Þorsteinn svarar engu um dylgjur í afsökunarbeiðni

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, seg­ist ekki ætla að svara um efni afsök­un­ar­beiðni sem fyr­ir­tæki hans birti óund­ir­rit­aða á vef­síðu sinni um helg­ina. Stundin beindi til hans sömu spurn­ingu og lög­maður fyr­ir­tæk­is­ins hafði krafið Lilju Dögg Alfreðs­dóttur mennta­mála­ráð­herra svara um nokkrum vikum fyrr. Í afsök­un­ar­beiðn­inni er full­yrt að umfjöllun hafi verið „ein­hliða, ósann­gjörn og ekki alltaf byggð á stað­reyndum“.

Þorsteinn svarar engu um dylgjur í afsökunarbeiðni
Þögull Þor­steinn Már er þög­ull um hvað það er sem fyr­ir­tækið hans biðst afsök­unar á. Sjálfur segir hann afsök­un­ar­beiðn­ina skýra. Mynd: Davíð Þór

Engin svör fást frá Samherja um þær dylgjur sem fram koma í afsök­un­ar­beiðni sem fyr­ir­tækið birti óund­ir­rit­aða á vef sínum um helg­ina.

Þar var umfjöllun af mál­efnum fyr­ir­tæk­is­ins sögð „ein­hliða, ósann­gjörn og ekki alltaf byggð á stað­reyndum“. Var það gert í sama mund og fyr­ir­tækið baðst afsök­unar á við­brögðum sínum. 

Það fæst þó heldur ekki skýrt nákvæm­lega hvaða við­brögðum beðist er afsök­unar á. 

Engar útskýringar fást

„Við höfum því ekki í hyggju að veita við­töl eða fjalla frekar um hana að svo stöddu,“ segir Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um afsök­un­ar­beiðn­ina. Hann segir yfir­lýs­ing­una skýra og afdrátt­ar­lausa og að hún hafi „fallið í góðan jarð­veg“.

„Við höfum því ekki í hyggju að veita við­töl eða fjalla frekar um hana að svo stöddu“
Þor­steinn Már Bald­vins­son
for­stjóri Samherja

Í svar­inu segir hann þó að félagið hafi beðist afsök­unar á „þætti félags­ins í harka­legri fjöl­miðlaum­fjöllun að und­an­förnu“. Er það í sam­ræmi við lýs­ingar málsvara fyr­ir­tæk­is­ins, til að mynda „skæru­liða­deild­ar­innar“ sem Stundin og Kjarninn afhjúp­uðu nýverið, og var til­efni afsök­un­ar­beiðn­innar, að blaða- og frétta­menn væru í ein­hvers­konar átökum við Samherja. Að frétta­flutn­ingur af Namib­íu­mál­inu svo­kall­aða væru átök tveggja stríð­andi fylk­inga. 

Kröfðu ráðherra um nákvæm svör

Kjarninn greindi svo frá því í gær að lög­maður Samherja hafi aðeins fyrir nokkrum vikum krafið Lilju Dögg Alfreðs­dóttur, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, nákvæmra svara um orð hennar í þing­inu. Þar hafði hún sagt Samherja hafa gengið of langt í við­brögðum sínum. 

Hún hafði við sama til­efni talað um orra­hríð blaða- og frétta­manna og fyr­ir­tæk­is­ins. 

Í bréf­inu, sem Arnar Þór Stef­áns­son, lög­maður Samherja, sendi fyrir hönd fyr­ir­tæk­is­ins var Lilja krafin útskýr­inga af „tölu­verðri nákvæmni“. „Var það t.d. of langt gengið að skjóta mál­inu til siða­nefndar Rík­is­út­varps­ins eða að fjalla um nið­ur­stöð­una? Var það mynd­banda­gerðin um nið­ur­stöð­una sem gekk of langt?“ spurði lög­mað­ur­inn. 

Lilju Dögg var gefin vika til að svara erind­inu. Því hefur enn ekki verið svarað, nú fimm vikum síðar. 

„Var það t.d. of langt gengið að skjóta mál­inu til siða­nefndar Rík­is­út­varps­ins eða að fjalla um nið­ur­stöð­una? Var það mynd­banda­gerðin um nið­ur­stöð­una sem gekk of langt?“
Arnar Þór Stef­áns­son
lög­maður Samherja

Stundin óskaði í gær eftir við­tali við Þorstein Má, eða eftir atvikum aðra for­svars­menn fyr­ir­tæk­is­ins, vegna Namib­íu­máls­ins. Þeirri beiðni var ekki svarað. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
3
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár