Barist um borgina: Áherslur og átakalínur

Ellefu framboð bjóða fram til borgar­stjórnar fyrir kosningarnar sem fram fara í dag, 14. maí. Stóru átaka­línurnar sem greina má í kosninga­áherslum flokkanna eru einkum mismun­andi áherslur í húsnæðis­uppbyggingu, þar sem deilt er um hvort þétta skuli byggð eða nema ný lönd, og í samgöngu­málum þar sem ekki ríkir samstaða um hvort lögð verði áhersla á uppbyggingu almennings­samgangna eða uppbyggingu sem þjóni einka­bílum. Í öðrum mála­flokkum ber almennt minna á milli.

Dagvistun og skólamál

Framsókn (B)

  • Biðlistum eftir leikskóla­plássum verði eytt. Sveigjanleiki í opnunar­tíma leikskóla verði aukinn.
  • Dagforeldra­kerfið verði eflt.
  • Skólar borgarinnar verði bættir og grunn­stoðir þeirra tryggðar.

Viðreisn (C)

  • 5 ára börn fái gjald­frjálsan leikskóla 6 tíma á dag.
  • Öll börn fái leikskóla­pláss við 12 mánaða aldur.
  • Stærri vinnu­staðir geti rekið leikskóla.
  • Grunn­skólar verði gjald­frjálsir óháð rekstrar­formi.
  • Samþætta á skóla- og frístunda­starf.

Sjálfstæðisflokkur (D)

  • Öll börn fái leik­skólavist frá 12 mánaða aldri.
  • Stærri vinnu­staðir geti rekið daggæslu eða leikskóla.
  • Vægi list-, verk- og tækni­greina verði aukið í skóla­starfi.

Reykjavík, besta borgin (E)

  • Leik­skólagjöld verði lækkuð.
  • Biðlistum á leikskóla verði eytt árið 2026.
  • Skóla­máltíðir lækki um 50%

Flokkur fólksins (F)

  • Biðlistum eftir faglegri aðstoð frá Skóla­þjónustu Reykja­víkur verði útrýmt.
  • Máltíðir í …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár