Félag Þorsteins Más á 56 milljarða og hyggst greiða út arð í fyrsta sinn

Félag Þorsteins Más Baldvins­sonar og Helgu S. Guðmunds­dóttur, fyrr­verandi eiginkonu hans, seldi hlutabréf sín í útgerðar­félaginu Samherja til barna þeirra. Félagið á í dag tugmilljarða eignir og heldur meðal annars utan um eignarhalds­félög sem áttu starfsemi Samherja í Namibíu.

Eignarhalds­félag Þorsteins Más Baldvins­sonar, forstjóra Samherja, og fyrr­verandi eiginkonu hans, Helgu S. Guðmunds­dóttur, á eignir upp á tæplega 56 milljarða króna. Á móti þessum eignum eru litlar skuldir, einungis rúmlega 1,5 milljarðar króna. Félagið heitir Eignarhalds­félagið Steinn ehf. Ársreikningi félagsins var skilað til Ríkis­skattstjóra í byrjun desember síðastliðinn.

Þetta félag hélt utan um eignar­hluti þeirra Þorsteins Más og Helgu í Samherja þar til það seldi bréfin til eignarhalds­félags barna þeirra, Baldvins og Kötlu Þorsteins­barna, í fyrra. Bréfin voru seld með láni frá Eignarhalds­félaginu Steini ehf. sem stóð í rúmlega 214 milljónum evra, rúmum 29 milljörðum króna, í lok árs í fyrra. 

Lánið er skilgreint sem krafa á hendur „tengdum aðila“ í ársreikningi Eignarhalds­félagsins Steins ehf. Lántakandinn er eignarhalds­félag þeirra Baldvins og Kötlu, K&B ehf.

Gagn­rýndi að afnota­réttur af kvóta erf­istKatrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra gagn­rýndi það í fyrra að afnota­réttur af kvóta gæti …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • P
    Piotr skrifaði
    In a normal world, Samherji would be locked up and the owners would spend the rest of their lives in prison. But the case happened in Iceland.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verjanna tuttugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólöglegrar uppsagnar Samherja­félags í Namibíu, kallar eftir því að Íslendingar axli ábyrgð á framkomu sinni í Namibíu. Það standist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af málinu. Forstjóri Samherja lofaði því að fyrir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bindingar og sérstak­lega hugað að sjómönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár