Framsóknarflokkurinn tilbúinn til að reka ríkissjóð með halla um fyrirsjáanlega framtíð

Ráðast þarf í kerf­is­breyt­ingu í öllum vel­ferð­ar­málum þar sem fjár­fest verður í fólki segir Ásmundur Einar Daðason, odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík norður. Hefð­bundin hug­mynda­fræði sem byggir á að það séu mála­flokkar kalli bara á útgjöld er gjald­þrota að hans mati. Hann sjálfur og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn séu í sókn í átt að auk­inni félags­hyggju.

Ásmundur Einar Daðason, félags­mála­ráð­herra og odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður, segir að flokk­ur­inn sé til­bú­inn til að reka rík­is­sjóð með halla um fyr­ir­sjá­an­lega fram­tíð á meðan farið verður í kerf­is­breyt­ingu í félags­legum mála­flokkum. Það kosti veru­legar fjár­hæðir en muni skila sér til baka í fram­tíð­inni. Flokk­ur­inn vilji fjár­festa í fólki.

„Við tölum alltaf um þetta eins og hefð­bundin útgjöld, hefð­bundna kostn­að­ar­liði fyrir sam­fé­lagið, og ef ég á að vera alveg heið­ar­legur þá finnst mér þessi hug­mynda­fræði, þessi hugsun og nálgun, ákveðið gjald­þrota,“ segir Ásmundur um það hvernig stjórn­mála­menn hafi nálg­ast þá mála­flokka sem heim­færa má undir vel­ferð­ar­mál í póli­tískri umræðu.

Í við­tali Stund­ar­innar kemur fram að Ásmundur vill sitja áfram í stóli félags­mála­ráð­herra á næsta kjör­íma­bili. Hann brenni fyrir mála­flokknum og vilji breyta stjórn­mál­unum, og þar með sam­fé­lag­inu sjálfu. Þess vegna hafi hann tekið ákvörðun um að færa sig um kjör­dæmi og fara úr öruggu sæti í Norð­vest­ur­kjör­dæmi yfir í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður. Ákvörðun sem ber vissu­lega vott um nokk­urt hug­rekki, að færa sig í kjör­dæmi þar sem Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur í sögu­legu sam­hengi staðið veikt. Þannig fékk flokk­ur­inn aðeins 5,3 pró­sent atkvæða í kjör­dæm­inu í síð­ustu kosn­ingum og engan þing­mann kjör­inn. Í kosn­ing­unum 2016 fékk flokk­ur­inn 5,7 pró­sent atkvæða í kjör­dæm­inu og sömu­leiðis engan þing­mann kjör­inn.

Eðlilegt væri að for­menn núver­andi stjórn­ar­flokka sett­ust niður og ræddu áfram­hald­andi sam­starf ef nið­ur­stöður kosn­ing­anna verða þær að stjórnin haldi, segir Ásmundur. Hins vegar ótt­ist hann það ekki ef stjórnin haldi ekki meiri­hluta. Hann úti­lokar ekki sam­starf við neinn þeirra flokka sem bjóða fram en tekur fram að Mið­flokk­ur­inn sé langt frá Fram­sókn­ar­flokknum í ýmsum málum og að erfitt yrði að brúa þann ágrein­ing.

Vill fjárfesta í viðkvæmum hópum

Ásmundur segir að hann sjálfur og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn leggi nú áherslu á þá mála­flokka sem hingað til hafa gjarnan verið kenndir við mýkt, vel­ferð­ar­mál á borð við mál­efni barna, aldr­aðra og öryrkja. Í þeim öllum þurfi að verða kerf­is­breyt­ing og er honum tíð­rætt um þá veg­ferð sem hófst undir hans for­ystu í ráðu­neyt­inu á kjör­tíma­bil­inu í mál­efnum barna. Sú vinna sem hafin var þar, áhersla á bætta og sam­þætta þjón­ustu við börn út frá þeirri hag­rænu nálgun að slíkt muni til lengri tíma bæta lífs­gæði og spara hinu opin­bera fjár­muni, sú vinna eigi að verða fyr­ir­mynd við­líka breyt­inga í öðrum mála­flokkum.

En eftir sem áður er það svo að aðgerðir sem Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn boðar, kosn­inga­lof­orð hans, munu kosta gríð­ar­lega fjár­muni. Á sama tíma er rík­is­sjóður rek­inn með gríð­ar­legum halla. Flokk­ur­inn kynnir hins vegar fáar leiðir til að fjár­magna kosn­inga­lof­orð sín, hvort sem um er að ræða umræddar kerf­is­breyt­ingar, stór­fellda upp­bygg­ingu sam­göngu­mann­virkja eða upp­bygg­ingu þjóð­ar­leik­vanga, svo eitt­hvað sé nefnt.

„Ég vil kannski kategórískt skipta þessu. Ég held til dæmis að aðgerð­irnar sem við erum að boða í mál­efnum fyr­ir­tækja muni bæði leiða af sér tekju­öflun, og eins aflétt­ingu skatta á lítil fyr­ir­tæki en við viljum auka skatta á stærri fyr­ir­tæki. Þar erum við að tala um inn­byrðis milli­færslu.

Síðan, gagn­vart mýkri mála­flokkum, ef þú tekur til að mynda vel­ferð­ar­mál sem við erum að boða tals­verða fram­sækni í þá held ég að það sem við höfum verið að sjá á vinn­unni varð­andi mál­efni barna að við erum að breyta því hvernig við horfum á þessa mála­flokka. Við erum að horfa á þá sem fjár­fest­ingu. Ef þú fjár­festir í við­kvæmum hópum, aðstoðar þá við að vald­efla sig, þá dregur þú úr kostn­aði síðar meir.

Mér finnst umræðan um tekjur og gjöld vera á ákveðnum villi­götum. Þegar þú ert að tala um fjár­lögin og hvernig við horfum á þau næstu árin, þá er verið að tala um vænta aukn­ingu í félags­legri þjón­ustu, vænta aukn­ingu í heil­brigð­is­málum, vænta aukn­ingu í örorku­líf­eyri og svo fram­vegis. En við erum ekki að vinna nóg á hinum end­anum sem getur dregið úr því. Þetta er hug­mynda­fræðin, og það er ástæðan fyrir því í þessum mýkri málum, að við erum ekki með tekju­öfl­un­ar­að­gerðir sem ball­anser­ast á móti, af því að hug­mynda­fræðin er að fara að taka mál­efni fólks, sér­stak­lega jað­ar­setts fólks, út fyrir sviga og fara að horfa á þau sem fjár­fest­ingu. Þannig mun þetta skila arði fyrir sam­fé­lagið.“

Gamaldags nálgun að jöfnuður í rekstri ríkissjóðs sé lykilatriði

En það þarf að hafa til þess fjár­muni í bráð, og þeirra sér ekki stað í ykkar stefnu­skrá. Og það er mik­il­vægt að spyrja að þessu núna vegna þess að rík­is­sjóður er rek­inn með marg­millj­arða króna halla. Hvernig ætlið þið að gera þetta á næsta kjör­tíma­bili?

„Íslenska ríkið hefur farið í ýmsar fjár­fest­ingar í gegnum tíð­ina. Það var byggð hér heil Kára­hnjúka­virkjun, hún var ekki borguð á fjórum árum. Við höfum byggt upp Kefla­vík­ur­flug­völl, hann var ekki borg­aður á fjórum árum. Það sem við þurfum að gera er að horfa á fólkið, hvernig við getum vald­eflt það og styrkt það, með fjár­hag­legri inn­spýt­ingu til þess að draga úr kostn­aði síðar meir. Til þess getur verið rétt­læt­an­legt að reka rík­is­sjóð með ein­hverjum halla í lengri tíma, ef þú ert viss um að þú sért að fjár­festa í fólk­inu til að draga úr kostn­aði síðar. Þetta er kerf­is­breyt­ing og hug­ar­fars­breyt­ing sem mig langar til að sjá í íslenskum stjórn­málum.“

„Til þess getur verið rétt­læt­an­legt að reka rík­is­sjóð með ein­hverjum halla í lengri tíma“

Ertu þá að boða það, að ef þú og þínir sam­flokks­menn fái að ráða, að rík­is­sjóður verði rek­inn á næstu árum með enn auk­inni skuld­setn­ingu og til þess að fara í þessar aðgerðir sem þú treystir á að muni til lengri tíma skila jákvæðum árangri í fjár­mála­hlut­anum?

„Já, það er þannig. Það væri mjög óskyn­sam­legt í stjórn­mál­unum að skera niður svona aðgerðir sem að sann­ar­lega munu skila arði eftir átta ár til að ná tíma­bundnum jöfn­uði í rík­is­sjóði núna, á næsta ári eða þarnæsta. Þá værum við ekki að byggja upp sam­fé­lagið til lengri tíma, til að það verði sterkara.“

En nú hefur núver­andi sam­starfs­flokkur ykkar í rík­is­stjórn, Sjálf­stæð­is­flokkur, boðað í sinni kosn­inga­stefnu­skrá að rík­is­sjóður verði rek­inn án halla í lok næsta kjör­tíma­bils. Getið þið þá náð lend­ingu ef til kæmi, þú og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn við Sjálf­stæð­is­flokk­inn, eftir kosn­ingar?

„Þetta er auð­vitað eitt af því sem við erum að kjósa um. Við náðum sam­stöðu um það í rík­is­stjórn­inni að fara í fyrsta fas­ann í þessu barna­verk­efni sem byggir á því að eyða fjár­magni á næstu árum til að spara síðar. Ég treysti því að ef við náum þessum árangri förum við að sjá fleiri vilja koma til liðs við þetta og fara inn í kerf­is­breyt­ingu. En það er líka alveg heið­ar­legt að segja að mér finnst nálg­unin á þessa mála­flokka, þegar kemur að jöfn­uði í rík­is­fjár­málum og öðru slíku, mér finnst hún ákveðið gam­al­dags. Ég held að þarna sé mál­efna­legur ágrein­ingur milli stjórn­ar­flokk­anna um næstu skref í þessu en verður hægt að brúa það? Það fer allt eftir því hvernig nið­ur­stöður kosn­ing­anna verða og hvernig sam­tal flokk­anna verður eftir kosn­ingar.“

Boðar sókn til félagshyggju 21. aldarinnar

Er Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn að fær­ast meira í átt til félags­hyggju, og átt þú þá stóran þátt í því?

„Ég held að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn sé að sækja fram þegar kemur að félags­hyggju. Ég held líka, og það hefur mér fund­ist síð­ustu árin, að félags­hyggja 21. ald­ar­innar muni snú­ast um að taka hag­ræna nálgun á fólk og hvernig hægt er að vald­efla það, eflt fólk til að sækja fram sjálft. Við vitum það sjálf að ef ein­stak­lingi líður ekki vel, ef mér og þér líður ekki vel í okkar lífi, þá erum við ekki að sækja fram, við erum ekki að skapa, við erum ekki á vinnu­mark­aði. Þetta er hug­mynda­fræði sem mig langar til að sjá sterk­ari, já það má kannski kalla þetta að við séum að sækja í átt til auk­innar félags­hyggju og ég er mjög stoltur af því.“

„Það má kannski kalla þetta að við séum að sækja í átt til auk­innar félags­hyggju og ég er mjög stoltur af því“

Í stefnu flokks­ins boðið þið að almennt frí­tekju­mark elli­líf­eyr­is­þega hækki í skrefum en líka að líf­eyr­is­skerð­ingar vegna atvinnu­tekna verði afnumdar. Hafið þið reiknað út hvað það gæti skilað líff­eyr­is­þegum miklum kjara­bótum og eins hvað það gæti kostað rík­is­sjóð?

„Gagnvart atvinnu­tekj­unum þá eru það í raun­inni miklu lægri fjár­hæðir en margur heldur. Ég get alveg sagt þér að það er eitt af þeim málum sem mig lang­aði til að ná lengra með á kjör­tíma­bil­inu. Ég held að þar eigi að vera hægt að stíga ein­hver skref til­tölu­lega hratt á næsta kjör­tíma­bili og skapa þar ein­hverja línu sem væri til ein­hverra ára. En sam­hliða því er annar angi á mál­efnum eldra fólks sem þarf að skoða og það er þjón­ustan við það. Félags­leg staða eldra fólks, hús­næð­is­mál eldra fólks, þann þátt þurfum við að tengja miklu fleiri aðila inn í. Við sjáum fjölda eldra fólks sem kom­inn er á þann stað að þarfn­ast þjón­ustu, það er nákvæm­lega sama staðan sem það fólk og fjöl­skyldur þess eru í og fjöl­skyldur barna eru í. Þeir vita ekk­ert hvert þeir eiga að leita, þeir vita ekk­ert hvert þeir eiga að sækja, kerfið er flókið og kerfið talar ekki saman og það er eng­inn með heild­ar­yf­ir­sýn.“

Og það þarf þá að veita þar inn hærri fjár­hæðum?

„Bæði fjár­hæðum, en það er líka það sem ger­ist þegar kerfin tala ekki saman, og það fundum við í hag­rænum útreikn­ingum í mál­efnum barna, að það fara miklir fjár­munir til spillis í þjón­ustu við við­kvæma hópa. Af því fólkið talar ekki saman, við höfum ekki búið til mann­gang­inn, það eru allir að vinna í sílóum. Við þurfum að búa til mann­gang­inn og sam­talið á milli kerf­anna og það höfum við verið að vinna grunn­inn að.“

Ertu þá sann­færður um að þetta muni leiða til minni útgjalda til lengri tíma?

„Ég er algjör­lega sann­færður um það. Það er mjög dýrt að vera með mjög þung úrræði, þriðja stigs úrræði, hvort sem er í mál­efnum eldra fólks eða barna. Við erum alltaf að ríf­ast um fjár­magn til þess­ara þriðja stigs úrræða í stað þess að vinna meira á hinum end­anum.“

Vill ekki endurtaka leikinn frá 2009

Þið boðið heild­ar­end­ur­skoðun á mál­efnum öryrkja. Slíkt tekur tíma. Hvers vegna er þá til að mynda ekki boðað í kosn­inga­stefnu­skrá ykkar að frí­tekju­mark líf­eyris örykja eða atvinnu­tekjur þeirra skerði ekki greiðslur til þeirra, rétt eins og hjá öldruðum?

„Við vorum að vinna með þær tölur á þessu kjör­tíma­bili í drögum að kerf­is­breyt­ingu sem ekki náðu í gegn, þörfn­uð­ust meiri tíma. Þar vorum við að gera ráð fyrir tólf millj­arða inn­spýt­ingu í þann mála­flokk til að efla þá ein­stak­linga. Ég sé þetta bara ger­ast sjálf­krafa með kerf­is­breyt­ingu í mál­efnum örorku­líf­eyr­is­þega.“

Er þetta ger­legt, höfum við tök á því hvað varðar fjár­muni á næstu árum? Getum við farið í þessa veg­ferð í þeirri stöðu sem rík­is­sjóður er í núna og án þess að afla tekna með ein­hverjum öðrum hætti?

„Ég er ekki mót­fall­inn auknum tekju­öfl­un­ar­að­gerðum, ef þær eru skyn­sam­legar og draga ekki úr þrótti atvinnu­lífs­ins. Eins og ég sagði áðan viljum við sjá aukna tekju­öflun á stærri fyr­ir­tæki sem eru að skila meiri arði, til þess að geta létt á litlum og með­al­stórum fyr­ir­tækjum. Atvinnan er grunn­ur­inn að vel­ferð­inni og við sjáum hvað fer mikið fjár­magn í það þegar atvinnu­leysi eykst af almannafé, í stað­inn fyrir að það komi til skatt­tekjur.

„Við ættum að vera að ræða ein­hvers konar fjár­fest­inga­á­ætlun fyrir fólk“

Við fórum inn í kjör­tíma­bilið 2009 með gam­al­dags umræðu um að það þyrfti að ná hag­ræð­ingu í rík­is­sjóði og ná jöfn­uði fyrir ákveð­inn tíma en vorum ekki að hugsa um fólkið sjálft, ekki nógu mikið. Ég er ekki að gera lítið úr því fólki sem þar stjórn­aði, ég var hluti af því liði. Ég er bara að segja: Til þess að breyta þessu þurfum við að breyta nálgun okkar á þessi mál. Við tölum um fjár­fest­inga­á­ætlun í sam­göngum, við tölum um byggða­á­ætlun. Við ættum að vera að ræða ein­hvers konar fjár­fest­inga­á­ætlun fyrir fólk, þar sem við værum að ræða hvort hægt sé að eyða fjár­magni inni í kerf­inu sem muni skila sér og draga úr kostn­aði síðar meir. Slík kerf­is­breyt­ing myndi skila árangri, ann­ars munum við bara sog­ast inn í hefð­bund­inn nið­ur­skurð, hefð­bundna nið­ur­skurð­ar­um­ræðu og hefð­bundna póli­tík eins og hún hefur verið, eins og hún er að teikn­ast upp á milli vinstri og hægri.“

Svo þú vilt breyta póli­tík­inni sjálfri?

„Já, þess vegna lang­aði mig í fram­boð í Reykja­vík, þess vegna lang­aði mig ekki að vera stjórn­mála­maður sem væri í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og gæti hallað mér aftur í stólnum og væri ekki í nokk­urri hættu póli­tískt. Þetta er póli­tíkin sem mig langar til að breyta, þess­ari hug­mynda­fræði, fá þessa nálgun inn í fleiri mála­flokka, inn í heil­brigð­is­málin líka, og þá held ég að við getum breytt sam­fé­lag­inu. Þess vegna er ég í fram­boði, ekki vegna þess að mig langar að vera þing­maður bara til að vera þing­maður.“

Ný stjórnarskrá ekki forgangsmál

Í grunn­stefnu Fram­sókn­ar­flokks­ins segir að flokk­ur­inn vilji byggja á grunn­gildum lýð­ræðis en að sama skapi að flokk­ur­inn lýsi fullum stuðn­ingi við núver­andi stjórn­ar­skrá. Hvernig sam­rým­ist það grunn­gildum lýð­ræðis að fylgja ekki nið­ur­stöðu þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um nýja stjórn­ar­skrá?

„Mér finnst málin sem ég hef verið að leggja áherslu á, eðli máls­ins sam­kvæmt, mik­il­væg­ari. Við þurfum ekki nýja stjórn­ar­skrá til að breyta því þannig að ég brenn meira fyrir því en nýrri stjórn­ar­skrá. En ég ætla að svara spurn­ing­unni. Það sem við höfum sagt í þessum efnum er að það þarf að vinna stjórn­ar­skrá í breiðu sam­starfi allra flokka. Okkar flokkur hefur verið opinn fyrir ákveðnum breyt­ingum þar og verið til­bú­inn til að fara inn í þær. Það náð­ist ekki sam­komu­lag um það á þessu kjör­tíma­bili. Við höfum verið mjög áfram um breyt­ingar sem varða auð­lindir í þjóð­ar­eign, sem varða beint lýð­ræði. Ég segi að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn yrði til­bú­inn í sam­tal um þetta en þetta er ekki stóra málið í mínum huga.“

Nú setja Píratar það sem skil­yrði að það verði farið í stjórn­ar­skrár­breyt­ingar á grunni til­lagna stjórn­laga­ráðs frá 2012. Kæmi slík krafa í veg fyrir að þið gætuð unnið með þeim?

„Eðli stjórn­mál­anna er þannig, og lík­lega verður það í meira mæli á næsta kjör­tíma­bili en nokkru sinni fyrr, að við þurfum að vinna með öðrum flokkum. Raunar eru allar líkur til þess að mjög erfitt verði að mynda rík­is­stjórn nema að hún verði ein­hvers konar fjöl­flokka rík­is­stjórn. Þá viljum við nálg­ast málin þannig að það sé út frá sam­vinnu á milli fólks, við höfum sýnt að við getum það. Það munum við gera í þessu máli eins og öðrum og það reynir á það í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum. Þá setj­ast menn niður og finna lausnir. Ég held að stað­reyndin sé sú að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn geti fundið lausnir með all­flestum stjórn­mála­flokkum sem eru á þingi, er varðar stefnu­skrár sínar, en þá verðum við að ná okkar málum áfram líka.“

„Ég held til að mynda að Mið­flokk­ur­inn sé tals­vert langt frá okkur þegar kemur að ýmsum málum og ég held að það verði erfitt að brúa það“

Þannig að þú úti­lokar ekki sam­starf við neinn þeirra flokka sem bjóða fram?

„Ég úti­loka ekki sam­starf við neinn þeirra flokka sem bjóða fram en ég held að það séu auð­vitað ákveðnir flokkar sem að séu fjær okkur þegar kemur að málum heldur en nær.“

Eins og hverjir?

„Ég held til að mynda að Mið­flokk­ur­inn sé tals­vert langt frá okkur þegar kemur að ýmsum málum og ég held að það verði erfitt að brúa það. En það er engu að síður svo að við berum ábyrgð á því að mynda rík­is­stjórn og við berum ábyrgð á því að koma okkar málum áfram. Okkar for­maður, Sigurður Ingi, hann er sam­vinnu­maður. Hann er maður sem getur leitt saman ólík sjón­ar­mið. Hann sýndi það á erf­iðum tímum þegar hann var for­sæt­is­ráð­herra á sínum tíma að hann er maður sem getur leitt saman ólík sjón­ar­mið, náð mála­miðl­unum, og það mun þurfa.“

Vill fjögur ár til viðbótar

Myndir þú vilja sjá þá rík­is­stjórn sem nú situr sitja áfram ef nið­ur­stöður kosn­inga gæfu til­efni til að það yrði hægt?

„Ég held að það væri eðli­legt fram­hald að for­menn núver­andi stjórn­ar­flokka myndu setj­ast niður og sjá hvort þeir gætu myndað meiri­hluta. Sjá hvort það næð­ist mál­efna­lega saman um það. En ég hræð­ist það heldur ekki ef að þessi stjórn fær ekki meiri­hluta vegna þess að ég trúi því að allir þeir sem kosnir eru á þing leggi sig saman um að vinna saman að mál­efnum sem skipta máli fyrir þjóð­ina.“

Hver eru verstu mis­tökin sem þessi rík­is­stjórn gerði á kjör­tíma­bil­inu?

„Ég skal ekki segja, það er auð­vitað hægt að tína eitt­hvað til. Ef eitt­hvað væri þá hefðum við átt að koma með hugs­an­lega enn meiri inn­spýt­ingu inn í hag­kerfið núna þegar Covid-far­ald­ur­inn skall á. Ég hefði til að mynda viljað sjá enn sterk­ari inn­spýt­ingu inn í hlut­deild­ar­lánin, sem ekki náð­ist sam­staða um, til að örva nýbygg­ingar. Ég vildi hafa þau stærri þegar þau komu fram en þar þurfti að ná mála­miðlun við einn stjórn­ar­flokk­inn, sem síðan gat ekki stutt málið inn í þing­sal, ekki allir þing­menn hans.“

Og þú ert að tala um Sjálf­stæð­is­flokk­inn hér.

„Ég er að tala um Sjálf­stæð­is­flokk­inn þar. Það er auð­vitað þannig í stjórn­málum að þú nærð aldrei öllu og þú stjórnar aldrei einn, það er stað­reyndin. En heilt yfir finnst mér rík­is­stjórnin, og ég er auð­vitað ekki hlut­laus, hafa tekið vel á málum.“

Gerðir þú sjálfur ein­hver mis­tök sem ráð­herra, sem stjórn­mála­maður, á kjör­tíma­bil­inu?

„Ég held að við hefðum getað náð lengra þegar kemur að málum fleiri við­kvæmra hópa. Ég held að ef við hefðum byrjað fyrr hefðum við getað verið komin lengra þegar Covid-far­ald­ur­inn skall á. Það er flókið að koma málum áfram og skiptar skoð­anir innan stjórn­ar­liðs­ins um alla mögu­lega og ómögu­lega hluti.“

„Ég brenn fyrir þetta og mig langar til að sjá þessar breyt­ingar keyr­ast áfram af því ég trúi á þær“

Ef þú nærð kjöri og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mun eiga aðild að næstu rík­is­stjórn, hvað er þá það allra brýn­asta sem þú vilt ná í gegn á næstu miss­erum?

„Það er þetta sem ég hef rætt, ann­ars vegar að halda áfram í þess­ari barna­vinnu og fara í inn­leið­ing­una á þess­ari risa­stóru kerf­is­breyt­ingu að búa til nýtt þjón­ustu­kerfi fyrir börn sem var sam­þykkt núna rétt fyrir þing­lok og ná að byggja ofan á það.“

Og þú vilt fá að sitja áfram í félags­mála­ráðu­neyt­inu til þess að geta gert það?

„Já, og mig langar til að heim­færa það upp á fleiri mála­flokka þegar kemur að við­kvæmum hópum í íslensku sam­fé­lagi. Já, mig langar til þess að vera í þessu ráðu­neyti áfram. Mig langar til að taka fjögur ár enn vegna þess að ég hef á til­finn­ing­unni að við séum rétt að byrja. Það er auð­vitað líka eðli stjórn­mála­manns­ins en ég brenn fyrir þetta og mig langar til að sjá þessar breyt­ingar keyr­ast áfram af því ég trúi á þær. Ég trúi á að þetta geti skipt veru­legu máli fyrir fullt af fjöl­skyldum, fullt af ein­stak­lingum og muni skipta máli fyrir hag­kerfið í heild.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kosningastundin

Guðmundur Ingi: Atkvæði greitt VG sé atkvæði greitt gegn hægri stjórn
FréttirKosningastundin

Guð­mundur Ingi: Atkvæði greitt VG sé atkvæði greitt gegn hægri stjórn

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son umhverf­is­ráð­herra gengur sáttur frá borði þótt Vinstri græn hafi ekki náð mik­il­vægum mál­efnum í gegn. Helst sér hann eftir mið­há­lend­is­þjóð­garð­inum en mun halda bar­átt­unni áfram og segir lofts­lags­málin vera stærstu verk­efnin á kom­andi kjör­tíma­bili. Þar þarf að grípa til aðgerða í atvinnu­líf­inu og friða bæði hluta af landi og hafi.
Kristrún: „Það er ekki gott að hér verði einhvers konar samfélagsrof“
ViðtalKosningastundin

Kristrún: „Það er ekki gott að hér verði ein­hvers konar sam­fé­lags­rof“

Kristrún Frosta­dóttir, odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík suður, segir að hún hafi alltaf verið jafn­að­ar­maður í hjarta sínu þó hún hafi starfað fyrir Við­skipta­ráð og fjár­mála­fyr­ir­tæki. Hún segir að mik­il­vægt sé að efna­mikið fólk greiði meira til sam­fé­lags­ins og rök­styður stór­eigna­skatta sem rétt­læt­is­mál og góða hag­stjórn.
„Auðvaldið verður aldrei okkar samstarfsmaður“
ViðtalKosningastundin

„Auð­valdið verður aldrei okkar sam­starfs­maður“

Katrín Bald­urs­dóttir, odd­viti Sós­í­alista­flokks­ins í Reykja­vík Suður, segir að Sós­í­alista­flokk­ur­inn sé búinn að reikna út hversu miklar tekjur hann þarf til þess að standa við lof­orð sín og hvernig hann ætlar að nálg­ast slíkar tekjur en vill hins vegar ekki gefa upp hver upp­hæðin er, það væri „fárán­legt“. Hún segir Sós­í­alista­flokk­inn ætla að byggja upp sinn eigin fjöl­miðil, leggja af styrki til fjöl­miðla í gegnum rit­stjórnir og styrkja frekar blaða­menn í að fjalla um það sem flokknum finnst „þess virði“. Þá ætlar flokk­ur­inn sér einnig að setja á fót and-spill­inga­stofnun.
Bjarni Benediktsson sem forsætisráðherra er fyrsta tilboð Sjálfstæðisflokksins
FréttirKosningastundin

Bjarni Bene­dikts­son sem for­sæt­is­ráð­herra er fyrsta til­boð Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Birgir Ármans­son, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, svarar fyrir stefnu og feril flokks­ins í Kosn­inga­stund­inni. Hann ver ráð­herra flokks­ins, heitir áherslu á skatta­lækk­anir og segir kosn­inga­lof­orðin fjár­magn­ast með hag­vexti. Flokk­ur­inn mun gera upp­haf­lega kröfu um að for­mað­ur­inn Bjarni Bene­dikts­son verði for­sæt­is­ráð­herra í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár