„Ég get bara bent á vandamálið“

Alma D. Möller land­læknir segir hlut­verk emb­ætt­is­ins að benda á þau vanda­mál sem upp komi í heil­brigð­is­kerf­inu. Það sé hins vegar ekki á hennar ábyrgð að gera úrbætur, það sé heil­brigð­is­stofn­ana og ráð­herra að bregð­ast við.

„Ég get bara bent á vandamálið“
Alvar­legur vandi Alvarleg staða á bráða­mót­töku Land­spít­ala er við­var­andi vandi eins og Alma Möller land­læknir hefur bent ítrekað á síð­ustu miss­eri. Mynd: Heiða Helgadóttir

Síðustu ár hefur land­læknir ítrekað bent á að staða mála á bráða­mót­töku Land­spít­ala sé óásætt­an­leg og upp­fylli ekki fag­legar kröfur. Enn á ný er komin upp alvar­leg staða á bráða­mót­töku, hjúkr­un­ar­fræð­inga vantar á 500 vaktir þar í sumar og starfs­fólk lýsir við­var­andi álagi svo að fólk hverfi frá störfum eða lendi í kulnun.

Aðspurð að því hvað sé til ráða varð­andi þá alvar­legu stöðu sem ríkir nú á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans segir Alma D. Möller land­læknir að það „þýði auð­vitað ekk­ert að gef­ast upp“. Að hennar mati er vandi bráða­mót­tök­unnar tví­þættur. Annars vegar telur hún að ekki hafi verið haldið nógu vel utan um þá stöðu sem fjölgun aldr­aðra og hækkun lífald­urs á Íslandi hafi skapað, það sem hún kallar „útskrift­ar­vandi“ Land­spít­al­ans. Þar vísar Alma til þess frá­flæð­is­vanda sem hefur skap­ast vegna þess hve erfitt hefur verið að útskrifa sjúk­linga af legu­deildum Land­spít­ala, einkum eldra fólk. Af þeim sökum sé …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Spítalinn er sjúklingurinn

FréttirSpítalinn er sjúklingurinn

Léttir að heil­brigð­is­ráð­herra ætlar að skoða rétt­ar­stöðu heil­brigð­is­starfs­fólks

Ásta Kristín Andr­és­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingur varð meyr við að lesa frétt­ar­til­kynn­ingu frá stjórn­ar­ráð­inu þess efnis að heil­brigð­is­ráð­herra hefur ákveðið að taka til skoð­unar rétt­ar­stöðu heil­brigð­is­starfs­fólks í tengslum við til­kynn­ingar og rann­sókn alvar­legra atvika í heil­brigð­is­þjón­ustu. Ásta er eini heil­brigð­is­starfs­mað­ur­inn á Íslandi sem hefur fengið rétt­ar­stöðu sak­born­ings vegna starfs síns.
ViðtalSpítalinn er sjúklingurinn

Missti allt úr hönd­unum eftir sýknu­dóm

Ásta Kristín Andr­és­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingur er eini heil­brigð­is­starfs­mað­ur­inn á Íslandi sem hefur verið ákærð fyrir mann­dráp af gáleysi í starfi. Lög­reglu­rann­sókn, ákæran, sem og máls­með­ferðin, tóku mikið á Ástu sem lýsir með­ferð máls­ins sem stríði. Þrátt fyrir að hafa hlotið sýknu í mál­inu hefur stríðið setið í henni, leitt hana á dimma staði þangað til að hún „missti allt úr hönd­unum“.

31 mín. lestur

FréttirSpítalinn er sjúklingurinn

Yfirfull bráða­mót­taka gat ekki tekið á móti sjúk­lingi í hjarta­stoppi

Helga Rósa Más­dóttir, deild­ar­stjóri bráða­mót­töku Land­spít­al­ans, stað­festir í sam­tali við Stundina að sjúk­lingi í hjarta­stoppi var vísað frá bráða­mót­tök­unni yfir á Hjarta­gátt spít­al­ans vegna þess að bráða­móttakan var full. Skráð hefur verið atvik vegna máls­ins. „Við erum að hafna deyj­andi fólki,“ segir áhyggju­fullur starfs­maður.
VettvangurSpítalinn er sjúklingurinn

Veikt fólk inni­lokað í glugga­lausu rými

Á þeim þremur mán­uðum sem liðnir eru frá því að starfs­fólk bráða­mót­tök­unnar sendi frá sér hjálp­ar­kall þar sem það sagð­ist lifa ham­farir hefur lítið sem ekk­ert verið aðhafst til að bæta starfs­að­stæður þeirra. Ef eitt­hvað er þarf það að hlaupa enn hraðar og mann­rétt­indi sjúk­linga eru brotin að mati bráða­læknis sem fylgdi blaða­manni í gegnum deild­ina. Aðstæður á vett­vangi voru slá­andi.

30 mín. lestur

FréttirSpítalinn er sjúklingurinn

Áhyggjur af því að kom­andi kosn­ingar hafi áhrif á sam­stöðu almenn­ings

Hjalti Már Björns­son, bráða­læknir á Land­spít­al­anum, segir að hann og annað heil­brigð­is­starfs­fólk hafi áhyggjur af því að það „muni skorta á sam­stöðu fólks til að takast á við þetta með sama hætti og hefur verið gert hingað til“. Þá seg­ist hann einnig hafa áhyggjur af sam­stöðu almenn­ings í ljósi þess að kosn­ingar séu á næsta leiti og að stjórn­mála­menn lýsi and­stöðu sinni við ráð­legg­ingar sótt­varna­læknis.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár