Einn af um 86 þúsund fengið sjaldgæfa aukaverkun COVID-bóluefnis

Bólu­setn­ing gegn Covid-19 hefur orsakað alvar­leg veik­indi í einu til­viki hér á landi. Þá er ekki hægt að úti­loka að bólu­setn­ing hafi orðið öðrum ald­urtila. Þetta sýna nið­ur­stöður rann­sóknar á vegum Lyfja­stofn­unar.

Einn af um 86 þúsund fengið sjaldgæfa aukaverkun COVID-bóluefnis
Bólusett Góður gangur hefur verið í bólu­setn­ingu við COVID-19 á Íslandi und­an­farnar vikur. Hlutfall þeirra sem hafa fengið að minnsta kosti einn skammt af bólu­efni er komið yfir 75 pró­sent hjá þeim sem eru eldri en 16 ára. Mynd: Heiða Helgadóttir

Eitt and­lát gæti mögu­lega tengst bólu­setn­ingu við COVID-19 á Íslandi. Í fjórum öðrum til­vikum er talið ólík­legt að and­lát hafi orsakast af auka­verk­unum bólu­setn­inga. Þetta er nið­ur­staða óháðra sér­fræð­inga á meintum alvar­legum auka­verk­unum bólu­efna gegn COVID-19 á vegum Lyfja­stofn­unar.

Matið er sett fram á skal­anum frá því að ólík­legt sé að bólu­efni hafi orsakað veik­indi eða and­lát, að mögu­legt sé að bólu­efnið hafi gert það og að lík­legt sé að svo sé. Þetta eina and­lát sem kannað var og ekki hægt að úti­loka að sé afleið­ing bólu­setn­ingar er þó aðeins talið ólík­legt til mögu­legt, á þessum skala. 

„Embætti land­læknis fylgist viku fyrir viku með töl­fræði dauðs­falla sem og tíðni ákveð­inna sjúk­dóms­grein­inga sem gætu tengst þekktum auka­verk­unum þeirra fjög­urra bólu­efna sem nú eru í notkun,“ segir í til­kynn­ingu Lyfja­stofn­unnar um rann­sókn­ina. „Hingað til hafa engar grein­an­legar breyt­ingar orðið á sk. umframdauðs­föllum eða tíðni þeirra grein­inga.“

Hefur orsakað veikindi

Líklegt er að bólu­setn­ing með Astra Zeneca hafi valdið einum ein­stak­lingi veik­indum; svoköll­uðum VITT, eða Vaccine induced thrombocytopenia and thrombosis. Það er þekkt auka­verkun bæði Astra Zeneca og Janssen bólu­efna. Samkvæmt Lyfja­stofnun er það talið ger­ast hjá einum af hverjum 100 þús­und bólu­settum. Samtals hafa um 86 þús­und verið bólu­settir hér á landi með þessum tveimur efnum. 

Meiri­hluti fólks eldra en 16 ára hefur nú verið bólu­sett með ein­hverju af þeim fjórum bólu­efnum sem eru í notkun á Íslandi. Eftir bólu­setn­ingu síð­ustu daga er hlut­fallið komið í 75 pró­sent, sam­kvæmt vefnum covid.is. 

Í til­kynn­ingu Lyfja­stofn­unar segir að 18 þús­und manns verið full­bólu­settir með bólu­efni Astra Zeneca og tæp­leg 42 þús­und hafa fengið fyrri skammt. Til við­bótar hafa 26 þús­und fengið Janssen bólu­efni en aðeins þarf einn skammt af því til að telj­ast full­bólu­settur. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár