Sólarhringur

Þórdís Erla Zoëga (1988)

Sólarhringur

Sól­ar­hring­ur­inn fylgir hringrás lit­breyt­inga sem breyt­ast dag frá degi. Vorið býður okkur hinn full­komna sam­hverfa sól­ar­hring sem birtan og dimman deila bróð­ur­lega á milli sín.

Hið full­komna jafn­vægi.

Þórdís Erla Zoëga (f. 1988) er mynd­list­ar­kona búsett í Reykja­vík.Hún er með BFA gráðu úr Audio Visual deild Gerrit Rietveld Academy í Amster­dam þar sem hún stund­aði nám á árunum 2008–2012. Einnig útskrif­að­ist hún með diplómu í vef­þróun úr Vef­skól­anum 2017. Hún hefur sýnt víða, t.a.m. í Amster­dam, Stokk­hólmi, Berlín, Basel og Tékk­landi. 

Á Íslandi hefur hún m.a. gert verk fyrir Lista­há­tíð í Reykja­vík, Gerð­ar­safn og sýnt í D-sal Hafn­ar­húss­ins. Hún stofn­aði nýlega hönn­un­ar­stúd­íóið Stúdíó Flötur ásamt manni sínum og graf­íska hönn­uð­inum Krist­jáni Jóni Pálssyni, en saman sér­hanna þau vín­ylmottur í tak­mörk­uðu upp­lagi og hugsa rými heim­il­is­ins fyrir lista­verk á nýjan hátt. Þórdís gerir verk í hinum ýmsu miðlum sem eru spunnin út frá nánd, lit­breyt­ingum og jafn­vægi.

thordiserlazoega.is
instagram.com/thordiserlazoega

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Gallerí Hillbilly

Ég vissi ekki hvað ég átti að gera við fjögurra metra skepnu
MenningGallerí Hillbilly

Ég vissi ekki hvað ég átti að gera við fjög­urra metra skepnu

Eftir 30 ár er Jón Baldur Hlíðberg kom­inn á þann stað sem hann er á núna. Þrátt fyrir að hafa dýpt tánum í mynd­list­ar­skóla sem ungur maður þá var eng­inn sem kenndi honum að teikna heldur hefur hann þurft að tína þetta upp úr götu sinni eftir því sem hann gengur um, það getur verið basl og maður verður að vera þol­in­móður, segir Jón Baldur. Hann kennir nú öðrum tækn­ina sem hann hefur þróað.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár