Ég vissi ekki hvað ég átti að gera við fjögurra metra skepnu

Eftir 30 ár er Jón Baldur Hlíðberg kom­inn á þann stað sem hann er á núna. Þrátt fyrir að hafa dýpt tánum í mynd­list­ar­skóla sem ungur maður þá var eng­inn sem kenndi honum að teikna heldur hefur hann þurft að tína þetta upp úr götu sinni eftir því sem hann gengur um, það getur verið basl og maður verður að vera þol­in­móður, segir Jón Baldur. Hann kennir nú öðrum tækn­ina sem hann hefur þróað.

Ég vissi ekki hvað ég átti að gera við fjögurra metra skepnu

Hill­billy hitti lista­mann­inn, Jón Baldur Hlíðberg, á vinnu­stof­unni hans sem er stað­sett í bíl­skúrnum á heim­ili hans. Á gólf­inu eru hressar mæðgur, cotton tíkur, bómull­ar­hnoðrar. Móðirin hoppar upp í fangið á Jóni. Jón teiknar dýr, alls konar dýr, og líka blóm, en hefur hann teiknað mæðgurnar? Nei er svarið en hann bætir við að hann hafi oft verið með grát­andi fólk í sím­anum að biðja hann um myndir af nýlátnum gælu­dýrum sínum en hann hefur ekki orðið að þeirri beiðni. „Þetta er eins með börnin, maður sér sitt í and­lit­unum. Gömlu por­trett­mál­ar­arnir fluttu bara inn í gamla daga í tvö ár því þú þarft að þekkja mann­eskj­una til að geta náð henni í þessu ljósi. Ég þyrfti ein­hvern veg­inn að kom­ast inn í haus­inn á katt­ar­eig­and­anum til að vita hvað hann sér í kett­inum, til að geta málað kött­inn, í raun­inni,“ segir Jón. 

Jón vill hafa gaman af öllu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Gallerí Hillbilly

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár