„Verulega óheppilegt og óæskilegt“ að styrkir til lögreglumanna hafi endað í einkafyrirtæki

Í yfir­lýs­ingu frá Íslenska lög­reglu­for­lag­inu biðst fyr­ir­tækið afsök­unar á því að nokkur fyr­ir­tæki, sveit­ar­fé­lög og sam­tök hafi verið skráð í aug­lýs­ingu á vegum FÍFL. Lög­reglu­stjóri sem styrkt hefur fjár­söfnun í gegnum for­lagið gagn­rýnir að stærstur hluti styrks­ins hafi endað í rekstri fyr­ir­tæk­is­ins.

„Verulega óheppilegt og óæskilegt“ að styrkir til lögreglumanna hafi endað í einkafyrirtæki
Rúmar 4 millj­ónir í styrki frá hinu opin­bera Frá árinu 2017 hefur Íslenska lög­reglu­for­lagið fengið rúm­lega fjórar millj­ónir í styrki frá hinu opin­bera. Þar á meðal er tæp­lega 800 þús­und króna styrkur frá Inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu. Mynd: Samsett / Stundin

Íslenska lög­reglu­for­lagið harmar að fyr­ir­tæki, sveit­ar­fé­lög og sam­tök hafi verið skráð stuðn­ings­að­ilar aug­lýs­ingar Félags íslenskra fíkni­efna­lög­reglu­manna að þeim for­spurðum. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu sem fyr­ir­tækið, sem hafði milli­göngu um að afla styrkja og stuðn­ings við aug­lýs­ing­una, sendi frá sér í morgun. 

Lög­reglu­stjóri sem styrkt hefur fjár­söfnun í gegnum for­lagið gagn­rýnir að stærstur hluti styrks­ins hafi endað í rekstri fyr­ir­tæk­is­ins. 

Óánægð með tóninn

Eitt félag­anna sem sett var á lista hinna stuðn­ings­ríku var Rauði kross­inn. Tals­maður hans sagði sam­tökin ekki einu sinni styðja skila­boðin sem birt­ust í aug­lýs­ing­unni, hvað þá að sam­þykkt hafi verið að taka þátt í aug­lýs­ing­unni. „Okkur finnst vera þarna þessi hræðslu­á­róð­urs­tónn sem við styðjum ekki,“ sagði Gunn­laugur Bragi Björns­son, upp­lýs­inga­full­trúi Rauða Krossins, í sam­tali við Vísi. 

Í yfir­lýs­ingu lög­reglu­for­lags­ins segir líka að for­lag­inu hafi borist athuga­semdir frá aðilum sem styrktu aug­lýs­ing­una um að þeim hafi ekki verið gert ljóst hvaða texti yrði …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu