Hét Kíiv einhvern tíma Kænugarður?

Hét Kíiv einhvern tíma Kænugarður?
Nýleg stytta í Kýv Bræð­urnir Ký (eða Kyi), Shchek og Khoryv og systir þeirra Lybid. Mynd: Rasal Hague

Höf­uð­borg Úkrainu, Kíiv, er nú mjög í kast­ljósi fjöl­miðla, því miður. Meðal þeirra spurn­inga sem þá hafa vaknað er hvað á að kalla borg­ina, og þá aðal­lega hvort við ættum ekki hér á Íslandi að kalla hana Kænugarð, enda sé það „fornt heiti borg­ar­innar“ á nor­rænum málum.

Í þeirri mann­kyns­sögu sem ég lærði í skóla voru það raunar nor­rænir menn — vík­ingar frá Svíþjóð — sem stofn­uðu borg­ina á 8. eða 9. öld þegar þeir tóku að fara í versl­un­ar­leið­angra upp eftir fljót­unum sem féllu í Eystra­salt aust­an­vert og end­uðu inni í miðju því svæði sem nú heitir ýmist Belarús, Úkraína eða Rússland.

Borgin hans Kýs?

Þar drógu þeir skip sín yfir í fljót sem féllu í suður átt í Svarta­haf og á einum af áfanga­stöðum þeirra — þar sem þeir drógu kænur sínar upp á bakk­ann — þar stofn­uðu þeir borg­ina Kænugarð.

Þetta er meira og minna allt tóm vit­leysa. Eins og ég fjall­aði um í nýlegum greinum um sögu Úkraínu (sjá má hér, hér og hér), þá stofn­uðu nor­rænir menn alls ekki Kíiv. Borgin var stofnuð á sjöttu öld (eða jafn­vel fyrr) þegar slav­neskir ætt­bálkar voru að koma sér fyrir á svæð­inu.

Og Kíiv virð­ist frá upp­hafi hafa verið heiti borg­ar­innar. Í þjóð­sögum segir frá þremur bræðrum og einni systur sem stofn­uðu borg­ina og hét einn bræðr­anna Ký og við hann var borgin kennd.

Kýiv = staður (eða garður!) Kýs. Endingin -ev gæti jafn­vel merkt kast­ala eða virki

Þetta er að vísu aug­ljóst dæmi um hvernig þjóð­sagan býr til per­sónur út frá stað­ar­nöfnum sem fólk er hætt að skilja, rétt eins og Róm­verjar bjuggu til sög­una um Rómúlus og Remus til að skýra nafn borgar sinnar þegar allir voru búnir að gleyma hvað orðið Róm þýddi í því til­viki.

Skektuhöfn?

Þegar nor­rænir menn fara svo að gera sig gild­andi á svæð­inu á 9. öld og taka þá völdin í Kíiv um skamma hríð, þá virð­ast þeir ein­fald­lega nota það bæj­ar­heiti sem fyrir var, Kíiv, nema í ein­hverjum til­fellum kunna þeir að hafa þýtt -v end­ing­una sem „garður“.

Sú end­ing tók sér alt­ént ból­festu í slav­neskum málum þar eystra og sjást þess enn merki í borg­ar­nöfnum eins og NovGOROD og Vol­goGRAD (áður Stalín­grad).

Hversu mikið „Kíiv­garður“ var notað er óljóst. Senni­lega lítið sem ekk­ert á sínum tíma, en í Kristni­sögu sem skrifuð var hér uppá Íslandi mörgum öldum síðar segir þó að Þor­valdur víð­förli hafi komið ásamt Stefni félaga sínum til Kænu­garðs.

Hafi nor­rænir menn notað heitið Kænu­garður á sínum tíma, þá er að minnsta kosti ljóst að það var afbökun á Kývgarði (garði Kíiv-búa) en ekki vísan til orðs­ins kæna.

Fyrir nú utan annað, þá mundu nor­rænir menn aldrei hafa vísað til skipa sinna sem kæna — því kæna þýddi aldrei annað en smá­skekta.

Borgin dregur sem sagt EKKI nafn sitt af því af þar hafi kænur verið dregnar á land.

Og borgin „hét“ aldrei Kænu­garður í raun­veru­legum skiln­ingi, nema í bókum uppá Íslandi. 

Árbakki?

Og alt­ént er ljóst að heima­menn í Kíiv hafa aldrei notað orðið Kænu­garður í neinum skiln­ingi. Og orðið „heima­menn í Kíiv“ geta í raun aldrei merkt „nor­rænir menn“. Það er til dæmis ekki rétt í neinum skiln­ingi að nor­rænir menn hafi „numið“ Kíiv. Höfð­ingja­ætt, sem virð­ist hafa verið nor­ræn að upp­runa, tók að vísu völdin í Kíiv um tíma en hún var aldrei annað en örfá­menn yfir­stétt og var orðin slav­nesk nán­ast á auga­bragði.

En hvað þýddi þá Ký, ef það var ekki hin nor­ræna kæna og ekki Ký, einn hinna þriggja bræðra?

Það er ein­fald­lega ekki vitað. Sagn­fræð­ing­ur­inn Kevin Alan Brook, sem er sér­fræð­ingur í sögu hinna merki­legu Khazara, sem var tyrk­nesk þjóð er stofn­aði öfl­ugt ríki við aust­an­vert Svarta­haf á sjöttu öld, hann hefur hins vegar varpað fram þeirri kenn­ingu að Kíiv hafi upp­haf­lega verið versl­un­ar­staður Khazara við sveit­irnar í kring og Kíiv sé dregið af tyrk­neskætt­aða orð­inu Küi sem merki árbakka.

Miðað við aðstæður í Kíiv væri það mjög rök­rétt nafn á bænum sem þar reis.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Claudia Ósk Georgsdóttir skrifaði
    Það gladdi mig mikið að lesa þennan pistil, takk Illugi.
    Ég hef leitað að upplýsingum um nafnið Kænugarð og ástæðum fyrir því að það er notað af mörgum í staðs Kyiv á Íslandi, en lítið fundið, nema þetta hefbundna “Orðið Kænugarður er gamalt orð í íslensku og þekkist þegar í fornum bókmenntum.” (9.3.2014 vísindarvefur.is). Kannski er það út af því að íslenskan er ekki tungumálið mitt upphaflega, en mér hefur fundist furðulegt að nota þetta nafn yfir höfuðborg Kyiv. Það, að eitthvað orð hefur verið notað í fornum tímum, réttlætir ekki endilega notkun þess – af hverju ekki nota það sem er í gildi í Ukraine, þarf endilega gefa því íslensk heiti? Kyiv – svo fallegt nafn og ekki einu sinni erfitt að bera það fram.
    5
  • Ívar Larsen skrifaði
    Kænugarður/Kíev
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum
4
Innlent

Segir skerð­ingu Loft­brúar byggða á röngum for­sendum

Þóroddur Bjarna­son félags­fræði­pró­fessor segir útgjöld Loft­brú­ar­innar aldrei hafa farið yfir upp­haf­legar fjár­heim­ildir að raun­virði. Ekki séu heldur traustar vís­bend­ingar um að stuðn­ing­ur­inn hafi hækkað flug­far­gjöld. Eyjólfur Ármanns­son inn­við­a­ráð­herra hyggst nú hækka fyr­ir­hug­aða nið­ur­greiðslu eftir hörð við­brögð við breyt­ing­unum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár