Gráir fyrir járnum Úkra­ínskir vara­liðs her­menn taka þátt í her­æf­ingu í nágrenni Kænu­garðs 25. des­em­ber síð­ast­lið­inn. Her­menn­irnir eru hluti af vara her­deildum sem hafa það hlut­verk að verja borg­ina ef til árásar kæmi. Þúsundir Úkra­ínu­manna hafa gengið til liðs við vara­liðið á síð­ustu mán­uðum vegna ógn­anna Rússa. Mynd: afp / Sergei SUPINSKY

Staðan í Kænugarði: „Við viljum lýðræði og mannréttindi“

Úkra­ínu­menn telja aðgerðir Pútín, for­seta Rúss­lands, sem fjölgað hefur her­mönnum á landa­mærum ríkj­anna veru­lega, fremur vera ógnun en að raun­veru­leg inn­rás sé yfir­vof­andi. Þeir hafa hins vegar áhyggjur af því hvernig ógn­anir og þrýst­ingur Rússa hamli sam­skiptum við vest­ræn ríki og fram­þróun í land­inu.

Ég verð að við­ur­kenna að áður en för minni var heitið til Úkraínu var ég með mínar efa­semdir um það hvort það væri yfir­höfuð snið­ugt að halda í þennan leið­angur. Úkraína er enda eitt fátæk­asta land Evrópu þar sem mögu­legt her­nám er yfir­vof­andi. Landið átti þó eftir að koma mér mikið á óvart.

Und­an­farna mán­uði hafa frétta­miðlar víða um heim fylgst náið með við­veru Rúss­lands­hers við landa­mæri Úkraínu þar sem allt bendir til þess að Rússar séu að und­ir­búa sig fyrir inn­rás. Það hefur ríkt mikil spenna á milli Úkra­ínu­manna og Rússa allt frá falli Sov­ét­ríkj­anna. Í febr­úar árið 2014 hertók Rússland bæði Krím­skaga og Donbass. Hernámið átti sér stað í kjöl­far Maidan bylt­ing­ar­innar sem hófst í nóv­em­ber árið 2013, þar sem Úkra­ínu­menn mót­mæltu ákvörðun þáver­andi rík­is­stjórnar að fresta und­ir­ritun á sam­starfs­samn­ingi við Evr­ópu­sam­bandið og ákváðu í stað­inn að mynda nán­ari tengsl við Rússland. Bylt­ingin náði hámarki þann 22. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jóhannes Ragnarsson skrifaði
    Um að gera fyrir Stundina að taka þátt í áróðri og lygum heimsvaldasinna á Vesturlöndum.
    0
  • Sigurður Þórarinsson skrifaði
    Hin hliðin:

    https://www. strategic-culture. org/news/2021/12/21/crimea-is-calm-which-upsets-nato-because-it-prefers-confrontation/
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár