Þriðjungur allra íbúðakaupa fyrstu kaup

Dregið hefur jafnt og þétt úr fjölda fyrstu kaupa á íbúðum á yfir­stand­andi ári. Verð fyrstu íbúða fólks er nú um fjórum millj­ónum hærra en var fyrir ári síðan. Með­al­aldur fyrstu kaup­enda er 29,5 ár.

Þriðjungur allra íbúðakaupa fyrstu kaup
Fyrstu kaupum fækkar Kaupum á fyrstu eign hefur fækkað um tals­vert frá því á fyrsta árs­fjórð­ungi. Mynd: Shutterstock / Jóhann Helgason

Á þriðja árs­fjórð­ungi yfir­stand­andi árs voru 1.562 íbúðir keyptar af fólki sem var að kaupa sína fyrstu eign. Eru það tölu­vert færri fyrstu kaup en voru á öðrum árs­fjórð­ungi og einnig á fyrsta árs­fjórð­ungi en aldrei höfðu fleiri keypt sér sína fyrstu íbúð en þá. Aldrei hafa fleiri fyrstu kaup verið gerð en á  fyrsta árs­fjórð­ungi þessa árs, alls 1.938.

Þetta kemur fram í gögnum Þjóð­skrár Íslands. Þar má sjá að fyrstu kaup tóku mik­inn kipp á þriðja árs­fjórð­ungi síð­asta árs þegar 1.913 íbúðir voru keyptar af fólki sem var að kaupa sína fyrstu eign. Á fjórða árs­fjórð­ungi þess árs voru kaupin 1.777 tals­ins. Fjöldi fyrstu kaupa hefur aldrei verið neitt í lík­ingu við það sem hefur verið und­an­farið ár en hæst hafði hann farið í 1.427 árið 2007. Með­al­aldur þeirra sem keyptu sína fyrstu íbúð á árs­fjórð­ungnum var 29,5 ár.

Að með­al­tali greiða fyrstu kaup­endur fjórum millj­ónum króna meira í dag fyrir sína fyrstu íbúð en þeir gerðu fyrir ári síðan. Með­al­kaup­verð íbúð­anna er nú 45,4 millj­ónir fyrir 96,9 fer­metra íbúð, sem er með­al­stærð íbúða sem fyrstu kaup­endur keyptu. Það jafn­gildir um 469 þús­und krónur á fer­metra. Mest greiða kaup­endur fyrir sína fyrstu eign á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en minnst á Aust­ur­landi. Lang­flestir fyrstu kaup­endur voru á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, 977 tals­ins sem jafn­gildir 62,5 pró­sentum.

Hlutfall fyrstu kaup­enda var lægst á Norð­ur­landi vestra á síð­asta árs­fjórð­ungi, um fjórð­ungur allr kaup­enda. Hæst var hlut­fallið á Vest­fjörðum, um 45 pró­sent allra kaup­enda. Vakin er athygli á að fáir samn­ingar geti verið að baki við­skiptum í ein­stökum lands­fjórð­ungum á hverjum árs­fjórð­ungi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár