„Ég er saklaus“ segir Logi Bergmann sem staðfestir hluta sögunnar

Fjölmiðla­maðurinn Logi Bergmann Eiðsson segist ekki hafa brotið kynferðis­lega á ungri konu, líkt og hann hefur verið sakaður um. Hann er kominn í leyfi frá störfum sínum frá útvarps­stöðinni K100 vegna málsins.

Fjölmiðla­maðurinn Logi Bergmann Eiðsson segist saklaus af ásökunum um að hafa brotið á ungri konu á síðasta ári. Hann er kominn í leyfi frá störfum sínum á útvarps­stöðinni K100 vegna ásakananna. Það tilkynnti hann sjálfur við upphaf síðdegis­þáttarins þar sem hann er einn umsjónar­manna.

„Ég er saklaus af þeim sökum sem á mig hafa verið bornar undan­farna daga. Ég hef alla mína ævi haft andstyggð á hvers kyns ofbeldi, staðið með fórnar­lömbum þess og stutt baráttu þeirra í gegnum tíðina. Ekkert er fjær mér en að þröngva annarri manneskju til kynferðislegra athafna,“ segir Logi í færslu á Facebook-síðu sinni. Ekki hefur náðst í Loga undan­farið vegna málsins þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. 

Konan, Vítalía Lazareva, nafn­greindi hann á Instagram-reikningi sínum en í viðtali í hlaðvarps­þættinum Eigin konur lýsti hún nánar um hvað ásakanir sínar fela í sér án þess að nafn­greina Loga. 

Þó að Logi segist saklaus …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Einar Már Gunnarsson skrifaði
    Afhverju eru drullusokkar svo framarlega í stjórnunarstörfum?
    0
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Það virðist allt stefna í að Vítalía þurfim á aðstoð Haraldar Þorleifssonar ef Flokks felagarnir eru búnir að koma sér niður á lausn í þessu máli og ætla að leika fórnarlömb.
    0
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Er það rangt skilið hjá mér að hann hafi komið sér í núverandi hjónaband með framhjáhaldi,að endurtaka leikin er bara sjálf sagt hjá sumum mönnum,vorkun mín er hjá konuni hans
    0
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Auðvitað er Logi alsaklaus. Það skilja allir :-)
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár