Lamaðist af ótta þegar mætt var heim til hennar eftir hótanir: „Ég hefði ekki getað bjargað lífi mínu“

Edda Falak, stjórn­andi hlað­varps­þátt­anna Eigin Konur seg­ist hafa orðið magn­þrota af hræðslu þegar barið var ítrekað á úti­hurð­ina heima hjá henni og dyra­bjöll­unni hringt margoft að kvöldi til. Sama dag hafi hún greint opin­ber­lega frá líf­láts­hót­unum. Nú taki hún slíkum hót­unum alvar­lega. Edda segir frá þessu í hlað­varps­þætti sínum og spilar upp­töku af sam­skiptum sínum við lög­regl­una.

Edda Falak lýsir því hvernig hún hafði oft fengið nauðg­unar- og líf­láts­hót­anir en ekki tekið þær alvar­lega fyrr en eftir að komið var heim til hennar sama dag og hún greindi opin­ber­lega frá hót­un­unum í Morg­un­út­varp­inu á Rás tvö í byrjun febr­úar síð­ast­liðnum. Nokkrir fjöl­miðlar fjöll­uðu sama dag um hót­an­irnar. Um kvöldið kom ein­hver að hús­inu sem Edda býr í. Hún seg­ist hafa orðið mjög hrædd og hringt í Neyð­ar­lín­una sem hafi gefið henni sam­band við fjar­skipta­mið­stöð rík­is­lög­reglu­stjóra. Í upp­töku af því sím­tali sem Edda fékk hjá lög­reglu og hlusta má á í spil­ar­anum hér að ofan er búið að taka út rödd lög­reglu­manns­ins og lesa inn svör hans eftir hand­riti sem lög­regla lét Eddu hafa. Samkvæmt Eddu bað lög­regla um að röddin yrði gerð óþekkj­an­leg. 

„Ég var búin að fá ógeðs­lega mikið af líf­láts­hót­unum og hót­unum um að mér verði nauðgað, og svo ger­ist það bara að …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Loftur Hjálmarsson skrifaði
    er vitað hver bankaði...fá sér myndavél og líka út á bilastæði til að sjá tegund og númer þótt reyndar ekki l ög lega
    0
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Ekki það að ég sé einhver sérstakur aðdáandi Eddu Falak. En eitthvað er hún að gera rétt, fyrst hún vekur upp þessi haturs viðbrögð hjá einhverju verstu úrhrökum íslensks þjóðfélags.
    2
  • Sigurbjörg Von Kross skrifaði
    Ég á ekki orð yfir því sem yfir Eddu gengur. Kærleikur og ljós til þín elsku frábæra Edda ❤️
    7
  • Kristinn Jóhannesson skrifaði
    fá sér panic room
    -10
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu