„Ég er saklaus“ segir Logi Bergmann sem staðfestir hluta sögunnar

Fjöl­miðla­mað­ur­inn Logi Bergmann Eiðsson seg­ist ekki hafa brotið kyn­ferð­is­lega á ungri konu, líkt og hann hefur verið sak­aður um. Hann er kom­inn í leyfi frá störfum sínum frá útvarps­stöð­inni K100 vegna máls­ins.

Fjöl­miðla­mað­ur­inn Logi Bergmann Eiðsson seg­ist sak­laus af ásök­unum um að hafa brotið á ungri konu á síð­asta ári. Hann er kom­inn í leyfi frá störfum sínum á útvarps­stöð­inni K100 vegna ásakan­anna. Það til­kynnti hann sjálfur við upp­haf síð­deg­is­þátt­ar­ins þar sem hann er einn umsjón­ar­manna.

„Ég er sak­laus af þeim sökum sem á mig hafa verið bornar und­an­farna daga. Ég hef alla mína ævi haft and­styggð á hvers kyns ofbeldi, staðið með fórn­ar­lömbum þess og stutt bar­áttu þeirra í gegnum tíð­ina. Ekkert er fjær mér en að þröngva annarri mann­eskju til kyn­ferð­is­legra athafna,“ segir Logi í færslu á Facebook-síðu sinni. Ekki hefur náðst í Loga und­an­farið vegna máls­ins þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir. 

Konan, Vítalía Lazareva, nafn­greindi hann á Instagram-reikn­ingi sínum en í við­tali í hlað­varps­þætt­inum Eigin konur lýsti hún nánar um hvað ásak­anir sínar fela í sér án þess að nafn­greina Loga. 

Þó að Logi seg­ist sak­laus …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Einar Már Gunnarsson skrifaði
    Afhverju eru drullusokkar svo framarlega í stjórnunarstörfum?
    0
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Það virðist allt stefna í að Vítalía þurfim á aðstoð Haraldar Þorleifssonar ef Flokks felagarnir eru búnir að koma sér niður á lausn í þessu máli og ætla að leika fórnarlömb.
    0
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Er það rangt skilið hjá mér að hann hafi komið sér í núverandi hjónaband með framhjáhaldi,að endurtaka leikin er bara sjálf sagt hjá sumum mönnum,vorkun mín er hjá konuni hans
    0
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Auðvitað er Logi alsaklaus. Það skilja allir :-)
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár