Pegasus-forritið: Hleranir, ofsóknir og morð

Rúmlega 80 blaða­menn störf­uðu í tæpt ár við að fletta ofan af ísra­elska fyr­ir­tæk­inu NSO. Njósn­a­for­riti þess var komið fyrir í símum fjölda blaða­manna, stjórn­mála­manna, lög­fræð­inga og full­trúa mann­rétt­inda­sam­taka.

<span>Pegasus-forritið:</span> Hleranir, ofsóknir og morð

Ísra­elskt fyr­ir­tæki hefur í tæpan ára­tug selt vafasömum rík­is­stjórnum um allan heim aðgang að hinu öfl­uga njósn­a­for­riti Pegasus. Ný rann­sókn fjöl­miðla og mann­rétt­inda­sam­taka sýnir umfangs­mikla mis­notkun á for­rit­inu og bendlar það meðal ann­ars við morð á póli­tískum and­stæð­ingum og blaða­mönnum.

Upphaf rann­sókn­ar­innar má rekja til þess að í fyrra komust mann­rétt­inda­sam­tökin Amnesty International yfir lista sem var sagður sýna 50 þús­und síma­númer ein­stak­linga sem væru undir eft­ir­liti með notkun öfl­ugs njósn­a­bún­aðar frá ísra­elska fyr­ir­tæk­inu NSO. Amnesty deildi upp­lýs­ing­unum með 17 virtum fjöl­miðlum á borð við Guardian, Washington Post, Le Monde, Radio France, Die Zeit, Haaretz og fleiri.

Rúmlega 80 blaða­menn störf­uðu í tæpt ár við að fletta ofan af þessu umfangs­mikla máli og leiddi rann­sókn þeirra í ljós að njósn­a­for­riti frá NSO hafði verið komið fyrir í símum fjölda blaða­manna, stjórn­mála­manna, lög­fræð­inga og full­trúa mann­rétt­inda­sam­taka. Forritið nefn­ist Pegasus og sam­kvæmt gögnum frá Wikileaks hefur það verið í notkun í að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár