lands. („Settist að völdum“ og „valda­af­mæli“ er eig­in­lega vit­laust orða­lag því raun­veru­leg völd hennar eru næstum engin.)

Af þessu til­efni var ein­hvers staðar rifjuð upp í glensi sagan af því þegar Erlendur Ein­ars­son for­stjóri SÍS 1955-1986 lét eitt sinn útbúa ætt­ar­tölu sem átti að sýna fram á frænd­semi hans við Elísa­betu en sá oflát­ungs­háttur þótti harla fynd­inn hér á landi.

Frænd­semin átti að vera gegnum Auðun skökul land­náms­mann í Víðidal í Húna­vatns­sýslu.

Það þótti sér­lega fyndið að við­ur­nefni Auðuns, skök­ull, þýðir auð­vitað ekk­ert annað en typpi á grað­hesti.

En sann­leik­ur­inn er reyndar sá að ef tekið er mark á þeim heim­ildum sem til eru, þá er þessi ætt­færsla vissu­lega rétt.

Ég skal nú rekja ætt Elísa­betar allt aftur í Víði­dal­inn. Og athugið að hér er ekki farið með fleipur íslenskra ætt­fræð­inörda. Allar ætt­færslur til og með árinu 1000 eru sam­kvæmt nýj­ustu upp­lýs­ingum af Wikipediu, og ef það er eitt­hvað sem Wikipedia er góð í, þá eru það ættir „hefð­ar­fólks“.

Þið getið sjálf rakið ykkur á alfræði­síð­unni aftur til árs­ins 1000.

Rétt er að vekja athygli á að í list­anum hér á eftir eru innan sviga við nöfnin til 1700 valda­tími kon­unga og drottn­inga, en eftir það eru í svig­unum fæð­ingar- og dán­arár eftir því sem best er vitað.

Faðir Elísa­betar var Georg 6. kon­ungur Breta (1936-1952).

Faðir hans var Georg 5. kon­ungur (1910-1936).

Faðir hans var Ját­varður 7. kon­ungur (1901-1910).

Móðir hans var Viktoría drottn­ing (1837-1901).

Faðir hennar var Ját­varður her­togi af Kent.

Faðir hans var Georg 3. kon­ungur (1760-1820).

Faðir hans var Friðrik prins af Veils.

Faðir hans var Georg 2. kon­ungur (1727-1760).

Faðir hans var Georg 1. kon­ungur (1714-1727).

Faðir hans var Ernest Augustus her­togi af Hanover (f.1629-d.1698).

Faðir hans var Georg her­togi af Brúnsvík (1582-1641).

Faðir hans var Vil­hjálmur her­togi af Brúnsvík (1535-1592).

Faðir hans var Ernest her­togi af Brúnsvík (1497-1546).

Faðir hans var Hinrik her­togi af Brúnsvík (1468-1532).

Faðir hans Ottó veg­lyndi her­togi af Brúnsvík (1439-1471).

Faðir hans var Friðrik guð­hræddi her­togi af Brúnsvík (1418-1478).

Faðir hans var Bern­harður her­togi af Brúnsvík (1360-1434).

Faðir hans var Magnús „með hálskeðj­una“ her­togi af Brúnsvík (1324-1374).

Faðir hans var Magnús guð­hræddi her­togi af Brúnsvík (1304-1369).

Faðir hans var Albert feiti her­togi af Brúnsvík (1268-1318).

Faðir hans var Albert stóri her­togi af Brúnsvík (1236-1279).

Faðir hans var Ottó barn her­togi af Brúnsvík (1204-1252).

Faðir hans var Vil­hjálmur lávarður af Luneburg (1184-1213).

Faðir hans var Hinrik ljón her­togi af Saxlandi (1130-1195).

Faðir hans var Hinrik drambláti her­togi af Bæj­ara­landi (1108-1139).

Móðir hans var Úlf­hildur af Saxlandi (1072-1126).

Faðir hennar var Magnús her­togi af Saxlandi (1045-1106).

Móðir hans var Úlf­hildur hin norska (1020-1071).

Faðir hennar var Ólafur digri Nor­egs­kon­un­ugur (995-1030).

Móðir hans var Ásta Guð­brands­dóttir (975-1025).

Móðir hennar var Úlf­hildur, vænt­an­lega fædd um 950.

Móðir hennar var Þóra mos­háls, vænt­an­lega fædd um 920.

Faðir hennar var Auðun skök­ull, vænt­an­lega fæddur um 860-870, ef hann var í raun­inni til.

Í 400 ár voru for­feður og -mæður Elísa­betar valda­fólk í Brúnsvík.Þótt íslenskun á nafn­inu virð­ist gefa til kynna vík við sjó, þá er Brúnsvík (Braunschweig) langt inni í landi, þar sem bláa táknið er. „Vík“ þýðir í þessu til­felli senni­lega áfanga- eða hvíld­ar­stað.

Um Auðun skökul (hafi hann verið til) er fátt vitað, nema Land­náma­bók segir að faðir hans hafi heitið Björn ein­hver, en sá hafi verið sonur Hunda-Steinars, jarls á Englandi, og Álöfar, dóttur Ragnars loð­brókar.

Ragnar loð­brók var þjóð­sagna­per­sóna á Norð­ur­löndum, sem gerði her­virki á Englandi í upp­hafi vík­inga­aldar, en óvíst er hvort hann var tómur til­bún­ingur eða átti sér ein­hvers konar fyr­ir­mynd.

Eins og ég sagði hér fremst: Heim­ildir eru ætt Elísa­betar allt frá henni og til Ólafs digra eru svona þokka­lega áreið­an­legar, með öllum hugs­an­legum fyr­ir­vörum þó.

Þetta gæti að minnsta kosti verið svona!

Heimild að þremur elstu ætt­lið­unum — frá móður Ástu Guð­brands­dóttur til Auðuns skök­uls — hún er aftur á móti aðeins ein: Land­náma­bók sem upp­haf­lega er talin hafa verið skrifuð á fyrri hluta 12. aldar. Þar segir:

„Auðun skök­ull fór til Íslands og nam Víðidal og bjó á Auð­un­ar­stöðum. […] Auðun skök­ull var faðir Þóru mos­háls, móður Úlf­hildar, móður Ástu, móður Óláfs kon­ungs hins helga [eða digra].“

Meira er það nú ekki.

Þegar Snorri Sturlu­son skrif­aði sögu kon­ung­anna Ólafs Tryggva­sonar og Ólafs digra um það bil eftir að fyrsta gerð Landnámu var skrifuð, þá getur hann um Ástu Guð­brands­dóttur móður Ólafs digra en nefnir ekki hver móðir hennar hafi verið. Samkvæmt því treystir Norsk biografisk leksi­kon sér ekki til að slá því föstu — hvað sem Landnáma segir — að móðir Ástu Guð­brands­dóttur hafi verið Úlf­hildur dótt­ur­dóttir Auðuns skök­uls, því „mor­ens navn er ikke kjent“ segir þar aðeins.

Það breytir því þó ekki að sam­kvæmt ÞEIRRI EINU HEIMILD SEM TIL ER, þá var Ásta Guð­brands­dóttir ættuð úr Víðidal.

Hér verðum við að vísu að líta fram­hjá því að flestir seinni tíma fræði­menn telja heim­il­da­gildi Landnámu lítið, og jafn­vel afar lítið, en það er sama:

Þetta segir samt eina heim­ildin sem er til!

Og sam­kvæmt því þá ER Elísabet 2. Breta­drottn­ing ættuð úr Víði­dalnum.

En svo er nátt­úr­lega spurn­ing hvort ein­hverjir maðkar kunni að leyn­ast víðar á ætt­ar­trénu. Hélt ein­hver fram­hjá ein­hverjum ein­hvern tíma?

Hefur slíkt ein­hvern tíma gerst í þessum prúðu ættum fyr­ir­fólks­ins?

En það, eins og sagt er, er önnur saga.

Auð­un­ar­staðir í VíðidalMyndin er af Sarpi Þjóð­minja­safns­ins.
Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Júlíus Guðni Antonsson skrifaði
    Takk fyrir þessa samantekt, ég sem fyrrum bóndi á Auðunarstöðum og afkomandi Auðuns Skökuls í 32. lið eins og Beta frænka, hef gaman af þessu en vil samt benda á að Elísabet getur varla talist vera ættuð úr Víðidalnum þar sem Þóra Moðháls var fædd útií Noregi og fór aldrei til Íslands. Það er síðan gaman af því að seigja frá því að þegar ég rek ættir mínar til Auðuns Skökuls þá er það í gegnum fyrstu biskupsfrú landsins Döllu Þorvaldsdóttur sem og Steinunni fylgikonu Jóns Arasonar biskups. Ótrúlegt en satt að hátt í 1/3 þeirra sem eru í þessari 32 ættliða keðju hafa búið á Auðunarstöðum.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár