Mynd: Heiða Helgadóttir

Bílar keyra stundum í gegnum nýja galleríið

Mynd­list­artvíeykið Olga Bergmann og Anna Hallin hafa velt fyrir sér virkni mynd­listar í almanna­rými og ólíkum leiðum til að koma henni á fram­færi. Nú voru þær að opna gall­erí í und­ir­göngum á Hverf­is­götu, þar sem bílar aka stundum í gegn til að kom­ast á bak­við húsið. Veg­far­endur staldra gjarnan við og lista­mönnum þykir rýmið spenn­andi.

Hill­billy ræddi við Olgu Bergmann og Önnu Hallin, mynd­list­artvíeyki, um nýtt sýn­ing­ar­rými í miðbæ Reykja­víkur. Anna og Olga hafa unnið saman frá árinu 2005 og hlotið alls kyns lof. „Sam­starfið byrj­aði eig­in­lega óvart þegar okkur var boðið af arki­tektum Arki­búll­unnar að taka þátt í sam­keppni um bygg­ingar og lista­verk í Gufu­nes­kirkju­garði. Það gekk furðu vel og við fundum hvað það getur verið öfl­ugt að vera í sam­starfi og í stöð­ugu sam­tali um hug­myndir og útfærslur, líka að geta skipt með sér verkum og það verður til orka sem er öðru­vísi en þegar maður vinnur í ein­rúmi.“ Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og þær hafa unnið saman að fjölda sýn­inga og verk­efna. „Okkur finnst mjög spenn­andi að takast á við eitt­hvert sam­hengi í verk­efnum okkar. Hvort sem það er ákveðið rými, sögu­legt sam­hengi eða starf­semi. Við höfum gert verk inn í saf­n­eignir, til dæmis Lista­safns Einars Jóns­sonar, byggða­söfn hér …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Gallerí Hillbilly

Ég vissi ekki hvað ég átti að gera við fjögurra metra skepnu
MenningGallerí Hillbilly

Ég vissi ekki hvað ég átti að gera við fjög­urra metra skepnu

Eftir 30 ár er Jón Baldur Hlíðberg kom­inn á þann stað sem hann er á núna. Þrátt fyrir að hafa dýpt tánum í mynd­list­ar­skóla sem ungur maður þá var eng­inn sem kenndi honum að teikna heldur hefur hann þurft að tína þetta upp úr götu sinni eftir því sem hann gengur um, það getur verið basl og maður verður að vera þol­in­móður, segir Jón Baldur. Hann kennir nú öðrum tækn­ina sem hann hefur þróað.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár