367. spurningaþraut: Hver hét William Bailey framan af ævinni?

367. spurningaþraut: Hver hét William Bailey framan af ævinni?

Þraut frá í gær.

— — —

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er konan á mynd­inni hér að ofan?

— — —

Aða­spurn­ingar:

1.   Hvenær beitir fólk kóngs­bragði? Nú, eða drottn­ing­ar­bragði?

2.   Kristján Eldjárn var kjör­inn for­seti Íslands árið 1968. Hvern sigr­aði hann í þeim kosn­ingum?

3.   Guðlaug Sóley Hösk­ulds­dóttir var valin bjartasta vonin á Íslensku tón­list­ar­verð­laun­unum á dög­unum. Hún er nemi í MH auk þess að stunda raf­tón­list sína af kappi. Eins og títt er um tón­list­ar­menn í þeim geir (og fleiri) gefur Guðlaug Sóley út tón­list sína undir öðru nafni. Hvaða nafn hefur hún valið sér?

4.   Einn hræði­legur og hættu­legur galdra­karl kunni margt fyrir sér til að skemma fyrir fólki og jafn­vel drepa það. Grimmasta vopn hans voru álög eða bölvun sem nefnd­ust avada keda­vra, eða „dráps­bölvunin“. Hún átti þó mik­inn þátt í að ríða töfra­m­ann­inum sjálfum að fullu þegar upp var staðið. Hvað hét töfra­karl þessi?

5.   Anníe Mist Þór­is­dóttir er ein af þeim bestu í heimi í ... hverju?

6.   Meðal þeirra kvik­mynda sem til­nefndar eru til Eddu­verð­launa sem besta kvik­myndin á síð­asta ári er The First and Last Men, 70 mín­útna hug­leið­ing um fram­tíð manns­ins á Jörðinni. Myndin er svo­lítið óvenju­leg að því leyti að hún er hug­ar­smíð tón­skálds­ins sem jafn­framt leik­stýrir. Hvað heitir tón­skáldið?

7.   Ungur banda­rískur piltur sem fædd­ist árið 1962 heitir William að skírn­ar­nafni. Lengst af æsku sinnar nefnd­ist hann William Bailey eftir stjúp­föður sínum. Á efri tán­ings­árum tók hann svo aftur upp nafn blóð­föður síns, þótt sá hefði reynst honum afar illa. Og hann lagði líka af nafnið William, svo hann varð heims­frægur tón­list­ar­maður í heims­frægri hljóm­sveit undir allt öðru nafni. Hvað kallar hann sig?

8.   Í frægum söng fjallar Ray Davies söngv­ari The Kinks um mann­eskju sem „walked like a woman and tal­ked like a man“. Hver var þetta?

9.   Hver skrif­aði text­ann í sög­unni Ást­ar­sögu úr fjöll­unum?

10.   En hver teikn­aði mynd­irnar?

— — —

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað hét sú vin­sæla hljóm­sveit sem gaf þá plötu sem skjá­skotið hér að neðan sýnir, að hluta:

— — —

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Í skák.

2.   Gunnar Thorodd­sen.

3.   Gugusar.

4.   Volde­mort.

5.   Cross fit.

6.   Jóhann G. Jóhanns­son.

7.   Axl Rose.

8.   

Lola.

9.   Guðrún Helga­dóttir.

10.   Brian Pilk­ington.

— — —

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni má sjá Sögu Garð­ars­dóttur leik­ara.

Á neðri mynd­inni er hluti af albúmi plöt­unnar Automatic for the People með hljóm­sveit­inni R.E.M.

Og hér er hlekkur á þraut gær­dags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár