368. spurningaþraut: Houdal, Kon-Tiki, Simpson, Benzema, The Feminine Mystique

368. spurningaþraut: Houdal, Kon-Tiki, Simpson, Benzema, The Feminine Mystique

Þrautin frá í gær. Reynið yður við hana!

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Af hvaða teg­und er hund­ur­inn hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Høgni Karsten Hoydal var um skeið sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra — hvar?

2.   Hvað heitir borgin þar sem hinir banda­rísku Simpson-þættir ger­ast?

3.   Hvaða fyr­ir­bæri var Kon-Tiki sem var í sviðs­ljós­inu árið 1947?

4.   Með hvaða fót­boltaliði spilar franski sókn­ar­mað­ur­inn Karim Benzema?

5.   The Feminine Mystique er eitt af grund­vall­ar­ritum femín­ism­ans en bókin sú kom fyrst út í Banda­ríkj­unum 1963. Hver var höf­und­ur­inn?

6.   Junko Tabei þótti líka vera braut­ryðj­andi fyrir konur, þegar hún vann fyrst kvenna ákveðið afrek árið 1975. Karlmenn höfðu fyrst unnið þetta afrek árið 1953, en nú er talið að rúm­lega 4.000 manns hafi gert þetta, bæði karlar og konur. Hvað gerði Junko Tabei árið 1975?

7.   Argent­ínu­maður komst í frétt­irnar fyrir örfáum dögum þegar hann gat — vegna ein­hverra und­ar­legra mis­taka — keypt lén alþjóð­legs risa­fyr­ir­tækis í heima­landi sínu fyrir um 300 krónur íslenskar. „Lén“ er eins og menn vita „heim­il­is­fang“ á net­inu. Málið þótti hið vand­ræða­leg­asta fyrir fyr­ir­tækið, enda á það að kunna góð skil á hvernig kaupin ger­ast á eyr­inni á net­inu. Hvaða fyr­ir­tæki var þetta?

8.   Hvað hét bær­inn þar sem Jón Sig­urðs­son sjálf­stæð­is­hetja Íslend­inga fædd­ist?

9.   Hver skrif­aði bók­ina Hroki og hleypi­dómar, eða Pride and Prejudice?

10.   Hvaða „golf“ er það sem golfstraum­ur­inn er kenndur við?

***

Síðari auka­spurn­ing:

Ljósu svæðin á mynd­inni hér að neðan eru tvær höf­uð­borgir, séðar úr mik­illi hæð án skýja­hulu. Það eru rétt rúmir 200 kíló­metrar milli þeirra. Nefnið að minnsta kosti aðra höf­uð­borg­ina.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Í Færeyjum.

2.   Spring­fi­eld.

3.   Fleki.

4.   Real Madrid.

5.   Friedan.

6.   Kleif Everest.

7.   Google. Fyr­ir­tækið fékk lénið sitt aftur án þess að end­ur­greiða einu sinni Argent­ínu­mann­inum.

8.   Hrafns­eyri.

9.   Jane Austen.

10.   Mexík­ó­flói — eða „the GULF of Mexico“.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er pit­bull-hvutti.

Á neðri mynd­inni má sjá Buenos Aires, höf­uð­borg Argent­ínu, og Montevideo, höf­uð­borg Úrúgvæ.

Á litla kort­inu hér má sjá hvar borg­irnar eru í hinu stærra sam­hengi.

*** 

Og þrautin frá í gær,  hún er svo hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár