Fékk 490 töflur frá heimilislækni á tveimur mánuðum: „Hún hættir aldrei á þessu OxyContin“

Sjötug kona á Akureyri kynntist OxyContin þegar maðurinn hennar var krabbameins­sjúklingur fyrir að verða 20 árum. Konan hefur þannig langvinna, króníska verki sem hæpið er að ávísa morfín­lyfjum fyrir samkvæmt læknum sem Stundin hefur rætt við. Dóttir konunnar segir að mamma sín muni aldrei hætta á OxyContin því fráhvörfin séu „viðbjóður“.

Heima að borða töflur
Heima að borða töflur Dóttir kon­unnar segir að móðir hennar geri lítið annað en að borða töflur, reykja og tala um veik­indi. Konan hefur notað OxyContin í tæp 20 ár. Myndin er svið­sett og er ekki af kon­unni á Akureyri sem um ræðir í frétt­inni. Mynd: Heiða Helgadóttir

Sjötug kona á Akureyri hefur notað OxyContin og samheitalyf þess við alls kyns lang­vinnum verkjum í tæp 20 ár. Konan hefur glímt við verki í baki, almenn stoðkerfis­vandamál, gigt og fleira um árabil og hefur fengið OxyContin uppá­skrifað frá læknum í bænum vegna þessa.

Á tveggja mánaða tímabili í fyrra­sumar fékk hún uppá­skrifaðar 490 OxyContin-töflur, eða tengd samheitalyf, frá heimilis­lækninum sínum. Þessi lyf voru utan við svokallaða „lyfja­rúllu“ konunnar, það er að segja þau lyf sem konan átti sannarlega að fá við sínum verkjum. Þetta segir dóttir konunnar sem hvorki vill greina frá nafni móður sinnar né sínu eigin. 

Stundin fjallar um konuna á Akureyri vegna umfjöllunar blaðsins um ópíóðafaraldurinn sem skekið hefur Banda­ríkin, og Ísland líka að vissu leyti, síðastiðin 20 ár. Lyfja­fyrirtækið Actavis var annar stærsti seljandi morfín­skyldra verkja­lyfja á árunum 2006 til 2014 þegar samheita­lyfja­fyrirtæki­byrjuðu að framleiða samheitalyf Oxycontins, morfín­lyfs lyfja­fyrir­tækisins Purdue Pharma. 

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Villi Bald skrifaði
    Þarf Guðjón Ingvi heimilislæknir ekki að svara fyrir þetta? Ótrúlegt magn morfínlyfja og róandi lyfja sem hann ávísar til konunnar.
    0
  • Jón Bjarnason skrifaði
    Skil ekki markmiðið með þessum fréttaflutningi. Þessi lyf bæta lífsgæði fólks með mikla verki, með tímanum gæti þurft að hækka skammt þar sem þol myndast við slíkum lyfjum eins og öllu öðru. Mjög lítið magn þessara lyfja koma frá apótekum hér á landi sem seld eru á svörtum markaði, það er flest smyglað hingað til lands sem sannar það að þeir sem fá lyfin ávísað á sig hér eru ekki að selja þau öðrum nema í mjög litlum mæli. Tekið samkvæmt læknisráði er hætta af slíkum lyfjum lítil, þó líkamleg ávanabinding sé vissulega möguleiki, en þá skal tækla það í samráði við heimilislækni
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Stórveldi sársaukans

ViðskiptiStórveldi sársaukans

Lífeyris­sjóður harmar ábyrgð sína á ópíóða­far­aldri

Lífeyris­sjóðirnir sem fjárfestu í Actavis þegar fyrir­tækið var stórtækt á ópíóða­mark­að­inum í Banda­ríkjunum segjast ekki hafa vitað um skaðsemi og villandi markaðs­setningu morfín­lyfjanna. Íslenskir lífeyris­sjóðir högnuðust um 27 milljarða þegar þeir seldu fjár­festingar­félagi Björgólfs Thors Björgólfs­sonar hlutabréf í Actavis árið 2007, eftir að fyrir­tækið var farið að selja morfínlyf í stórum stíl.
FréttirStórveldi sársaukans

Actavis borgar 30 milljarða króna bætur í Texas vegna ópíóða­far­ald­ursins

Íslenska lyfja­fyrirtækið Actavis seldi hvergi fleiri ópíóðatöflur en í Texas-fylki á árunum 2006 til 2014. Um var að ræða rúmlega þrjá milljarða taflna. Í byrjun febrúar var greint frá því að fyrir­tækið hefði sæst á að greiða skaða­bætur í ríkinu út af fram­leiðslu og sölu sinni á ópíóðum í fylkinu. Eigandi Actavis-félaganna í dag, Teva, viðurkennir hins vegar ekki sekt sína þrátt fyrir skaða­bæturnar.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár