Þrettán hópar úr bólusetningarlottóinu bólusettir í vikunni

72,8 pró­sent lands­manna yfir 16 ára aldri hafa verið bólu­sett með að minnsta kosti einum skammti. Þrettán árgangar verða bólu­settir í þess­ari viku. Í vik­unni fær tölu­verður hópur seinni bólu­setn­ingu af Pfizer og Moderna bólu­efni og mun því fjölga í hópi full­bólu­settra.

Þrettán hópar úr bólusetningarlottóinu bólusettir í vikunni

Þrettán árgangar verða bólu­settir í þess­ari viku. Er þetta önnur vikan þar sem bólu­sett er eftir bólu­setn­ing­ar­lottó­inu, þar sem heilu árgangar karla og kvenna voru dregin úr fötu. 

72,8 pró­sent lands­manna yfir 16 ára aldri hafa verið bólu­sett með að minnsta kosti einum skammti. Til við­bótar hafa 2,2 pró­sent fengið COVID og með mótefni í lík­am­anum. Gera má ráð fyrir að hlut­fallið muni hækka dug­lega í þess­ari viku þar sem stór hluti þeirra sem ekki hafa und­ir­liggj­andi sjúk­dóma eða falla í ein­hvern for­gangs­hóp fá boð í bólu­setn­ingu. 

Af þeim sem hafa verið bólu­settir eru tæp 44 pró­sent sem hafa fengið fulla bólu­setn­ingu, það er tvo skammta af Pfizer, AstraZeneca eða Moderna eða einn skammt af Janssen. Í vik­unni fær tölu­verður hópur seinni bólu­setn­ingu af Pfizer og Moderna bólu­efni og mun því fjölga í hópi full­bólu­settra. Þá verða karlar fæddir 1981, 1994, 2001, 2002 og konur fæddar 1976, 1979, 1993, 1997 bólu­sett með Janssen og verða því strax full­bólu­sett.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár