Einn af um 86 þúsund fengið sjaldgæfa aukaverkun COVID-bóluefnis

Bólu­setning gegn Covid-19 hefur orsakað alvarleg veikindi í einu tilviki hér á landi. Þá er ekki hægt að útiloka að bólu­setning hafi orðið öðrum aldurtila. Þetta sýna niður­stöður rann­sóknar á vegum Lyfja­stofnunar.

Bólusett
Bólusett Góður gangur hefur verið í bólu­setn­ingu við COVID-19 á Íslandi und­an­farnar vikur. Hlutfall þeirra sem hafa fengið að minnsta kosti einn skammt af bólu­efni er komið yfir 75 pró­sent hjá þeim sem eru eldri en 16 ára. Mynd: Heiða Helgadóttir

Eitt andlát gæti mögulega tengst bólu­setningu við COVID-19 á Íslandi. Í fjórum öðrum tilvikum er talið ólíklegt að andlát hafi orsakast af auka­verkunum bólu­setninga. Þetta er niður­staða óháðra sérfræðinga á meintum alvarlegum auka­verkunum bóluefna gegn COVID-19 á vegum Lyfja­stofnunar.

Matið er sett fram á skalanum frá því að ólíklegt sé að bóluefni hafi orsakað veikindi eða andlát, að mögulegt sé að bóluefnið hafi gert það og að líklegt sé að svo sé. Þetta eina andlát sem kannað var og ekki hægt að útiloka að sé afleiðing bólu­setningar er þó aðeins talið ólíklegt til mögulegt, á þessum skala. 

„Embætti land­læknis fylgist viku fyrir viku með tölfræði dauðsfalla sem og tíðni ákveðinna sjúkdóms­greininga sem gætu tengst þekktum auka­verkunum þeirra fjögurra bóluefna sem nú eru í notkun,“ segir í tilkynningu Lyfja­stofnunnar um rann­sóknina. „Hingað til hafa engar greinanlegar breytingar orðið á sk. umfram­dauðsföllum eða tíðni þeirra greininga.“

Hefur orsakað veikindi

Líklegt er að bólu­setning með Astra Zeneca hafi valdið einum einstaklingi veikindum; svokölluðum VITT, eða Vaccine induced thrombocytopenia and thrombosis. Það er þekkt aukaverkun bæði Astra Zeneca og Janssen bóluefna. Samkvæmt Lyfja­stofnun er það talið gerast hjá einum af hverjum 100 þúsund bólu­settum. Samtals hafa um 86 þúsund verið bólu­settir hér á landi með þessum tveimur efnum. 

Meirihluti fólks eldra en 16 ára hefur nú verið bólusett með einhverju af þeim fjórum bóluefnum sem eru í notkun á Íslandi. Eftir bólu­setningu síðustu daga er hlut­fallið komið í 75 prósent, samkvæmt vefnum covid.is. 

Í tilkynningu Lyfja­stofnunar segir að 18 þúsund manns verið full­bólusettir með bóluefni Astra Zeneca og tæpleg 42 þúsund hafa fengið fyrri skammt. Til viðbótar hafa 26 þúsund fengið Janssen bóluefni en aðeins þarf einn skammt af því til að teljast full­bólusettur. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár