Platar Pútín Biden?

Joe Biden Banda­ríkja­for­seti hefur viðrað mögu­leika á að Rússar ráð­ist inn í Úkraínu án afger­andi við­bragða frá Nató-ríkjum, en síðar dregið orð sín til baka. „Það eru ekki til neinar smá­vægi­legar inn­rásir,“ segir for­seti Úkraínu í and­svari. Stjórn­ar­and­stæð­ing­ur­inn Alexei Navalny segir að Pútín sé að plata.

Platar Pútín Biden?
For­set­arnir Biden býst við inn­rás, Pútín neitar en safnar her­liði og Zelensky áréttar að „smá­vægi­leg inn­rás“ sé ekki til. Mynd: Stundin / JIS

Þrátt fyrir að vest­ræn ríki hafi varað Rússa við inn­rás í Úkraínu og frek­ari inn­limun á land­svæði rík­is­ins í Rússland, hefur Joe Biden Banda­ríkja­for­seti gefið til kynna að hann búist við að Vladimir Pútín Rúss­lands­for­seti láti verða af inn­rás í landið og að verði sú inn­rás „smá­vægi­leg“ gætu Natóríki átt erfitt með að ná saman um aðgerðir. 

Fregnir herma að yfir­völd í Úkraínu séu felmtri slegin yfir yfir­lýs­ingum Biden á blaða­manna­fundi í Hvíta hús­inu í gær. Hann sagð­ist búast við að Rússar gerðu inn­rás í Úkraínu og að það yrði þeim kostn­að­ar­samt, en setti þó fyr­ir­vara á við­brögð Nató­ríkja. „Það er eitt ef þetta verður smá­vægi­leg inn­rás og að við endum á að þurfa að ríf­ast um hvað við gerum og hvað við gerum ekki,“ sagði hann. „En ef þeir gera það sem þeir eru færir um að gera með her­liðið við landa­mærin verður það áfall fyrir Rússa ef þeir ráð­ast enn meira inn í Úkraínu,“ sagði hann.

„Þetta gefur Pútín grænt ljós á að fara inn í Úkraínu eftir eigin henti­semi,“ hefur CNN eftir Úkra­ínskum emb­ætt­is­manni, sem kveðst vera sleg­inn yfir ummælum Bidens, eins og úkra­ínska stjórnin.

Beðinn að árétta orð sín sagð­ist Biden draga lín­una við að Pútin myndi láta „rúss­neskt her­lið fara yfir landa­mærin og drepa úkra­ínska her­menn“. „En það veltur á því hvað hann gerir, hvort við munum fá algera sam­stöðu hjá Nató,“ bætti hann við. Í dag árétt­aði hann svo aftur að allar inn­rásir yrðu metnar sem inn­rásir.

Þannig hafa Þjóð­verjar neitað að veita Úkraínu vopn, en Banda­ríkin og Bretland skuld­bundið sig til þess. Macron Frakk­lands­for­seti vill að Evr­ópu­þjóðir haldi sínar eigin við­ræður við Rússa, en þeir síð­ar­nefndu hafa átt í við­ræðum við Banda­ríkja­menn í Genf í Sviss und­an­farið.

Úkraínsk yfirvöld slegin yfir orðum Bidens

Á sama tíma og Biden lýsir því að Rússar hafi hern­að­ar­lega yfir­burði og gerir grein­ar­mun á smá­vægi­legri inn­rás (incursion) og fullri inn­rás (invasion), ásamt því að lýsa hiki og klofn­ingi Nató­ríkja, hefur Volody­myr Zelensky, for­seti Úkraínu, reynt að róa lands­menn. „Allir lands­menn, sér­stak­lega eldri borg­arar, þurfa að skilja þetta: Allir þurfa að anda djúpt. Slaka á. Ekki hlaupa eftir neyð­ar­birgðum eins og korni og eld­spítum.“

Hann hvatti fjöl­miðla til að ýta ekki undir ótt­ann með stöðugri umfjöllun um yfir­vof­andi inn­rás, enda sé inn­rásin engin ný tíð­indi. „Hvað er nýtt hérna? Er þetta ekki raun­veru­leiki okkar síð­ustu átta ár? Byrjaði ekki inn­rásin árið 2014?“

Þó er nýtt í stöð­unni að Rússar hafa fjölgað í her­liði sínu við landa­mæri Úkraínu og eru nú komnir með her­menn inn í Hvíta-Rússland, á þeim for­sendum að halda her­æf­ingar í febr­úar, sam­hliða æfingum flot­ans á Mið­jarð­ar­hafi og á heim­skauta­svæð­inu. Þá eru hafnar við­ræður milli Rússa og Banda­ríkj­anna í Genf, sem snú­ast um kröfur Pútíns. 

Zelensky, sjón­varps­maður og grínisti sem kjör­inn var for­seti 2019 eftir að hafa leikið for­seta, reyndi í dag að svara orðum Bidens. 

Á fundi í gærForseti Úkraínu, Volodomyr Zelensky, hitti banda­ríska utan­rík­is­ráð­herr­ann, Antony Blinken, í úkra­ínsku höf­uð­borg­inni, Kyiv, í gær.
„Ég vil minna miklu veldin á að það eru ekki til neinar smá­vægi­legar inn­rásir og litlar þjóðir.“
Volodomyr Zelensky
Forseti Úkraínu, 20. jan­úar 2022

„Ég vil minna miklu veldin á að það eru ekki til neinar smá­vægi­legar inn­rásir og litlar þjóðir. Alveg eins og það er ekk­ert smá­vægi­legt mann­fall og lítil sorg við frá­fall ást­vina,“ sagði hann á Twitter.  „Ég segi þetta sem for­seti mik­ils veldis,“ bætti hann við. Klukku­tíma síðar tísti Zelensky um yfir­vof­andi við­ræður hans við Andrzej Duda, for­seta Póllands, um áskor­anir í örygg­is­málum, og sam­starf í sam­göngu- og orku­málum.

Að sama skapi hefur for­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar boðið Zelensky í heim­sókn og ítrekað fullan stuðn­ing við full­veldi Úkraínu, ásamt því að skora á Rússa að minnka spenn­una við landa­mærin. Áður hafði sænski for­sæt­is­ráð­herr­ann, Magda­lena Anderson úr Jafn­að­ar­manna­flokknum, vitnað í við­ræður sínar við kanadíska for­sæt­is­ráð­herr­ann, Justin Trudeau, og síðar for­sæt­is­ráð­herra Litháens, Ingrida Simonyte, um örygg­is­mál og mik­il­vægi þess að halda uppi öryggi í Evrópu.

Pútin miðar og setur fram kröfur

Vladimir Pútín Rúss­lands­for­seti hefur kraf­ist, með upp­stilltu her­liði við landa­mæri nágranna­rík­is­ins Úkraínu, að Rússar fái að hindra aðild sjálf­stæðra nágranna­ríkja sinna að Nató.

Skiptar skoð­anir eru um hvers vegna Pútín hótar nú inn­rás. Ein kenn­ingin er sú að Joe Biden hafi sýnt afger­andi veik­leika í klúð­urs­legu brott­hvarfi Banda­ríkja­hers frá Afganistan fyrr í vetur. Biden hafi þannig gefið til kynna að hann vilji taka upp ein­angr­un­ar­stefnu og sé átaka­fæl­inn.

Pútín hefur áður sagt að hann telji fall Sov­ét­ríkj­anna vera „mesta kata­st­rófa alþjóða­stjórn­mála“ á 20. öld. Hann hefur þegar kom­ist upp með að styðja upp­reisn rúss­neskra aðskiln­að­ar­sinna með vopnum, og að mati vest­rænna aðila með her­liði, ásamt því að inn­lima Krím­skag­ann í Rússland 2014.

Hins vegar hafa rúss­nesk yfir­völd haldið því fram að þau hyggi ekki á inn­rás í Úkraínu og að vest­ræn ríki séu að hella olíu á eld­inn með yfir­lýs­ingum þess efnis.

Viðræður Banda­ríkj­anna og Rússa halda áfram í Genf á morgun þegar Sergey Lavrov, utan­rík­is­ráð­herra Rúss­lands, hittir banda­ríska utan­rík­is­ráð­herr­ann Antony Blinken, sem í dag ræddi við breska, franska og þýska starfs­bræður sína í Berlín, eftir að hafa hitt Zelensky í Kiyv í gær.

Biden og PútínHittust í Genf í júní síð­ast­liðnum. Ræða nú um kröfur Pútíns um að vest­ur­veldin láti af her­æf­ingum nærri Rúss­landi og stofni ekki til sam­starfs við nágranna­ríki Rúss­lands um örygg­is­mál.

Pútín að narra Biden?

Deildar mein­ingar eru um hversu raun­veru­leg eða breytt ógnin af Rússum sé, eða hvort ógnin sé hrein­lega Vest­ur­lönd. „Það erum ekki við sem erum að ógna ein­hverjum,“ sagði Pútín fyrir jól. 

Ein kenn­ing Banda­ríkja­manna er sú að Rússar muni skipu­leggja árás undir fölsku flaggi (false flag operation) til að fram­kalla atburða­rás átaka, en þannig hófu til dæmis Þjóð­verjar inn­rás í Pólland haustið 1939.

„Í stað þess að hunsa þessa vit­leysu sam­þykkja Banda­ríkin dag­skrá Pútíns“
Alexei Navalny
Rúss­neskur stjórn­ar­and­stæð­ingur í við­tali við Time

Rúss­neski stjórn­ar­and­stæð­ing­ur­inn, Alexei Navalny, sem var nærri dauða en lífi eftir að eitrað var fyrir honum árið 2020, segir að Biden láti plata sig til þess að taka þátt í við­ræðum við Pútín. „Aftur og aftur falla vest­ur­lönd í gildru Pútíns,“ segir Navalny í við­tali við Time. „Hann kemur fram með ein­hverjar sturl­aðar, hlægi­legar kröfur, eins og þessar nýj­ustu, um hvernig hann og Biden þurfa að setj­ast niður í reyk­fylltu her­bergi og ákvarða örlög Evrópu, eins og við séum komin aftur til 1944. Í stað þess að hunsa þessa vit­leysu sam­þykkja Banda­ríkin dag­skrá Pútíns og hlaupa til með að skipu­leggja ein­hvers konar fundi. Rétt eins og hræddur skóla­drengur sem stóri strák­ur­inn er að hrella. Síðan lýsa þeir yfir: „Ef þið gerið eitt­hvað, þá leggjum við á harðar þving­un­ar­að­gerðir.“ Það er nákvæm­lega það sem Pútín þarf, því ef hann síðan ræðst ekki á Úkraínu, þá verða engar þving­anir. Það verður bara gul­rót, en ekki kylfa.“ 

Navalny lét þessi orð falla í skrif­legu við­tali við Time, þar sem hann situr í fang­elsi í Rúss­landi eftir end­ur­komu sína til Moskvu fyrir ári síðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigurður Þórarinsson skrifaði
    Kúba var sem sagt ekki ,,sjálfstætt ríki" er ,,Cuban missile crisis" var á allra vitorði??? En það sem hr. Jón Trausti veit eflaust fullvel... en tekur ekki fram í þessari umfjöllun sinni:

    https://fair. org/home/hawkish-pundits-downplay-threat-of-war-ukraines-nazi-ties/
    0
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Held að þetta geti verið rétt hjá Navalny enda er það líka svo að Bandaríkjamenn hafa svona sögulega séð átt afar erfitt með að lesa Rússa og oft á tíðum bara alls ekki skilið hvernig þeir hugsa.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár