Valið liggur milli Sjálfstæðisflokks og Pírata

Tveir ein­faldir val­kostir liggja á borð­inu eftir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar. Ein­fald­asti meiri­hlut­inn væri annað hvort Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn eða Píratar með Framsókn og Sam­fylk­ing­unni. Einar Þor­steins­son, odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins, er í lyk­il­hlut­verki, en hann var ungur Sjálf­stæð­is­maður.

Valið liggur milli Sjálfstæðisflokks og Pírata
Einar Þor­steins­son Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn vildi vinna gegn pólarís­er­ingu og Einar er fyrr­ver­andi ungur sjálf­stæð­is­maður. Mynd: Stundin / Jón Ingi

Meiri­hlut­inn í Reykja­vík er fall­inn og framundan eru meiri­hluta­við­ræður, þar sem Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn undir for­ystu Einars Þor­steins­sonar er í lyk­il­hlut­verki. Í aðdrag­anda kosn­inga hefur Einar ekki úti­lokað sam­starf með neinum. Einar gæti þó átt erfitt með að mynda meiri­hluta með Sjálf­stæð­is­flokknum, jafn­vel þótt hann hafi á yngri árum verið með­limur í Sambandi ungra sjálf­stæð­is­manna. Vegna þeirrar for­tíðar var Einar fyrr á árinu orð­aður við fram­boð fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í Kópavogi, sem fyrr­ver­andi for­maður félags ungra sjálf­stæð­is­manna í bænum.

Takmarkaðir möguleikar Sjálfstæðisflokks

Mögu­leikar Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­inni eru hins vegar tak­mark­að­ari en ann­arra flokka, vegna þess að tvö fram­boð, Píratar og Sós­í­alistar, með þrjá og tvo borg­ar­full­trúa, hafa úti­lokað sam­starf Sjálf­stæð­is­flokknum.

Eftir stendur þá að eina raun­hæfa meiri­hluta­sam­starf Sjálf­stæð­is­flokks­ins felur í sér tvo val­kosti með Fram­sókn­ar­flokki: Að ná saman með Sam­fylk­ing­unni, eða tvo smærri flokka sem hafa einn borg­ar­full­trúa, Flokki fólks­ins, Vinstri grænum og Viðreisn. 

Raun­hæf­ari mögu­leikar liggja hjá Sam­fylk­ing­unni, sem getur myndað þriggja flokka meiri­hluta með Framsókn og Pírötum. Sá meiri­hluti ylti einnig á einum full­trúa, en með Viðreisn og Vinstri græn sem stuðn­ing yrði hann tveimur borg­ar­full­trúum sterk­ari. 

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri og odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar, hefur sagt að Sós­í­alistar, sem hafa tvo borg­ar­full­trúa, liggi langt frá Sam­fylk­ing­unni og má því gera ráð fyrir að þeir liggi enn lengra frá Fram­sókn­ar­flokki og Viðreisn, sem boð­aði auk­inn einka­rekstur fyrir kosn­ing­arnar. Sós­í­alistar hafa þess vegna hafnað sam­starfi við Viðreisn. 

Meirihlutinn missti tvo

Frá­far­andi meiri­hluti missti alls tvo borg­ar­full­trúa. Sam­fylk­ingin fékk 20,3 pró­senta fylgi og missti tvo borg­ar­full­trúa, Viðreisn einn og Vinstri grænir fengu minna fylgi heldur en Sós­í­alista­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins, en hélt þó inni einum borg­ar­full­trúa. Píratar er eini flokk­ur­inn í meiri­hluta­sam­starf­inu sem bætir við sig fylgi og fær þriðja mann­inn inn.

Þegar nið­ur­staða lá fyrir lýsti Dagur B. Egg­erts­son því yfir að borg­ar­stjóra­stóll­inn væri ekki úrslita­at­riði í kom­andi meiri­hluta­við­ræðum, en þriðj­ungur borg­ar­búa vill sjá hann áfram í því hlut­verki, fleiri en kusu Sam­fylk­ing­una.

„Það bara verður að koma í ljós,“ sagði Einar í nótt, aðspurður um hvort hann ætl­aði sér að verða borg­ar­stjóri. Hann svar­aði sömu spurn­ingu í Silfrinu á RÚV í morgun og sagði þá: „Borg­ar­stjóra­stóll­inn er ekk­ert sér­stakt mark­mið í sjálfu sér, en það er samt ákall um breyt­ingar á hinni póli­tísku for­ystu. Tveir stærstu flokk­arnir tapa fylgi og við njótum mik­ils hljóm­grunns. Við þurfum bara að sjá hvert þessi umræða um mál­efni leiðir okkur og meta svo stöð­una.“ 

Núverandi meirihluti ræðir saman

Dagur B. Egg­erts­son sagði þegar fyrstu tölur lágu fyrir að eðli­leg­ast og heið­ar­leg­ast væri að núver­andi meiri­hluti myndi ræða fyrst saman, en það þyrfti að tala við fleiri. „Ég þarf að ræða við mína félaga í meiri­hlut­anum. Ég held að við þurfum ekk­ert að flýta okkur.“ 

Eina leiðin til þess er að taka inn Fram­sókn­ar­flokk­inn, eða þá Sós­í­alista­flokk­inn, sem gerir kröfu um að Viðreisn fari þá úr borg­ar­stjórn. 

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er stærsti flokk­ur­inn í borg­inni, en er engu að síður í sögu­legri lægð með 24,5 pró­sent atkvæða og missir tvo borg­ar­full­trúa. Borg­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins eru nú sex. „Við skulum hafa eitt á krist­al­tæru,“ sagði Hildur í örstuttu ávarpi til flokks­ins þegar fyrstu tölur lágu fyrir, og benti á að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefði fyrir örfáum dögum mælst með sextán pró­sent fylgi í Reykja­vík. Um sögu­lega fylg­is­aukn­ingu væri að ræða. 

„Það eru ýmsir mögu­leikar í stöð­unni. Ekkert rosa­lega margir en ýmsir,“ sagði Hildur í Silfrinu í morgun. Hildur lagði áherslu á að Degi hefði verið hafnað, þar sem Sam­fylk­ingin hefði misst tvo borg­ar­full­trúa. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn missti einnig tvo borg­ar­full­trúa í kosn­ing­unum og fékk verstu kosn­ingu sína frá upp­hafi í borg­inni. 

Framsókn sigurvegarinn

Sam­fylk­ingin kemur þar á eftir með fimm borg­ar­full­trúa, en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er sig­ur­veg­ari kosn­ing­anna með 18,7 pró­sent atkvæða. Eftir að hafa ekki náð einum manni inni í síð­ustu kosn­ingum fékk Framsókn fjóra borg­ar­full­trúa og er þriðji stærsti flokk­ur­inn í Reykja­vík. Píratar eru með þrjá borg­ar­full­trúa, Sós­í­alista­flokk­ur­inn tvo, Viðreisn, Flokkur fólks­ins og Vinstri grænir hver með einn. Mið­flokk­ur­inn, Ábyrg fram­tíð og Reykja­vík besta borgin náðu ekki manni inn. 

Alls þarf tólf borg­ar­full­trúa til að mynda meiri­hluta. Píratar og Sós­í­alista­flokk­ur­inn hafa hafnað sam­starfi við Sjálf­stæð­is­flokk­inn í aðdrag­anda kosn­inga. Í við­tali við Vísi í nótt sagð­ist hún vilja fá Sós­í­alista og Flokk fólks­ins inn í meiri­hluta­sam­starfið. „Við þurfum að ná fram efna­hags­legu rétt­læti fyrir fólkið sem hefur það verst,“ sagði hún í nótt. 

Í Silfrinu teikn­aði Sanna upp meiri­hluta­sam­starfið sem hún sér fyrir sér: „Það er mjög skýrt í mínum huga að borg­ar­búar eru að kalla eftir því að það verði lögð áhersla á félags­hyggju og það verði lögð áhersla á mannúð. Ef við teiknum upp mynd af því hvernig meiri­hluta við gætum séð, þá gætum við séð hérna Sam­fylk­ingu, Sós­í­alista, Pírata, VG og Flokk fólks­ins. Þetta eru

flokkar sem hafa verið að tala með þessum áherslu­punktum um hús­næð­is­málin og vel­ferð­ina og órétt­lætið. Það þarf að vera mjög skýrt að við ætlum að útrýma þessu órétt­læti.“ Til að Sós­í­alista­flokk­ur­inn gæti unnið með Framsókn yrði hún að vita hvort hann ætl­aði að stíga til vinstri eða hægri, það væri of óljóst að hennar mati. 

Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, odd­viti Pírata, lýsti vilja til að vinna með Fram­sókn­ar­flokknum í nótt, en sem fyrr segir gætu Sam­fylk­ingin, Píratar og Framsókn myndað þriggja flokka meiri­hluta. 

Hún lagði þó áherslu á það í morgun að fyrsti kostur væri áfram­hald­andi sam­starf meiri­hlut­ans. „Við höfum alveg verið skýr með það að það væri æski­legt ef það er mögu­legt að halda því áfram. Við höfum staðið þétt saman.“ 

Benti hún á að báðir flokk­arnir sem höfn­uðu sam­starfi við Sjálf­stæð­is­flokk­inn í aðdrag­anda kosn­inga hefðu bætt við sig fylgi. 

Framsókn vill sátt

Meg­in­kosn­inga­mál Fram­sókn­ar­flokks fyrir kosn­ing­arnar var hins vegar að ná sátt í stjórn­málum og kveða niður pólarís­er­ingu í sam­fé­lag­inu. Slíkar áherslur gætu einna helst náðst fram með því að leiða saman Sjálf­stæð­is­flokk­inn og Sam­fylk­ing­una í breiðri þriggja flokka stór­stjórn þvert milli vinstri og hægri, líkt og gert hefur verið í lands­mál­unum með rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur, Bjarna Bene­dikts­sonar og Sigurðar Inga Jóhanns­sonar. 

Í helstu hita­málum kosn­ing­anna gætu leiðir þess­ara flokka legið saman, þar sem stefna Sjálf­stæð­is­flokks í borg­ar­línu er opin í báða enda og Framsókn vill bæði þétta og dreifa byggð. 

Mál­efna­lega greinir þó margt á milli. Dagur benti á það í nótt að áherslum Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefði í raun verið hafnað. „Mér fannst kosn­ing­arnar hverf­ast um þetta, fram­tíð­ina í sam­göngu- og skipu­lags­málum eða for­tíð­ina. Mér finnst nið­ur­staðan frekar afdrátt­ar­laus,“ sagði Dagur. 

Hildur úti­lok­aði ekk­ert í Silfrinu í morgun: „Við kunnum að vinna með fólki sem er ekki eins og nákvæm­lega eins við alltaf. Ég er spennt fyrir fram­hald­inu. Ég held að það verði spenn­andi sam­töl á næstu dögum,“ sagði hún. 

Dagur var spurður beint út í mögu­legt sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. „Ég hef talað fyrir mjög skýrum áherslum og fram­tíð­ar­sýn í borg­inni og ekki deilt henni með Sjálf­stæð­is­flokknum. Þannig að mér finnst það mjög lang­sótt.“

Aðspurður hvort löngum og ströngum borg­ar­tjóra­ferli hans væri lokið sagði Dagur ein­fald­lega: „Þegar borg­ar­búar voru spurðir var lang stærsti hóp­ur­inn þar sem vildi að ég væri áfram.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ólafur Jónsson skrifaði
    Takið þátt í könnun og styðjið heiðarlega og frambærilegann Frambjóðanda Sönnu Magdalenu í stól Borgarstjóra. Betri götur betri Borg.
    0
  • SVB
    Skjöldur Vatnar Björnsson skrifaði
    Einar er bara tækifæris sinni eins og hinir og hoppar bara þangað sem hann kemst inn.
    0
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Mér sýnist að valið sé á milli Samfylkingar, Framsóknar og Pírata annars vegar og Sjálfstæðisflokks, Framsóknar, Viðreisnar og Flokks fólksins hins vegar.
    Það er spurning hvort Viðreisn og Flokkur fólksins vilji taka þátt í slíku samstarfi.
    Ef svo er, er það Einars að velja hvorn kostinn hann kýs. Hætt er við að hann kjósi seinni kostinn vegna fyrri tengsla við Sjálfstæðisflokkinn. Fyrri kosturinn væri þó eflaust auðveldari, færri flokkar og minni stærðarmunur á þeim.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár