Samherji segist hafa gengið of langt en sakar fjölmiðla um einhliða, ósanngjarnar og rangar fréttir

Í óund­ir­rit­aðri yfir­lýs­ingu sem birt var á vef Samherja í gær er beðist afsök­unar of hörðum við­brögðum fyr­ir­tæk­is­ins við frétta­flutn­ingi, sem sagður er ein­hliða, ósann­gjarn og ekki alltaf byggður á stað­reyndum. Vara­f­rétta­stjóri RÚV, Heiðar Örn Sig­ur­finns­son segir afsök­un­ar­beiðnin hefði verið betri, væri hún skýr­ari.

Maðurinn
Maðurinn Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, var í góðu sam­bandi við þá sem mynd­uðu skæru­liða­deild fyr­ir­tæk­is­ins. Það var Jón Óttar Ólafsson, rann­sak­andi fyr­ir­tæk­is­ins, líka. Mynd: Heiða Helgadóttir

Útgerð­ar­fé­lagið Samherji hefur beðist afsök­unar á fram­göngu stjórn­enda þess í við­brögðum við frétta­flutn­ingi um fyr­ir­tækið. Í yfir­lýs­ingu þess frá því í gær er umfjöllun sögð „ein­hliða, ósann­gjörn og ekki alltaf byggð á stað­reyndum“. Er þar vísað í umfjöllun um Namib­íu­málið og við­brögð við henni. 

Í yfir­lýs­ingu útgerð­ar­innar er beðist afsök­unar á fram­göngu stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins í við­brögðum við það sem kallað er nei­kvæð umfjöllun um félagið og „ljóst að of langt hefur verið gengið í þeim við­brögðum.“

Bregðast við afhjúpun

Yfir­lýs­ingin frá Samherji var við­bragð við fréttum Stund­ar­innar og Kjarnans um „skæru­liða­deild“ fyr­ir­tæk­is­ins. Í umfjöllun miðl­anna voru brot úr sam­skiptum starfs­manna og ráð­gjafa Samherja afhjúpuð en þar var meðal ann­ars rætt um hvernig koma ætti í veg fyrir að Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ar­inn í Namib­íu­mál­inu, myndi bera vitni fyrir dómi í Namibíu. 

„Þarna var um að ræða per­sónu­leg sam­skipti á milli starfs­fé­laga og vina sem eng­inn gerði ráð fyrir að yrðu opin­ber“
Úr yfir­lýs­ingu Samherja

Árásir á blaða­menn og þá sem gagn­rýnt hafa fram­ferði fyr­ir­tæk­is­ins voru einnig til umræðu á milli þess­ara starfs­manna; til að mynda fjölda greina sem inn­an­hús­lög­maður Samherja og utan­að­kom­andi almanna­tengsla­ráð­gjafi sömdu en birtu í nafni skip­stjóra hjá félag­inu.

Samherji segir þessi sam­skipti hafi verið per­sónu­leg og ekki átt að verða opin­ber.

„Þarna var um að ræða per­sónu­leg sam­skipti á milli starfs­fé­laga og vina sem eng­inn gerði ráð fyrir að yrðu opin­ber. Það breytir því þó ekki að þau orð og sú umræða sem þar var við­höfð voru óheppi­leg,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Einstaka starfs­menn og fyr­ir­tækið sjálft hafa hins vegar ekki svarað spurn­ingum um málið. 

Gerir athugasemdir við afsökunina

Helgi Seljan frétta­maður, sem einna helst hefur orðið fyrir barð­inu á skæru­liða­deild fyr­ir­tæk­is­ins sagði í kvöld­fréttum RÚV í gær að hann túlk­aði yfir­lýs­ingu Samherja sem ein­læga. „Að því sögðu þá eru auð­vitað hlutir sem hafa gerst á þessu einu og hálfa ári sem þetta slær ekk­ert striki yfir,“ sagði hann. 

Heiðar Örn Sig­ur­finns­son, vara­f­rétta­stjóri RÚV, segir að þó kveði við nýjan tón frá Samherja sé ýmis­legt sem vanti. „Í fyrsta lagi er ekki mjög skýrt hver er að biðj­ast afsök­unar,“ skrifar hann á Facebook og bendir á að eng­inn sé skrif­aður fyrir afsök­un­ar­beiðn­inni. Hann spyr af hverju stjórn­end­urnir sjálfir hafi ekki beðist afsök­unar á fram­ferði sínu. 

Heiðar spyr einnig hvern sé verið að biðja afsök­unar. Enginn er nefndur á nafn í afsök­un­ar­beiðn­inni. Fyrir liggur að fyr­ir­tækið hefur ekki beðið Helga sjálfan afsök­unar á fram­göngu sinni. 

„Kannski hefði þessi afsök­un­ar­beiðni verið betri ef það væri skýr­ara hver væri að biðja hvern afsök­unar og á hverju“
Heiðar Örn Sig­ur­finns­son
vara­f­rétta­stjóri RÚV

Þá segir Heiðar óljóst á hverju sé verið að biðj­ast afsök­unar á. Hann nefnir að fyr­ir­tækið hafi sakað frétta­menn Kveiks um að falsa skjöl, reynt að hafa af fjöl­miðla­fólki æruna og sent „spæj­ara“ á eftir Helga Seljan, sem sendi honum ógn­andi sms-skila­boð og sat fyrir honum á kaffi­húsi, og njósnað um aðra fjöl­miðla­menn og lista­menn. 

„Er það kannski allt þetta eða eitt­hvað annað sem ekki hefur komið fram í opin­berri umræðu?“ spyr Heiðar. 

„Kannski hefði þessi afsök­un­ar­beiðni verið betri ef það væri skýr­ara hver væri að biðja hvern afsök­unar og á hverju. Eins og fram kom í frétt RÚV í kvöld þá vildi for­stjóri Samherja ekki veita við­tal til að skýra það. Ekki frekar en hann hefur viljað veita við­töl til að svara þeim ásök­unum sem settar hafa verið fram,“ segir vara­f­rétta­stjór­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

„Skæruliðar“ Samherja

ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

19 mín. lestur

Fréttir

Þor­steinn svarar engu um dylgjur í afsök­un­ar­beiðni

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, seg­ist ekki ætla að svara um efni afsök­un­ar­beiðni sem fyr­ir­tæki hans birti óund­ir­rit­aða á vef­síðu sinni um helg­ina. Stundin beindi til hans sömu spurn­ingu og lög­maður fyr­ir­tæk­is­ins hafði krafið Lilju Dögg Alfreðs­dóttur mennta­mála­ráð­herra svara um nokkrum vikum fyrr. Í afsök­un­ar­beiðn­inni er full­yrt að umfjöllun hafi verið „ein­hliða, ósann­gjörn og ekki alltaf byggð á stað­reyndum“.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár