Vorum ekki undirbúnar fyrir svona harða pólitík

Ungir umhverf­is­sinnar stóðu fyrir Sól­ar­kvarð­anum, mæli­kvarða á umhverf­is­stefnur stjórn­mála­flokka fyrir kosn­ing­arnar. Aðstand­endur hans segj­ast ekki hafa átt von á því að mæta rang­færslum og harðri póli­tík stjórn­mála­afla vegna þess, en það hafi þurft að grípa til drastískra aðgerða til að gera umhverf­is­vernd að kosn­inga­máli.

Vorum ekki undirbúnar fyrir svona harða pólitík
Lögðu allt í þetta Tinna og Sigríður brenna báðar fyrir umhverf­is­málum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Sex af þeim níu flokkum sem bjóða sig fram til alþing­is­kosn­inga árið 2021 fengu fall­ein­kunn fyrir umhverfis- og lofts­lags­stefnu sína ef miðað er við Sól­ar­kvarða Ungra umhverf­is­sinna. Óhætt er að full­yrða að með­limir flokk­anna voru mis­á­nægðir með nið­ur­stöð­urnar og kvört­uðu ýmsir sáran yfir lágri ein­kunn. 

„Auðvitað er fólk aldrei ánægt með að fá ein­kunn sem það telur ekki vera nógu háa, sér í lagi ef það kemur því á óvart,“ segir Tinna Hall­gríms­dóttir, for­maður Ungra umhverf­is­sinna. Ein­hverjir hafi þó tekið ein­kunn­ina til sín og nefnt að um væri að ræða gott spark í rass­inn. „Það er auð­vitað það sem við viljum, að hvetja öll til að gera betur.“

Vildu setja mestan þunga á loftslagsmálin

Hver flokkur gat fengið allt að 100 stig og var ákveðið að skipta kvarð­anum í þrjá und­ir­flokka, lofts­lags­mál, nátt­úru­vernd og hringrás­ar­sam­fé­lag. „Við vildum setja mestan þunga á lofts­lags­málin svo þau gilda 40 …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár