Strand fimm hundruð metrum frá landamærunum

Páll Stef­áns­son mætir flótta­manna­straumi frá Úkraínu í Hrebenne, Póllandi, þangað sem Danir sel­flytja lyf og hjálp­ar­gögn með hjól­börum yfir ein­skins­manns­landið sem skilur löndin að.

„Hvar fæ ég hel­vítis hjól­börur,“ öskr­aði Peter, danskur lyfja­fræð­ingur, á pólskan her­mann klæddan vél­byssu á landa­mærum Póllands og Úkraínu í gær­kvöldi. Hann, ásamt vini sínum, hafði fyllt sendi­bíl af lyfjum og hjálp­ar­gögnum og var í þann mun að koma þeim yfir. Þeim var meinað að keyra sendi­bíl­inn þessa 500 metra yfir ein­skins­manns­landið sem skilur löndin að. Þeir máttu sel­flytja varn­ingin gang­andi, á móti stríðum straumi flótta­manna sem voru að yfir­gefa landið sitt. 

Hvar fæ ég hjól­börur? Danir reyndu að koma lyfjum yfir landa­mærin og gengu á móti straumi flótta­manna.
Sjúkra­bíl­arnirSitja fastir við landa­mærin og kom­ast ekki yfir.

„Það er ekk­ert plan B.“ Þeir voru 40 bíl­arnir sem Danir voru að gefa til Úkraínu. Bílarnir voru komnir að landa­mær­unum en þeir komu þeim ekki yfir, þar sem úkranískir bíl­stjórar biðu þeirra. Einskis­manns­landið, milli land­anna var lokað fyrir bíla­um­ferð.

„Ég datt á ban­ana­hýði,“ segir Fredrik dansk/sænskur sjúkra­bíl­stjóri sem var búin að keyra eldri danskan sjúkra­bíl í einn og hálfan sól­ar­hring frá Köben og til Hrebenne í Póllandi. 

„Síðan er að koma sér heim, en okkur lá svo á að koma bíl­unum í notkun þar sem þeirra er þörf að við gleymdum að skipu­leggja heim­ferð­ina. Vitum ekki hvernig við komum okkur til baka. Allar rútur og allir strætóar eru fullir af flótta­fólki. Og það eru rúmir 400 km til Varsjár, á næsta flug­völl.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár