Gler loks endurunnið að hluta á Íslandi eftir yfir 30 ára bið

Þó verður ein­göngu lít­ill hluti glers­ins end­urunn­inn þar til árs­ins 2023.

Gler loks endurunnið að hluta á Íslandi eftir yfir 30 ára bið
Loksins í end­ur­vinnslu Ný lög kveða á um end­ur­vinnslu glers, en það hefur ekki verið end­ur­unnið í ára­tugi. Mynd: Shutterstock

Í þau rúm­lega 30 ár sem Íslend­ingar hafa flokkað og skilað gleri hefur ekk­ert af því farið í end­ur­vinnslu. Ísland er eina ríki Evrópu sem end­ur­vinnur ekk­ert af sínum gler­úr­gangi. Fyrstu mark­mið Evr­ópu­sam­bands­ins voru sett árið 2001, en þá var krafa um að ná 15% af öllu gleri í end­ur­vinnslu. Það mark­mið var svo hækkað umtals­vert árið 2012, eða upp í 60%. Ísland hefur aldrei verið nálægt þeim mark­miðum. Mark­miðin hækka svo í 75% fyrir árið 2030. 

Nýverið sam­þykkti Alþingi Íslands frum­varp Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar umhverfis- og auð­linda­ráð­herra um breyt­ingar á lögum um ráð­staf­anir gegn umhverf­is­mengun af völdum einnota drykkj­ar­vöru­um­búða. 

Með laga­breyt­ing­unni mun umsýslu­gjald á drykkj­ar­vörum í gleri hækka, en það er gjald sem drykkj­ar­fram­leið­endur og -inn­flytj­endur borga af hverri gler­flösku. Í yfir 30 ár hefur þetta gjald verið svo lágt að það tald­ist ekki fjár­hags­lega hag­kvæmt fyrir End­ur­vinnsl­una hf. að end­ur­vinna gler, en það fyr­ir­tæki hefur einka­rétt á söfnun drykkj­ar­um­búða á Íslandi. Var því bjórflaskan aldrei aftur að gleri, heldur voru fundin önnur not fyrir hana. Meðal hlut­hafa í End­ur­vinnsl­unni hf. eru Ölgerðin og Coca Cola á Íslandi.

Erfitt verður að sjá hvort Ísland muni ná að standa við mark­mið sem sett voru fyrir níu árum síðan með þess­ari aðgerð. Þegar gleri er safnað, til dæmis á end­ur­vinnslu­stöðvum Sorpu, er því blandað við múr­brot, flísar, postu­lín og fleira. Engin nákvæm töl­fræði er til um hversu nákvæm­lega mikið magn af gleri fellur til árlega á Íslandi.

Gler endurnýtt á Íslandi til að stöðva rottugang

Árið 1989 hóf End­ur­vinnslan hf. starf­semi, það sama ár gat fólk skilað inn gos­flöskum úr gleri og fengið greitt fyrir. Hér áður fyrr tóku gos­fram­leið­endur aftur við flöskum. Þær flöskur voru þvegnar og not­aðar aftur í fram­leiðslu­ferl­inu hjá þeim. Það ferli hætti og urðu því allar gler­um­búðir einnota. Árið 2016 hóf Sorpa loks að setja upp grennd­ar­gáma víðs vegar um höf­uð­borg­ar­svæðið þar sem íbúar þess gátu flokkað sér­stak­lega gler. Fyrir þann tíma var stór hluti alls glers á Íslandi urðað. Hjá End­ur­vinnsl­unni hf. safn­að­ist mikið magn af gler­flöskum og var tekin sú ákvörðun að ekki að reyna að koma þeim í end­ur­vinnslu, heldur end­ur­nýt­ingu. Á Íslandi er gler end­ur­nýtt meðal ann­ars til að stöðva rottu­gang á urð­un­ar­stöðum og til land­fyll­ingar. Blaða­maður Stund­ar­innar spurð­ist fyrir hjá umhverf­is­stofn­unum Sví­þjóðar og Noregs um hvort þar í landi væri not­ast við gler á urð­un­ar­stöðum til að berj­ast gegn rottu­gangi. Sögðu stofn­an­irnar að þær hefðu aldrei heyrt til þess og efuð­ust um að hægt væri að kalla þá aðferð end­ur­nýt­ingu. Í dag er mikið af gleri safnað í safn­haug á Álfsnesi, en áætlað er að nota það við gerð Sunda­braut­ar­innar, ef af henni verður.

Umhverfislega hagkvæmt að endurvinna gler

Verk­fræði­stofan Efla gerði vist­fer­ils­grein­ingu á söfnun og end­ur­vinnslu glers árið 2014 fyrir End­ur­vinnsl­una hf. og Úrvinnslu­sjóð. Í henni kom skýrt fram að það væri umhverf­is­lega hag­kvæmt að end­ur­vinna gler. Gler er 100% end­ur­vinn­an­legt og er hægt að end­ur­vinna það nán­ast enda­laust aftur og aftur. Með því að end­ur­vinna gler spar­ast mikil orka, þar sem ekki þarf að ná í nýjar auð­lindir til að búa til nýtt gler. Þrátt fyrir að nið­ur­stöður skýrsl­unnar hafi verið afger­andi var ekki farið í end­ur­vinnslu.

„Það er mjög dýrt að end­ur­bræða gler og það kostar mengun að end­ur­vinna það“

Í sam­tali við Stundina segir Helgi Lárusson, fram­kvæmda­stjóri End­ur­vinnsl­unnar hf., að kostn­að­ur­inn hafi ein­fald­lega verið of mik­ill við að end­ur­vinna glerið. „Það er ein­fald­lega mjög dýrt að end­ur­vinna glerið,“ segir Helgi. Árið 2017 setti ráð­herra á fót starfs­hóp sem átti að koma með til­lögur um hvernig mætti stuðla betur að end­ur­vinnslu gler­um­búða. Starfs­hóp­ur­inn skil­aði af sér nið­ur­stöðu árið 2018 og var nið­ur­staðan sú sama og skýrsla verk­fræði­stof­unnar Eflu hafði bent á fjórum árum áður. Starfs­hóp­ur­inn var hins vegar ekki að hvetja til þess að grípa strax til aðgerða, heldur mælti hann með því að end­ur­vinnsla á gleri myndi ekki hefj­ast fyrr en í fyrsta lagi árið 2021.

Sagði að endurvinnsla á gleri væri bæði dýr og mengandi

Í grein í Frétta­blað­inu frá árinu 2012 sagði Helgi Lárusson, fram­kvæmda­stjóri End­ur­vinnsl­unar hf., að það væri bæði meng­andi og dýrt að end­ur­vinna gler. „Það er mjög dýrt að end­ur­bræða gler og það kostar mengun að end­ur­vinna það. Og þá kemur alltaf upp spurn­ingin: Hvað viltu ganga langt og hvenær er verið að vernda umhverfið? Er þetta umhverf­is­vænt eða ekki?“ Þeirri spurn­ingu var svarað tveimur árum síðar þar sem kom skýrt fram í vist­fer­ils­grein­ingu Eflu að söfnun og end­ur­vinnsla á gleri væri umhverf­is­lega hag­kvæm. Var því nið­ur­staða Eflu þvert á það sem fram­kvæmda­stjóri End­ur­vinnsl­unnar hf. hélt fram. 

Ekkert úrvinnslugjald er á gleri í dag

Úrvinnslu­gjald er lagt á lang­flestar neyt­enda­um­búðir á Íslandi, eins og allar umbúðir úr plasti og pappír. Á það gjald að standa undir þeim kostn­aði sem verður vegna söfn­unar, flokk­unar og end­ur­vinnslu á umbúð­unum. Hins vegar er ekk­ert úrvinnslu­gjald lagt á gler­um­búðir, eins og gler­krukkur. Hefur því ekki verið til fjár­magn fyrir end­ur­vinnslu­fyr­ir­tækin til að senda glerið til end­ur­vinnslu. Úrvinnslu­sjóður ber ábyrgð á að setja úrvinnslu­gjald á allar umbúðir, en engar áætl­anir voru þar til margra ára um að hefja gjald­töku á úrvinnslu­gjaldi fyrir gler. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar hafa inn­flutn­ings­að­ilar og fram­leið­endur á vörum sem koma í gler­um­búðum mót­mælt því að sér­stakt gjald verði lagt á þær umbúðir. Þessir sömu inn­flutn­ings­að­ilar eiga full­trúa í stjórn Úrvinnslu­sjóðs sem tekur ákvarð­anir um hvaða vörur skulu bera úrvinnslu­gjald. Ný lög, sem hafa nú verið sam­þykkt á Alþingi, munu leiða til þess að úrvinnslu­gjald verður lagt á gler­um­búðir árið 2023.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Endurvinnsla á Íslandi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár